Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Blaðsíða 63

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Blaðsíða 63
ÝMISLEGT Skólafólk á varðskipunum Á sl. vori óskaði Landhelgisgæsl- an eftir samstarfi við sambandið um skipulag kynnis- og fræðsluferða fyrir unglinga með varðskipum sl. sumar. Sambandið varð við þessum tilmælum og var farin sú leið að velja skóla úr hinum ýmsu sveitar- félögum sem víðast um land og gefa þeim kost á að senda einn eða tvo nemendur úr 10. bekk grunnskóla, þ.e. á aldrinum 15-17 ára, í ferðim- ar. Samtals tóku 43 unglingar frá 23 sveitarfélögum þátt í níu ferðum, mest sex nemar í hverri ferð. Þeir skiptust þannig milli skipa að 21 var um borð í Tý, 14 um borð í Ægi og 8 um borð í Oðni. Sambandið hafði milligöngu milli Landhelgisgæslunnar og hinna ýmsu skóla við val á unglingum og var reynt að sjá um að þeir kæmu frá sem flestum stöðum. Sveitar- félögin styrkja unglingana til ferð- arinnar. Starfsþjálfun Þegar nemamir komu um borð í varðskipin var byrjað á að fara með þá í svokallaða nýliðafræðslu, þan- nig að þeim yrði kunnugt um hvem- ig standa ætti að neyðar- og örygg- isatriðum um borð. Nemunum var skipt niður á vaktir, þrír gengu sjó- vaktir, einn var á dagvakt á þilfari, einn vann í eldhúsi og einn var á vakt í vélarrúmi. Hver hópur gekk sína vakt í þrjá sólarhringa. Á hverri vakt nutu nemarnir stöðugrar til- sagnar þeirra sem stjómuðu störfum hverju sinni, svo sem stýrimanna, vélstjóra, bryta og bátsmanns. Á vakt á stjómpalli lærðu nemamir að stýra, þeir lærðu á kompás, varð- stöðu og að fylgjast með veðri og neyðarbylgjunum og fræddust um ýmis atriði varðandi siglinguna. Á dagvakt unnu nemamir við ýmiss konar viðhald á skipinu og tækjum þess. Á vélavaktinni fylgdust þeir með störfum vélstjóra og tóku þátt í hreingemingum. Á eldhúsvaktinni unnu þeir við framreiðslu, hrein- gemingar og lærðu að skræla kart- öflur í eldhúsi, svo vitnað sé í bréf Hafsteins Hafsteinssonar, forstjóra Landhelgisgæslunnar, þar sem hann þakkar sambandinu samstarfið á síðasta sumri og býður upp á áfram- haldandi samvinnu, „auk þess sem þeir kynntust almennt sjómennsku og aganum um borð“, bætir hann við í bréfi sínu. Skólafólkið kynntist með öðrum orðum öllum þeim störfum sem máli skiptir um borð í varðskipunum meðan á dvöl þeirra stóð, einnig sjóvinnu, þ.e. að hnýta hnúta og splæsa, brunavörnum, skyndihjálp og fleira. Holl uppeldisáhrif „Ætla má að dvöl þessi hafi haft holl uppeldisáhrif á þá og örvað áhuga þeirra á sjómennsku,“ segir í greinargerð Landhelgisgæslunnar um reynsluna frá síðasta sumri. „Nemamir féllu vel að umhverfínu um borð og fór vel á með þeim og skipverjum. Þeir voru áhugasamir um störf sín og féllu strax vel að allri reglu og háttum við skipsaga og buðu af sér góðan þokka. Ekki var annað að heyra en varðskips- menn hefðu haft bæði gaman og gott af veru nemanna um borð. Þessar ungu sálir lífguðu talsvert upp á lífið um borð og þótti viðvera þeirra ágætis tilbreyting frá hinu hefðbundna varðskipslífi. „Mér skilst að varðskipsmenn sjálfir hafi líka lært margt af því að takast á við uppfræðslustarfið," sagði Jón Magnússon, lögmaður Landhelgis- gæslunnar, í samtali við Sveitar- stjómarmál. Jón tók á móti hverjum nýjum hópi sem kom um borð, sýndi þeim kvikmynd og sagði þeim frá starfi Landhelgisgæslunn- ar. „Reynslan hefur orðið sú sem Sigurður Bjamason frá Vigur hafði gert sér vonir um er hann fyrir fjöl- mörgum árum fékk samþykkta á Alþingi tillögu um hliðstæða tilhög- un og nú hefur komist á - en tillaga Sigurðar á sínum tíma var aldrei framkvæmd," bætti Jón við. Af hálfu skrifstofu sambandsins annast Guðrún S. Hilmisdóttir verk- fræðingur samskipti milli skólanna og Landhelgisgæslunnar um verk- efni þetta. 1 sumar er að hennar sögn fyrirhugað að velja önnur sveitar- félög til að tilnefna þátttakendur en þau sem valin vom sl. sumar. Fjórir piltar og tvær stúlkur á gúmbáti um borö íTý. Ljósm. Landhelgisgæslan. 1 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.