Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.1995, Page 48

Læknablaðið - 15.03.1995, Page 48
256 LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81 íðorðasafn Toxemia Heitið toxemia hefur verið notað í tengslum við sýkingar. Iðorðasafn lækna gefur þýðing- una blóðeitrun og þessa skil- greiningu: Það ástand að íblóði eru eiturefni sem ýmist eru mynduð ífrumum líkamans eða komin úr örverum. Grísku for- liðirnir tox-, toxi-, toxico- og toxo- eru sömu merkingar og ís- lenski orðhlutinn eitur-. Sagan segir þó að gríska orðið toxon merki bogi og af þvi sé komið heitið toxicon, sem notað var um eiturefni borin á örvarodda. Flest læknisfræðileg heiti sem byrja á tox- vísa í eitur, en af heitum sem vísa til boga má nefna toxoplasma, bogfrymil, og toxocara, bogaþráðorm. Toxin er skilgreint þannig: Efni sem framleitt er aflífveru (dýri, plöntu eða örveru) og er öðrum lífverum skaðlegt eða eitrað. Notkun hugtaksins toxemia í tengslum við sýkingar byggir á þeirri hugmynd að ýmsir sýklar framleiði eiturefni sem geti komist í blóðrás við sýkingu. Heitið toxemia hefur verið not- að þannig að það vísi til þeirrar sjúkdómsmyndar, sem fram kemur þegar eiturefni sýkla hafa komist í blóðrás. Heppi- legra gæti þó verið að þrengja merkinguna til samræmis við bacteremia, þannig að toxemia vísi einungis til þess að eiturefni séu til staðar í blóði, en ekki til þess klíníska ástands sem af slíku leiðir. Heitið toxicosis gæti tekið við því hlutverki að vísa í klíníska ástandið, sem af tox- emia leiðir. Pað yrði þá skil- greint sem: sjúklegt ástand sem stafar af eiturefnum í blóði. Blóðeitrun er gott íslenskt heiti, lækna 63 en spyrja má þá hvort það eigi betur við um toxemia eða toxi- cosis. Með tilliti til samræming- ar við þýðingar annarra heita, þar sem síðari liðurinn -emia kemur fyrir, má benda á eitur- dreyra, samanber natríum- dreyra, og eiturblæði, saman- ber hvítblæði. Hitt er svo annað mál að heitið toxemia virðist nú fremur lítið notað í tengslum við sýkingar. Rétt er að vara við læknis- fræðilegri notkun heitisins blóð- eitrun um vessaæðabólgu, lymphangitis. Hjá leikmönnum er það oft kallað blóðeitrun þegar rauð bólgustrik hafa myndast úr frá graftarkýli eða bólgu á útlimum. Vissulega get- ur slík bólga verið fyrirboði blóðeitrunar eða blóðsýkingar, en læknar ættu að temja sér fulla nákvæmni í notkun íðorða. Sjúklingar þeirra hljóta einnig að geta sætt sig við þá skýringu, að rauðu strikin tákni vessaæða- bólgu, en að blóðeitrun fylgi stundum í kjölfarið. Sepsis Sakleysisleg umfjöllunar- beiðni er nú orðin að umtals- verðu verkefni, en þetta er ein- mitt það sem íðorðasmiðir verða oft að gera, kynna sér rækilega merkingu og notkun þeirra orða og hugtaka, sem til athugunar eru, auk annarra sem þeim tengjast. Ekki er heldur nóg að treysta á orðabækur því að notkun og skilgreining fræði- hugtaka breytast gjarnan í sam- ræmi við nýja þekkingu á hverju fræðasviði. Slíkar breytingar skila sér oft seint inn í almennar orðabækur. Sepsis er einmitt eitt þeirra heita og hugtaka, sem tekin hafa verið til endurskoðunar, bæði vegna nýrrar þekkingar og eins vegna misræmis í notkun fræðiheitanna. Flett var upp í tveimur þekktum kennslubók- um í lyflæknisfræði, 19. útgáfu af Cecil frá 1992 og 13. útgáfu af Harrison frá 1994. Báðar virðast forðast að nota hugtakið septi- cemia. Cecil skilgreinir sepsis á hefðbundinn hátt þannig: að ýmsar graftarmyndandi eða aðr- ir meinvirkir sýklar, eða eitur- efni þeirra, finnist ( blóði eða vefjum. Harrison hefur hins vegar tekið upp nýja skilgrein- ingu: sepsis er ástand sem felur í sér almenn bólguviðbrögð gegn innrás sýkla. Par er það sérstak- lega tekið fram að innrás sýkla í blóðrás sé ekki óhjákvæmilegur þáttur í sepsis. Harrison bætir við hugtökunum sepsis syn- drome: ástand sem felur ísér al- menn bólguviðbrögð gegn inn- rás sýkla og líffœrabilun, og septic shock: ástand sem felur í sér almenn bólguviðbrögð gegn innrás sýkla, líffœrabilun og staðfestan lágþrýsting (hypo- tension). Þegar gluggað var í fleiri heimildir mátti finna hug- tökin: clinically significant seps- is, severe sepsis, systemic in- flammatory response syn- drome, multiple organ failure og multiple organ dysfunction syndrome. Ljóst er að umræðu um sepsis er alls ekki lokið. Jóliann Heiðar Jóhannsson

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.