Fréttablaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 2
22. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 VIÐSKIPTI Skíðaskálinn í Hveradölum er aftur kominn í eigu Svavars Helga- sonar eftir að félag sem keypti skál- ann í september síðastliðnum stóð ekki við greiðslur. „Þetta er leiðindamál og það er verið að rifta þessu. Ég ætla bara að reka þetta áfram þangað til annað kemur í ljós,“ segir Svavar sem hefur verið með veitingasölu í Skíðaskálan- um frá því 1995. Fram kom í Fréttablaðinu í nóvem- ber síðastliðnum að kaupendurnir, sem voru Inga Lísa Sólonsdóttir og Aron Þorsteinson, hygðu á mikla upp- byggingu við Skíðaskálann og stór- eflingu ferðaþjónustu þar á svæðinu. Frá því kaupin voru frágengin hefur verið lagt þar í ýmsar framkvæmdir, til dæmis málningarvinnu, stígagerð og ýmsa jarðvinnu. Meðal hugmynda sem settar voru fram í haust var uppbygging bað- lónsins Viking Lagoon, gerð golfvall- ar og smíði þyrlupalls fyrir útsýnis- flug. „Þessi fjárfesting er svokölluð gullnáma sem hefur verið afar van- nýtt eða legið í dvala, gullnáma sem býður í raun upp á óendanlega mögu- leika,“ sagði í viðskiptaáætlun fyrir verkefnið. Umsamið verð Skíðaskálans var 98,5 milljónir króna. Af þeirri upphæð greiddu Aron og Inga Lísa 9 milljónir út og áttu að borga 6,5 milljónir króna 7. janúar síðastliðinn en gerðu ekki. Þess utan áttu þau að greiða 650 þús- und krónur mánaðarlega af 82 millj- óna króna láni sem hvíldi á fasteign- inni. „Mér þykir þetta mál allt mjög leitt. Vegna þess hvernig hlutirnir þróuð- ust var ekki hægt að halda verk- efninu áfram,“ segir Aron Þorsteins- son aðspurður um málið. Í Fréttablaðinu í nóvember kom fram að Aron og Inga Lísa væru hjón. Aron segir þetta rangt. Þau Inga hafi átt í sambandi um fárra mán- aða skeið frá því um mitt síð- asta sumar en því hafi verið lokið áður en sagt var frá málinu í Fréttablaðinu. Sjálfur kveðst Aron hafa afsalað sér hlut sínum í félaginu þegar áðurnefnda greiðslu átti að inna af hendi í byrjun janúar. „Svavar Helgason hefur staðið vel við allt sitt og ég óska honum alls hins besta,“ segir Aron Þor- steinsson. gar@frettabladid.is Skíðaskálinn aftur í hendur fyrri eiganda Sölu á Skíðaskálanum í Hveradölum er rift og hann skráður aftur á fyrri eiganda eftir að kaupandinn stóð ekki við umsamdar greiðslur. Þetta er leiðindamál, segir Svavar Helgason, sem hyggst því halda áfram veitingarekstri sínum í Hveradölum. SKÍÐASKÁLINN Stórhuga áætlanir voru um mikla uppbyggingu ferðaþjónustu í Hveradölum en þær eru nú úr sögunni að sinni. FRÉTTABLAÐIÐ 23. NÓVEMBER 2012 ÞJÓNUSTA Hjónin Inga Lísa Sólons-dóttir og Aron Þorsteinsson, sem keypt hafa hinn fornfræga Skíða-skála í Hveradölum af Svavari Helgasyni, áforma þar stóraukin umsvif með verkefninu Skíðaskál-inn í Hveradölum – Luxury resort.Í viðskiptaáætlun kemur fram að úttekt á rekstri og arðsemi Skíðaskálans lofi afar góðu. „Þessi fjárfesting er svokölluð gullnáma sem hefur verið afar vannýtt eða legið í dvala, gullnáma sem býður í raun upp á óendanlega mögu-leika,“ segir í áætluninni. Skapa á mun meiri tekjur en nú er með því að hafa opið allt árið. Jólahlað-borð hafa hingað til verið burðar-ás rekstursins.Inga Lísa segir ætlunina að bjóða heim göngufólki og náttúru-unnendum með stórbættri aðstöðu og lagfæringu á stígakerfi. Aðgangur verður að þremur heitum pottum sem nýta mikinn jarðhita á svæðinu. Laða á að tón-listarmenn jafnt á sumrum sem vetrum, stórauka verslun á staðn-um með sölu á alls kyns sérvöru og efna til útimarkaða.Ekki síst á að bjóða veitingar árið um kring og leigja út mis-munandi sali skálans fyrir alls kyns viðburði. Þá er ætlunin að fá skólabörn í fræðsluferðir og tengja greiðasöluna við gestamót-töku Hellisheiðarvirkjunar sem er þar skammt frá. Meðal annarra hugmynda Ingu og Arons er síðan uppbygging baðlónsins Viking Lagoon, gerð golfvallar og smíði þyrlupalls fyrir útsýnisflug.„Guðdómlegt umhverfi í faðmi fjalla veitir sérstöðu lSkíð sem heitir leir- og gufuhverir og aðrar perlur íslenskrar náttúru veita Skíðaskálanum þá réttmætu upphefð að geta talist veislu- og náttúruparadís,“ segir í viðskipta-áætluninni sem fjárfestar fá nú til skoðunar. Áformin hafa verið kynnt fyrir bæði Orkuveitu Reykjavíkur semleigir Skíð ká Svavar Helgason mun ljúka jóla-hlaðborðahaldinu sem nú stendur yfir og afhenda Ingu og Aroni Skíðaskálann í janúar. Inga Lísa segir þau hjónin sjálf munu búa á staðnum sem gestgjafar.„Margir líta svo á að við séum að endurvekja Eden í nútíma-legri mynd. Þetta verður okkur draumaveröld,“ segir Inga Lísa. „Hvað er betra en sunnudagsbíl-túrar, útivist og eðalveisluhöld í flottasta kastala landsins? Hvera-dalir er staður kærleiks og menn-ingar, hér endurskrif ði HL Markaðstorg(Viðbótarbílastæði) 46 bílastæði Búningsklefar Viking lagoon Heitir pottar Glerskáli Skíðaskálinn Þyrlupallur Telja sig hafa keypt vannýtta gullnámuNýir eigendur Skíðaskálans í Hveradölum boða mikla uppbyggingu og stóraukin umsvif í veitinga- og ferðaþjónustu. Þeir segja staðinn mjög vannýttan og bjóða upp á óendanlega möguleika. Verður okkar draumaveröld, segir annar eigandinn. SKÍÐASKÁLINN Í HVERADÖLUM Framtíðarskipulag Skíðaskálans gerir meðal annars ráð fyrir baðlóni og búningsaðstöðu. TEIKNING/MAGNÚS JENSSON ARKITEKTMargir líta svo á að við séum að endurvekja Eden í nútímalegri mynd. Inga Lísa Sólonsdóttir eigandi Skíðaskálans í Hveradölum inu sagði am- ngið að el - þj ur a: í l j í landinu í um sex vikur. - sv f þessum þjófnaði. Að auki var tveimur ljóskösturum sem lýstu upp tré í gilinu stolið. - þj DALVÍK Meira fé í Fiskidaginn mikla Styrkur Dalvíkurbæjar til Fiskidagsins mikla var hækkaður í fyrra um eina og hálfa milljón króna og nam 3,5 milljónum. Bærinn hyggst styrkja viðburðinn beint um sömu upphæð á þessu ári. HVERAGERÐI Eden undir gleri Bæjarstjóra Hveragerðis hefur verið falið að ræða við Árna Björn Guðjóns- son, sem óskar eftir lóð í bænum fyrir ferðamannamiðstöð með sundlaugar- garði og Edengörðum sem eiga að vera undir gleri. SUÐUR-AFRÍKA, AP Hilton Botha, sem stjórnað hefur lögreglu- rannsókn í máli Ólympíuhlaup- arans Oscars Pistorius, hefur verið látinn hætta afskiptum af málinu. Vinesh Moonoo heitir sá sem tekur við af honum. Botha hefur, ásamt tveimur öðrum lögreglumönnum, á ný verið ákærður fyrir sjö morð- tilraunir. Ákærurnar á hendur þeim höfðu áður verið felldar niður. Árið 2011 skutu Botha og félagar hans á leigubifreið, sem í voru sjö manns. Að sögn suður- afrískra fjölmiðla voru þeir að elta mann sem sakaður hafði verið um að hafa myrt og sund- urlimað konu. Þessi fortíð lögreglumannsins og margvísleg mistök sem hann hefur viðurkennt að hafa gert við rannsóknina á máli Pistor- ius hafa orðið til þess að grafa undan málflutningi saksóknara í málinu. Dómari hefur vegna þessa enn á ný frestað því að kveða upp úrskurð um hvort Pistorius verði látinn laus gegn tryggingu. Hvort svo verður ræðst þó væntanlega í dag. - gb Úrskurður um tryggingarlausn Oscars Pistorius dregst enn á langinn: Botha látinn hætta afskiptum HILTON BOTHA Rannsóknar- lögreglumaður ákærður fyrir sjö morð tilraunir. NORDICPHOTOS/AFP Karen, var þetta algjör steypa? „Nei þetta er bara gaman þegar maður er komin á steypirinn.“ Karen Kjartansdóttur var boðið í óvænt steypiboð, í tilefni þess að hún á von á sínu fyrsta barni. Slík boð eru að ryðja sér til rúms hér á landi en er nokkuð gömul hefð í Bandaríkjunum þar sem þau kallast „baby shower“. DANMÖRK Einungis fæst botn í lítinn hluta af árásarmálum sem tengjast glæpagengjum í Dan- mörku. Þetta segir í skýrslu sem var kynnt á danska þinginu og þarlendir miðlar greina frá. Alls særðust 23 og einn lést í átján skot- eða hnífaárásum milli gengjanna í fyrra, en nú eru einungis sjö þeirra upplýst. Lögregla segir að ástæðan sé sú að gengjameðlimir aðstoði ekkert við rannsókn mála, heldur þurfi að reiða sig á ótengd vitni og sönnunargögn á vettvangi. - þj Lögreglan í Danmörku: Fær ekki botn í gengjaglæpina ALÞINGI Sigurður Ingi Þórðarson, pilturinn sem fulltrúar FBI-komu hingað til lands að ræða við sumarið 2011, mætti í fylgd lífvarðar og sálgæslumanns á nefndasvið Alþingis í gærmorgun til að gefa alls- herjar- og menntamálanefnd skýrslu um málið. Björgvin G. Sigurðsson, formaður nefndarinnar, sagði í samtali við Vísi í gærmorgun að skýrsla Sigurðar varpaði enn skýrara ljósi á það að alríkisfulltrúarnir hefðu sannarlega verið að rannsaka Wikileaks- samtökin hér á landi. Hann gat þó ekki farið út í smáatriði þar sem fundurinn var lokaður. Sigurður vildi ekki tjá sig við fjölmiðla að loknum fundinum. - sh FBI-pilturinn gaf allsherjarnefnd skýrslu: Mætti með lífvörð FÁMÁLL Sigurður Ingi vildi ekki tjá sig við fjölmiðla að fundinum loknum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ALÞINGI Þór Saari, þingmað- ur Hreyfingarinnar, íhugar enn að bera fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina ef frumvarp að nýrri stjórnarskrá kemst ekki til afgreiðslu á þinginu. „Ég er ekkert ákveðinn í því, en það er alltaf sá möguleiki í stöðunni,“ segir Þór. Hann von- ist til þess að stjórnvöldum takist að klára málið. „Þau virðast hafa brett upp ermarnar svolítið síðan og útlitið orðið betra en það var.“ Ef svo fer hins vegar ekki þurfi hann að fá skýringar á því og verði þær ófullnægjandi kunni vantraust að verða lagt fram. Spurður hvort hann sé að hóta stjórnarliðum segir hann: „Þetta er engin hótun, þetta er bara staða sem getur komið upp.“ Þór lagði fram vantrausts tillögu síðdegis á miðvikudag en dró hana til baka í gærmorgun, eftir að í ljós komu formgallar á tillögunni, auk þess sem Þór var ósáttur við að stjórnarliðar hygðust koma málinu á dagskrá strax í gær, en ekki bíða til þriðjudags eins og Þór hafði lagt til. „Þetta var sambland af ýmsu – þau voru búin að telja hausa og töldu sig vita að tillagan yrði felld. Með því að draga hana til baka hef ég möguleika á að leggja hana fram aftur.“ Jóhanna Sigurð- ardóttir forsætis- ráðherra sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að tillaga Þórs hefði verið vond og heimskuleg og ekki til þess fallin að vinna stjórnarskrármálinu framgang. Hefði hún verið samþykkt hefði stjórnarskrármálið verið ónýtt. „Hún verður bara að eiga það við sig,“ segir Þór. „Mín skoðun er sú að málið sé nánast ónýtt hvort eð er.“ - sh „Þetta er engin hótun, þetta er bara staða sem getur komið upp,“ segir Þór Saari: Íhugar að leggja vantraustið fram aftur ÞÓR SAARI SPURNING DAGSINS Fermingartilboðin hafin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.