Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Blaðsíða 44

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1995, Blaðsíða 44
ATVINNUMÁL Markaðs- og atvinnumálaskrifstofa Keflavíkur-Nj arðvíkur-Hafna Guðmundur Pétursson, formaður markaðs- og atvinnumálanefndar Keflavíkur-Njarðvíkur-Hafna Föstudaginn 3. febrúar var form- lega opnuð Markaðs- og atvinnu- málaskrifstofa nýja sveitarfélagsins Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna. En eins og kunnugt er þá voru þessi sveitarfélög sameinuð síðastliðið sumar. Fyrir sveitarstjómarkosningarnar síðustu voru allir stjómmálaflokkar sem buðu fram sammála því að opna skrifstofu með starfsmanni og stuðla þar með að uppbyggingu og nýsköpun í atvinnumálum. Mark- aðs- og atvinnumálanefnd hélt sinn fyrsta fund 27. júlí sl. sumar og hef- ur síðan unnið markvisst að stofn- setningu þessarar skrifstofu. Nefnd- in hefur þegar lagt fram ákveðnar hugmyndir að stefnumótun og fram- tíðarmarkmiðum í atvinnumálum fyrir nýja sveitarfélagið. Skrifstofa með jafn víðtæku starfssviði er nýmæli hér á landi, en hér sameinast aðilar vinnumarkað- arins og sveitarfélagið í baráttu fyrir betri framtíð. Helstu málaflokkar skrifstofunnar eru: 1. Stjórnarnefnd vinnumiðlunar sk\\ 9. gr. laga nr. 18/1985 í því felst m.a. skráning atvinnu- lausra, þjónusta fyrir fólk í atvinnu- leit, upplýsingamiðlun, að vera gagnabanki o.fl. Eins og er fer þessi starfsemi fram eins og áður á bæjar- skrifstofunum í Keflavík, en ákvörðun um framtíðarhúsnæði fyr- ir skrifstofuna þar sem öll starfsem- in verður á einum stað verður tekin innan skamms. 2. Uppbygging og nýsköpun í atvinnumálum Skrifstofan á að aðstoða og stuðla að uppbyggingu nýrra atvinnutæki- færa, veita ráðgjöf og þjónustu, ann- ast tengingu milli skóla og atvinnu- lífs, halda ráðstefnur, annast kynn- ingarmál og fræðslu. 3. Markaðssetning svœðisins Hér er um að ræða kynningarstarf og upplýsingaþjónustu, samvinnu við ráðuneyti, Utflutningsráð, Sam- tök iðnaðarins og aðra sem vinna að markaðsmálum, upplýsingamiðlun til fjölmiðla, ferðamál, skráningu fyrirtækja og fleira. 4. Núverandi atvinnutœkifœri Skoða þarf þau atvinnutækifæri sem fyrir eru á öllum sviðum í sam- vinnu við alla aðila. Finna þarf leið til að tryggja að við getum haldið því sem fyrir er og skoða hvort ekki séu einhver sóknarfæri þar. Oft vill gleymast í tali um nýsköpun að einnig þarf að huga að því sem fyrir er og sjá hvort betur megi gera. Markmiðin eru skýr og nú er spurning hvernig til tekst. Með stofnun skrifstofunnar var stigið stórt skref í að sameina undir eina yfirstjóm það sem fyrir var og gera kerfið skilvirkara en verið hefur. Boðleiðirnar verða styttri og einfaldari, þannig að þegar fram líð- ur og þessi skrifstofa hefur náð fót- Friöjón Einarsson, framkvæmdastjóri Markaös- og atvinnumálaskrifstofu Keflavíkur Njarövíkur-Hafna, til vinstri, og Guömundur Pétursson, formaöur markaös- og atvinnu- málanefndar, á nýju skrifstofunni. Ljósm. Víkurfréttir/Hilmar Bragi. 1 06
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.