Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Blaðsíða 25

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Blaðsíða 25
SOFN til góða á ýmsan hátt. Samkvæmt skilgreiningu alþjóða- samtaka safnmanna (ICOM) er safn varanleg stofnun, opin almenningi, sem ekki er rekin í hagnaðarskyni, heldur í þágu þjóðfélags og framþróunar. Stofnun sem safnar áþreifanlegum heimildum um manninn og um- hverfi hans. Stofnun sem verndar þessar heimildir, stuðlar að rannsóknum á þeim, miðlar upplýsingum um þœr og hefurþœr til sýnis. Nú orðið eru gerðar ákveðnar kröfur til safna, sérstaklega þarf geymsluhúsnæði að uppfylla ákveðnar gæðakröfur, eins og áður var nefnt, skráning safngripa þarf að vera í lagi o.þ. Svo ekki sé talað um tækni og aðferðir við sýningahald sem er um- fangsmikil fræðigrein. Auk þess eiga söfnin að sinna rannsóknar- og fræðsluskyldu. Þeir sem taka að sér söfn á landsbyggðinni fá oft á sína könnu gömul hús og fom- minjar í héraðinu að auki. Söfn hér á landi eru miklu verr mönnuð en tíðkast í nágrannalöndunum. Menn verða að gera sér grein fyrir því að söfn kosta peninga. En þau geta líka skapað verðmæti sé vel á málum hald- ið, því að fyrir utan almennt menningar- og fræðslugildi eru góð söfn verulegt aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem allir vilja jú fá heim á hlað og þjóna. Er grundvöllur fyrir sérhæfingu safna? En snúum okkur aftur að söfnunarstefnunni. Er ein- hver grundvöllur fyrir sérhæfingu og verkaskiptingu milli safnanna hjá þeim sem raunverulega ráða yfir þeim, þ.e. sveitarstjómunum? Það hefur í áranna rás töluvert borið á sveitaríg í safnamálunum. Eru menn t.d. tilbúnir að gefa eða lána af ofgnótt sinni til hinna þurf- andi og vísa á næstu söfn þegar þeim er boðið eitthvað sem þeir eiga nóg af sjálfir - eða leggja sig ekki sérstak- lega eftir? Safnmenn hafa nýlega farið fram á það við þjóðminjaráð sem er æðsta yfirvald minjavörslu í land- inu að það hlutist til um að sett verði á laggimar nefnd sem móti íslenska söfnunarpólitík og senn mun koma til kasta sveitarstjómarmanna að taka þátt í þessari stefnu- mótum. Hafa sveitarstjómarmenn leitt hugann að því hvernig best er að skipuleggja minjavörsluna í þeirra héraði? Er eitthvert sérstakt minjasvið sem heppilegt væri að leggja áherslu á fyrir utan byggðarsérkenni? Er æskilegt að hafa fleiri litlar sýningar án rannsóknar- eða fræðsluskyldu eða byggðasafn sem annast alla þætti minjavörslunnar og sér um sýningar þar sem á þarf að halda? Samræmdar aðgerðir ættu að kosta minna. Skipting landsins í minjasvæöi I framhaldi af þessu viljum við vekja athygli sveitar- stjómarmanna á því að samkvæmt gildandi lögum á að skipta landinu upp í minjasvæði og á hverju svæði eiga að starfa minjaverðir á vegum Þjóðminjasafns. Þeir eiga að hafa umsjón með menningarminjum og fornleifa- vörslu, skráningu og eftirliti fomgripa og gamalla bygg- inga og vera byggðasöfnum til ráðuneytis og aðstoðar. (Stjtíð. A, nr. 98/1994. Lög um breyting á þjóðminjalög- um, nr 88/1989, sbr. lög nr. 43/1991. 3.gr.) Umræddir minjaverðir hafa hvergi verið ráðnir ennþá. Það er allra hagur að þrýst verði á um framkvæmd þessara laga sem fyrst. Með stöðum minjavarðanna skapast vonandi tæki- færi til að bæta verulega þá aðstöðu sem söfnin úti um landið hafa, t.d. til samvinnu, rannsókna og faglegrar að- stoðar. FRÁ STJÓRN SAMBANDSINS Stjórn Fasteignamats ríkisins Samkvæmt lögum nr. 51/1994 skal fjármálaráðherra skipa þrjá menn í stjóm Fasteignamats ríkisins (FMR) til fjögurra ára. Stjóm sam- bandsins tilnefnir einn þeirra, Sam- band íslenskra tryggingafélaga ann- an og fjármálaráðherra þann þriðja án tilnefningar. Stjóm sambandsins hefur nú skip- að Olaf Hilmar Sverrisson, bæjar- stjóra í Stykkishólmi, sem aðalfull- trúa í stjórnina og Magnús Karel Hannesson, oddvita Eyrarbakka- hrepps, sem varafulltrúa hans. Af hálfu Sambands íslenskra trygg- ingafélaga er Sigmar Ármannsson, framkvæmdastjóri þess, áðalmaður og Daníel Hafsteinsson tæknifræð- ingur varamaður hans. Formaður stjórnarinnar er Þórhallur Arason, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneyt- inu, og varafulltrúi hans Guðmund- ur Jóhannsson, viðskiptafræðingur í sama ráðuneyti. Stjóm FMR á samkvæmt hinum nýju lagaákvæðum að móta starf og innra skipulag stofnunarinnar og hafa eftirlit með rekstri hennar. Hún gerir tillögur að gjaldskrá stofnunar- innar sem ráðherra síðan staðfestir. Þá bætist ný málsgrein við 9. gr. laganna um skráningu og mat fast- eigna númer 94/1976 á þá lund að FMR skuli hafa eftirlit með því að sveitarfélög sinni upplýsingaskyldu sinni. í því skyni skal stofnunin halda skrár er sýni hve margar fast- eignir em metnar í einstökum sveit- arfélögum á ári hverju. Ennfremur að FMR skuli árlega senda fjár- málaráðuneytinu og félagsmála- ráðuneytinu skýrslu um matsstörf í einstökum sveitarfélögum. 87
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.