Sagnir - 01.06.1997, Page 73

Sagnir - 01.06.1997, Page 73
þannig þekki jeg kvennmann; á henni gengur allt tíðablóð i hverjum straumi út um vinstri geirvörtuna.22 Þar sem landlæknir tengir tíðablóðið svo af- dráttarlaust bijóstunum, er freistandi að tengja það óhollustu móðurmjólkurinnar. En þessi orð landlæknis segja okkur þó margt um þekkingu manna á kvenlikamanum. AUar kenningar um óhollustu mjólkur- innar hafa átt greiðan aðgang að samfélagi þar sem giftar konur og mæður voru í minnihluta. Þær voru einnig sá hópur sem sjaldnast fór af bæ. Vinnukonurnar voru hins vegar hreyfanlegri, þær hafa getað borið sagnir og reynslusögur milli kvenna en voru þó sá hópurinn sem minnsta reynsluna hafði. Gera má ráð fyr- ir að þessi kenning hafi náð til allra þrepa samfélagsins, þar sem menn ýmist hröp- uðu niður samfélagsstigann eða klifu upp hann, allt eftir því hvernig áraði vegna sótta og hungurdauða. Kúamjólk Hér að framan er reynt að varpa ljósi á erfiðleika átjándu aldar kvenna við barna- oldið. Hér er því gert ráð fyrir að móður- rnjólkin hafi verið af mjög skornum skammti og erfiðleikar miklir við bijósteldið. Hvað gerir móðir þegar móðurmjólk- ína þrýtur? Hún gripur til þeirrar fæðu- tegundar sem hún telur besta. I íslenska bændaþjóðfélaginu var það sjálfgefið, hún greip til kúamjólkurinnar. Mjólkin var hins vegar gefin köld og óblönduð sem var nriður heppilegt. Aðrar mjólkurafurð- lr> rjómi, mysa og smjör bættust síðan við. Ikeyndar er ekki sjálfgefið hvaða mjólk- urafurðir urðu fyrir valinu sem fyrsta feða en móðirin gaf barni sínu það mesta °g besta sem hún kunni. En ungabarn, þ.e. innan við eins árs, lif- Ir ekki á mjólk eingöngu eins og hægt er að álíta af rannsóknum fræðimanna og ekki er alveg ljóst hve lengi þeir álíta að hún dugi barninu. Inntaka fastrar fæðu hófst á nokkuð misjöfnum tíma, á Suður- landi sem allra fýrst, á Snæfellsnesi þegar barnið var mánaðargamalt og á Norður- landi við þriggja mánaða aldurinn.23 Hve lengi móðurmjólkin er talin duga barn- inu hefur ávallt verið á reiki og þó svo settar hafi verið reglur um fasta fæðugjöf, eru það aðeins viðmiðunarreglur, þvi málið snýst einfaldlega um framboð og eftirspurn. Konan og kýrin Trú inæðra á kúamjólkina fram yfir móð- urmjólkina hefur valdið mikilli furðu og verið mörgum rannsóknarefni. Hér hefur verið lýst ýmsum orsökum sem ýta undir notkun kúamjólkurinnar. Kirsten Hastrup mannfræðingur sem rannsakað hefur or- sakir brjósteldisleysisins kemst að athyglis- verðri niðurstöðu. Hún telur Islendinga hafa þjáðst af „honour and butter compl- ex“. I stuttu máli sagt lýsir það sér á þennan veg: Cream and butter were tokens of suc- cess, and in all likelihood they became images of the most potent food item in a country struck by increasing poverty ... Foreign food habits were to be avoided, and butter gave strength to body and soul.24 Þessi kenning á við ákveðin rök að styðjast og dregur athyglina að landbúnaðinum, þ.e. rjómánum og smjörinu og þar með kúnni. I aldagömlu bændaþjóðfélagi var kýrin mælistika á auðlegð einstaklingsins og einnig grunneining verðkerfisins sem kúgildi og afurðir hennar hafa vissulega verið tákn um velsæld í gegnum aldirnar. Auk þess má benda á að kýrin hefur alltaf verið nátengd konunni, um kýrnar var hugsað og þeirra gætt í hvívetna. Þær voru auðlegð og bjargráð heimilisins, kýrin sveik ekki. Um kúna í vitund þjóðarinnar vitna ótal sögur og sagnir. Klæðnaður kvenna Óheppilegur fatnaður er einnig eitt af því sem nefnt hefur verið í umfjöllun fræði- manna. Erlendir ferðamenn höfðu þegar árið 1752 orð á þvi að konur klæddust þröngum fotum og um 1800 segja þeir beinlínis að fötin herpi að brjóstunum. Ar- ið 1846 bendir landlæknir á að margar ís- lenskar konur hefðu flatar eða innfallnar geirvörtur og að börnin ættu erfitt með að sjúga þær, þessar konur ættu að geta gefið brjóst taki þær á þolinmæðinni.25 Gert er ráð fyrir að hér sé um þröngar nærskornar treyjur að ræða, fyrirrennara peysufata- treyjunnar. Þær hafa að líkindum verið prjónaðar og svellþæfðar, likastar spenni- treyjum eða brynjum. Enginn vafi er á því að klæðnaðurinn hefur verið óhentugur og mikill sýkingavaldur. Einnig hafa einber þrengslin getað hindrað eðlilega starfsemi brjóstanna og má benda á að enn í dag eru bijóstin bundin upp eða reyrð, þ.e. vafið er sem þéttast um brjóstin, til að hindra mjólkurframleiðslu ef svo ber undir. Þessar skýringar ná þó ekki til þeirra fátæku kvenna i verbúðunum á 18. öld sem vitað er að gáfu bijóst.21' Helst er að láta sér detta í hug að fatnaður þeirra hafi á einhvern hátt verið heppilegri, ekki verið pijónaður eða þæfður,jafnvel að hann hafi verið gat- slitinn vegna fatæktar. Reifar Ekki verður á móti mælt að úrræði mæðr- anna við barnaeldið höfðu oft og tíðum hörmulegar afleiðingar, en mæður virðast þó hafa neytt þeirra úrræða sem skynsam- legust þóttu miðað við aðstæður þeirra tíma. Mæður vissu ekki betur og breyttu eins og mæður allra tíma hefðu gert. Aðbúnaður barnanna tók einnig á sig ýmsar myndir og voru reifarnar dæmi um það. Börn voru reifuð vel og rækilega en með því var hreyfigeta þeirra heft og tjáningarmöguleikar einnig. En reifarnar höfðu líka kosti, börn öðlast ákveðið ör- yggi og hlýju ef þau eru reifuð þétt og er það alþekkt ráð efþau eru vangæfí maga. Upphaf þessa siðar er óþekkt, en ákveðin sainsvörun sést þó við naflabindi, sem notað var til að vefja þétt um nafla barns við fæðingu og var vörn gegn sýkingum og einnig það að halda nafla barnsins í skorðum, svo þau fengju ekki naflaslit o.fl. Naflabindi þessi voru notuð fram á síð- ustu áratugi. Hungrað og magaveikt barn hefur því verið rórra ef það var reifað, jafnvel þó það væri illa hirt og blautt. Reifarnar má á vissan hátt túlka sem um- hyggju fyrir barninu. Gjörnýting giftu konunnar Það er ekki aðeins ungbarnadauði átjándu aldar sem athygli hefur vakið meðal fræðimanna, heldur einnig mjög Hluti af minningartöjlu um Pétur Þorsteinsson sýsluniann frá 1769. Börn vom rciftð vel og rœkilega en það hefti lircyfigetu þcirra og tjáningarmögulcika. Mcð reifunum öðluðust þau liins vcgar ákvcðið öryggi og Itlýju. - Þjóðminjasafn íslands. SAGNIR 71
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.