Helgafell - 02.12.1943, Blaðsíða 12

Helgafell - 02.12.1943, Blaðsíða 12
394 HELGAFELL Kaj Munk trúði á sigurinn, og honum var það ljóst, að hann ynnist ekki nema með dirfsku og krafti. ,,Þessi þjóð er að deyja af hiki og varúð“, sagði hann einu sinni í ræðu eftir hernámið, ,,en þessi þjóð verður ekki þjóð, sem á skilið að lifa, fyrr en hún losnar við ótta sinn“. Sjálfur var Kaj Munk óttalaus maður. Þessi orð eru úr bréfi hans til kirkjumálastjórnarinnar, dagsettu í Vedersö 12. mars 1943: ,,£g leyfi mér hérmeð allravirðingarfyllst að tilkynna hinu háa ráðuneyti, að ég ætla ekki aðeins að hafa fyrirskipanir þess að engu, heldur að breyta þvert á móti þeim“. ,,Það er betra, að Danmörk bíði tjón gagnvart Þýzkalandi en gagn- vart drottni Jesú“. Sama óbeit á ofbeldi og kúgun, sem kemur fram í leikritum Kaj Munks, lýsir sér einnig í ræðu hans Jóhannes og Jesús: ..Jóhannes kom með öxi réttlætisins. Heródes sendi eftir handjárnum. Svona hefur þetta alltaf verið. Sannleikurinn hefur orðið í þjónustu sinni, en lygin hefur sverð og hlekki, og samt heldur lygin áfram að ljúga, jafnvel að sjálfri sér, og telja sér trú um, að hún sé máttugust“. Kaj Munk var meistari hins myndauðuga máls og hins djarfa máls, eins og sjá má af þessum sýnishornum úr ræðum hans. Hann talaði kjark og kraft í dönsku þjóðina á hörmungartímum hennar: ,,Þetta er það, sem okkar gamla þjóð þarfnast", sagði hann í nýársræð- unni um Krist og Danmörþu, „kraftur yngingarinnar, Guðs endurnýjandi kraftur, svo að ung þjóð stigi fram og sé samt sú gamla þjóð: verðugir synir feðranna. Fagnaðarerindið á að kenna dönsku þjóðinni að hugsa stórt. Trúið á sigur fórnarviljans, í lífi og dauða, trúið á framtíð þess að gefa sjálfan sig, trúið á Krist, — í stuttu máli: A8 hvaða gagni vœri þa<5 manninum, þótt hann eignaðist allan heiminn, ef hann bi<5i tjón á sál sinni ?“ Ég hef hér um skeið látið Kaj Munk tala með sjálfs síns orðum. Mér finnst penni minn vera máttvana og orð mín örsnauð til þess að lýsa Kaj Munk sem talsmanni sannleikans gegn þeim anda lyginnar, undanhaldsins og ranglætisins, sem í þrjú löng ár hefur reynt að eitra þjóðarsál Dana. Gegn þessum anda mannhaturs og kúgunar var hann snjallasti forvígismaður okkar, trúarhetjan, sem að dæmi Savonarola varð að fórna lífi sínu fyrir sín máttugu og bitru og eggjandi orð. Við beygjum okkur öll fyrir honum í að- dáun og auðmýkt. Fr. /e Sage de Fontenay
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.