Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1995, Page 37

Læknablaðið - 15.03.1995, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 245 Table V. Comparison ofbirth weight, length and ponderal index between natural conception and in vitro fertilisation (IVF). Mean S. D. Range t P Birth weight Natural twin A (g) 2613.9 737.97 155-4140 IVF twin A (g) 2581.8 645.93 118-3756 0.28 p>0.5 Natural twin B (g) 2617.7 729.51 258-3995 IVF twin B (g) 2522.3 688.78 152-3824 0.85 0.5>p>0.1 Birth length Natural twin A (cm) 47.2 5.19 19-56 IVF twin A (cm) 47.8 2.79 42-54 0.88 0.5>p>0.1 Natural twin B (cm) 47.3 5.30 20-55 IVF twin B (cm) 47.6 3.10 40-55 0.37 p>0.5 Ponderal Index Natural twin A (cm) 2.6 2.78 1.3-41.0 IVF twin A (cm) 2.4 0.38 1.6-2.9 0.61 p>0.5 Natural twin B (cm) 2.5 1.18 1.6-17.9 IVF twin B (cm) 2.4 0.34 1.8—4.1 0.66 p>0.5 sæðisgjöf í leg frá eiginmanni og voru þeir flokkaðir með glasakomnum tvíburum. Níu tvíburar fæddust eftir frjósemilyfjameðferð (klómífen) og voru þeir flokkaðir með sjálf- komnum tvíburum. Kí-kvaðrat próf (ein frítala) og t-próf voru notuð við samanburð hópa. Lengdar- og þyngdarstuðull (ponderal index = fæðingar- þyngd / (lengd)3* 100) var reiknaður fyrir börn- in (8). Leyfi fékkst fyrir rannsókninni hjá Siða- nefnd Landspítalans. Niðurstöður Tvíburameðgöngur voru alls 254 en tvíbura- fæðingar (meðgöngulengd 22 vikur eða meira) voru 250. Heildarfjöldi meðgangna sem voru 16 vikur eða lengri voru á sama tímabili 18.431 (22 vikur eða meira; 18.397) og heildartíðni tvíburafæðinga því 1,36% eða ein af hverjum 73 fæðingum. Af tvíburameðgöngum voru 202 (79,5%) sjálfkomnar en 52 (20,5%) tilkomnar eftir tæknifrjóvgun. Tíðni tvíburafæðinga eftir sjálf- komnaþungun var 1,11% (1:90). Fæðingar eftir glasafrjóvgun voru alls 157 og hlutfall tvíbura- fæðinga meðal þeirra 33,1%, eða þriðjungur (tafla I). Konur með glasakomna þungun voru mark- tækt eldri en hinar en ekki var munur á líkams- hæð þeirra (tafla II). Ekki var marktækur munur á reykingum kvenna með glasakomna þungun (25%) miðað við þær sem voru með sjálfkomna þungun (35,6%) (x3 = 3,71; 0,5 > P > 0,1). Meðgöngulengd var eins í báðum hópum eða um 36 vikur (tafla II). Upphaf fæðingar var oftar eðlilegt hjá konum með sjálfkomna þung- un en glasakomna þungun. Hinsvegar voru bæði gangsetning og valinn keisaraskurður al- gengari hjá konum með glasakomna þungun, þó munurinn væri ekki marktækur (tafla III). Töng eða sogklukka voru marktækt oftar not- uð í fæðingu hjá konum með glasakomna þungun en bráðir keisaraskurðir voru ekki að marki algengari hjá konum með sjálfkomna þungun (tafla IV). Glasakomnu tvíburarnir voru að meðaltali 65g léttari en sjálfkomnir tvíburar. Fæðingar- þyngd tvíbura A var að meðaltali 35g minni hjá glasakomna tvíbura A, en um 95g minni hjá glasakomna tvíbura B. Lengd við fæðingu og lengdar- og þyngdarstuðull voru eins hjá sjálf- komnum og glasakomnum tvíburum (tafla V). Af sjálfkomnum börnum voru 138 (34,1%)

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.