Helgafell - 01.07.1943, Qupperneq 78
334
HELGAFELL
söfnum ríkjanna, svo lengi sem telja má nauð-
synlegt. En aftur á móti hefur höfundur komizt
í náin persónuleg kynni við Roosevelt, og er Iýs-
ing hans á skapgerð og daglegu lífi forsetans
því mjög lifandi, en ber óneitanlega nokkurn
keim af blaðamennsku. Höfundur lýsir Roose-
velt með hinni mestu samúð. Virðist forsetinn
hafa vaxið mjög í augum höfundarins við kynn-
inguna, og er ekki laust við, að hann sé dálítið
,,skotinn“ í hinum glæsilega persónuleik hans.
En þó er lýsingin raunhæf og laus við smjaður.
Samanburður sá, er hann gerir á Roosevelt og
ýmsum öðrum stórmennum sögunnar er mjög
skemmtilegur. Hann dáist að frjálslyndi hans,
hreinskilni og drengskap, og hefur mjög næman
skilning á því, að þessir eiginleikar hafi aflað
honum þeirrar takmarkalausu lýðhylli, sem hann
nýtur. Hann lýsir baráttuaðferðum forsetans á
sviði stjórnmálanna og sýnir, hversu fuljkom-
lega andstæðar þær séu aðferðum einræðisherr-
anna. í Bandaríkjunum má hver maður gagnrýna
forsetann, eins og honum sýnist, bæði í ræðu
og riti, enda hefur það ekki verið sparað. Sjálf-
um þykir honum vænt um skammir andstæðing-
anna, því að honum er það ljóst, að hann græð-
ir meira á þeim en á lofi fylgismanna sinna.
Forsetinn er ákveðinn lýðræðissinni og virðist
vera hinn harðvítugasti andstæðingur allra ólög-
mætra aðferða til að afla sér valda. Enda er
hann, samkvæmt lýsingu höfundar, þannig gerð-
ur, að hann getur prýðilega sætt sig við að
leggja niður völdin, og mundi að ýmsu leyti
telja það hamingju að losna við allt stjórnmála-
þjark. Höfundur lýsir mætavel viðhorfi Roose-
velts til auðs og upphefðar. Hann er fæddur
ríkur og hefur aldrei haft af fátækt né skorti
að segja, en þó hefur hann gerzt foringi hinna
fátæku í baráttunni gegn hinum ríku, af því
einu, að hann hefur sterka réttlætistilfinningu
og næman skilning á kjörum hinna lægri stétta,
er hann hefur kynnzt rækilega. Hann er að
miklu leyti a]inn upp í sveit, og hefur því betri
aðstöðu til að skilja bændur en margir aðrir
stjórnmálamenn í Bandaríkjunum.
Höfundi tekst mjög vel að lýsa andlegri þró-
un forsetans. Hann telur sjúkdóm Roosevelts,
lömunarveikina, sem hann fékk, er hann var
um fertugt, hafa verið harla mikilvægan fyrir
andlegan þroska hans. Baráttan gegn hinum ill-
víga sjúkdómi varð til að auka þroska hans og
gera hann að miklum stjórnmájamanni. Hann
hefur frá öndverðu talizt til flokks demókrata,
og var ákafur fylgismaður Wilsons forseta og
Þjóðabandalagsins. Barðist hann fyrir stefnu
Wilsons af hinni mestu skapfestu, þótt hann
sæi ósigur visan.
Höfundur gerir tiltölulega lítið að því að lýsa
athöfnum Roosevelts á alþjóðlegum vettvangi,
enda stendur hann auðvitað verst að vígi þar,
með því að svo mörgu er enn haldið leyndu á
því sviði. Roosevelt kom til valda um líkt leyti
og Hitler gerðist einræðisherra í Þýzkalandi.
Höfundur gerir samanburð á stjórn þeirra, við-
horfi þeirra til þjóða sinna og andlegum hæfi-
leikum, og tekst það mjög vel. Einnig lýsir
hann ágætlega ólíku viðhorfi Ameríkumanna
og Evrópumanna til hinna æðstu stjórnarvalda.
Bók þessi er mikill fengur íslenzkum lesend-
um, því að hún gefur skýra og einfalda mynd
af hinum mikla stjórnmálamanni, er hún fjallar
um. Eiga bæði þýðandi og útgefandi þakkir
skilið fyrir hana. Sl^úli ÞórSarson.
Eleonor Roosevelt: FRÚ ROOSEVELT
SEGIR FRÁ. Rvk. 1942. 282 bls. Verð;
kr. 40,00 og 52,00.
Árið 1942 var gefin út í Reykjavík sjálfsævi-
saga eiginkonu Roosevelts forseta, frú Eleonor
Roosevelt, „Frú Roosevelt segir frá“. Þýðandi
bókarinnar, Jón frá Ljárs\ógum, virðist hafa
leyst hlutverk sitt sæmilega af hendi og sömu-
leiðis útgefandinn, Egill Bjarnason.
Bók þessi virðist ekki bera neitt af miklum
fjöjda annarra rita af sömu tegund. Frúin lýsir
ævi sinni, frá því að hún man fyrst eftir sér og
fram um 1925. Bókin er skýrt og látlaust rituð,
og virðist höfundur gera sér far um að segja
sem sannast og réttast frá. Hún snýst að lang-
mestu leyti um einkalíf frúarinnar og þeirra
hjóna. Bókin er merkileg vegna þess, að hún
lýsir umhverfi Roosevelt-hjónanna. Fjöldi manna
kemur þar fyrir, og sumir þeirra hinir mestu
áhrifamenn. Frú Roosevelt er náfrænka Theo-
dors Roosevelts, er um eitt skeið var forseti
Bandaríkjanna. Vegna frændsemi sinnar við
hann og vináttu fjölskyldu hennar við marga
mikilhæfustu menn þeirra tíma, umgekkst frúin
í æsku margar voldugustu og auðugustu fjöl-
skyldur Bandaríkjanna, og gefur bókin að ýmsu
leyti góðar hugmyndir um menningarstig og
lífsviðhorf yfirstéttarinnar þar. Frú Roosevelt er
talin vera róttækari í skoðunum en maður henn-
ar, og álíta ýmsir, að hún hafi haft allmikil
áhrif á hann. Sjálfsævisaga hennar bendir þó
ekki til þess, að svo hafi verið. Hún lýsir sjálfri
sér sem mjög hlédrægri manneskju, sem þjáðzt
hafi af feimni fram eftir öllum aldri. Þegar hún
giftist, var hún ung og óreynd, en þar sem