Læknablaðið - 01.08.1950, Side 36
94
LÆKNABLAÐIÐ
Stéttar- og félagsmál.
Frá Læknafélagi
Reykjavíkur.
Á síðasta starfsári L. R., frá
marz 1949 til marz 1950, voru
haldnir 10 almennir félags-
fundir. Á fimm þessara funda
fluttu erlendir læknar og vís-
indamenn erindi„ Dr. med.
Gunnar Edström, próf. í rheu-
matologi í Lundi, flutti í apríl-
byrjun 1949 á tveimur fundum
löng og fróðleg erindi um rann-
sóknir, klinik og meðferð poly-
arthritis rheumatica. Dr.
pharm. Jens Hald frá Kaup-
mannahöfn flutti fyrirlestur
um antabus á maí-fundi félags-
ins 1949. Á september-fundin-
um flutti próf. Knud Krabbe
tvö erindi um heila- og mænu-
sjúkdóma. í okt. 1949 talaði Dr.
R. M. Taylor, frá Bandaríkjun-
um, um nútíma-skoðanir
manna á mænusótt og skyld-
um sjúkdómum.
Félagsmenn hafa flutt þessi
erindi á fundum: Dr. med.
Helgi Tómasson: Um starfsem-
ina á Kleppi síðustu 20 árin.
Bjarni Jónsson: Meniskus-
rifur í hnélið.
cer-sjúklinga og almenna
starfandi lækna, og fá báða
aðila til að skilja og gleyma
aldrei, að hið hræðilegasta við
krabbameinið er tímatöfin.“
Alfreð Gíslason.
Sigurður Samúelsson: Um
cor pulmonale (hefir verið birt
í Læknabl.).,
Sami: Um stenosis isthmi
aortae (einnig komið í Lækna-
blaðinu).
Dr. med. Snorri Hallgríms-
son: Epifysiolysis capitis fem-
oris,
Þá má geta þess, að L. R.
minntist fertugsafmælis síns
með fagnaði í Oddfellow-hús-
inu hinn 12. nóv, 1949. Aðal-
ræöuna í því hófi flutti Dr.
Helgi Tómasson. (Ræðan var
birt í Læknabl, 1. tbl. þ. á.).
Rakti hann þar í helztu drátt-
um störf félagsins í 40 ár, en
stakk að lokum upp á því, að
L R. gengist fyrir stofnun geð-
verndarfélags. Á næsta félags-
fundi 16. nóv. 1949 var kosin
nefnd til þess að undirbúa það
mál nánar. Nefndin lagði frum-
varp að lögum fyrir „Geðvernd
arfélag íslands“ fyrir fund í
L„ R. 14. des. 1949, en undirbjó
síðan almennan stofnfund fé-
lagsins, svo sem skýrt hefur
verið frá í dagblöðum og út-
varpi. Meðal annarra merkra
mála, er borið hafa á góma í
L. R. á síðasta starfsári, má
telja bæjarspítala Reykjavíkur.
Á nóv.-fundinum 1949 hafði
Sigurður Sigurðsson berklayf-
irlæknir framsögu í því máli og
skýrði frá tillögum nefndar