Fréttablaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 44
22. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 24 „Í þessum verkum er ég meðal annars að velta fyrir mér afstæði hluta, tíma og rúmi,“ segir Sirra Sigrún Sigurð- ardóttir en sýning hennar Brot verð- ur opnuð í Hafnarborg á morgun. „Ég vann verkin inn í rýmið hér, Sverris- sal í Hafnarborg, og eitt verkið er til dæmis teiknað beint á vegginn,“ segir Sirra sem sýnir bæði veggmyndir, ljós- myndir og skúlptúra á sýningunni. „Ég er að vinna með breytileika, það hvern- ig hlutirnir þróast, og langar meðal annars að sýna að þó að hlutir virðist standa í stað er alltaf einhver breyting í gangi. Ég sýni til dæmis hreyfiskúlp- túr sem fangar ljósið úr umhverfinu, þannig að hann breytist eftir því hvar maður staðsetur sig,“ segir Sirra Sig- rún og bendir á að skúlptúrinn minni á skífurit skoðanakannana, en í þessu til- viki geta áhorfendur valið sér sjónar- horn og þar með niðurstöðu. „Sirra Sig- rún vinnur í sýningunni með líkamlega og sjónræna skynjun áhorfandans um leið og hún veltir fyrir sér spurning- um um stöðu listarinnar í samfélaginu, samband blekkingar og raunveruleika og upplifun okkar af heiminum. Hún sækir efnivið sinn meðal annars í tölu- legar upplýsingar, vísindakenningar og rannsóknir,“ eins og segir í fréttatil- kynningu. Sirra segir sýninguna snúast að hluta til um þekkingarleit. „Ég er að kinka kolli til þeirra sem hafa farið á undan í þekk- ingarleit og upplýsingaöflun. Verkin hafa ýmsar stærðfræðitengingar en ég vinn líka með skynjun áhorfendanna.“ Sýning Sirru Sigrúnar verður í Sverris sal Hafnarborgar og stendur til 17. mars. - sbt Það er alltaf einhver breyting Sirra Sigrún Sigurðardóttir vinnur með afstæði hlutanna í sýningunni Brot í Hafnarborg. Sirra Sigrún Sigurðardóttir (f. 1977) lauk námi við Listaháskóla Íslands árið 2001. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og erlendis, meðal annars í Listasafni Reykjavíkur og Tate Modern í London. Sirra Sigrún er einn stofnenda og eigenda sýningarstaðarins Kling&Bang í Reykjavík. Þar hefur hún skipulagt fjölda sýninga og listviðburða með þátttöku innlendra og erlendra listamanna. Jafnframt því að vera í hópi áhrifamikilla listamanna hér á landi og taka þátt í fjölda sýninga stundaði hún nám í listfræði við Háskóla Íslands 2003-2004. Sirra Sigrún leggur nú stund á framhaldsnám við School of Visual Arts í New York og hlaut nýlega styrk úr sjóði Guðmundu Andrésdóttur, en sjóðurinn styrkir unga og efnilega myndlistarmenn til náms. Í desember síðastliðnum var Sirra Sigrún á meðal 24 alþjóðlegra listamanna sem listtímaritið Modern Painters útnefndi sérstaklega sem listamenn sem vert er að fylgjast með á komandi árum. Í framhaldsnámi í New York SIRRA Kinkar kolli til þeirra sem farið hafa á undan í þekkingarleit og upplýsingaöflun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2013 Listasmiðja 14.00 Boðið verður upp á listasmiðju í Ásmundarsafni fyrir krakka, 6 ára og eldri. Emma Lindahl og Helena Hansdóttir Aspelund leiða smiðjuna og allir eru velkomnir. Áhugasamir eru hvattir til að mæta tímanlega til að tryggja sér sæti. Sýningar 17.00 Sýning á verkum Kristjáns Eld- járns verður opnuð í Gallerí Fold. 17.00 Nacho cheese, sýning Hildi- gunnar Birgisdóttur og Önnu Hrundar Másdóttur opnuð í Kling & Bang gallerí, Hverfisgötu. Upplestur 18.00 Tryggvi Þór Herbertsson les fjór- tánda Passíusálminn í Grafarvogskirkju í tilefni föstunnar. Tónlist 12.00 Tríó Sunnu Gunnlaugs, skipað Þorgrími Jónssyni á kontrabassa, Scott McLemore á trommur og Sunnu á píanó, leikur á hádegistónleikum Háteigskirkju. Almennt miðaverð er kr. 1.000. 21.00 Afmælistónleikar verða haldnir á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8, fyrir Júlíus Agnarsson, hljóðmann Stuð- manna til margra ára. Meðal þeirra sem fram koma eru Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson, Þórður Árnason, Ásgeir Óskarsson, Tómas Tómasson, Andrea Gylfadóttir, Eðvarð Lárusson, Magnús Einarsson, Karl Pétur Smith og fleiri. Aðgangur er ókeypis. 21.00 Boðið verður upp á alvöru þungarokkstónleika þegar Champions of Death mæta á Ellefuna. Þeim til liðsinnis verður hafnfirska hljómsveitin Guns of Narnia. Aðgangur er ókeypis. 21.00 Hljómsveitin Hjaltalín heldur tón- leika í Iðnó. Snorri Helgason og hljóm- sveit hitar upp. Miðaverð er kr. 2.000. 22.00 Dusty Miller heldur tónleika á Café Rosenberg. Aðgangur er kr. 1.000 og enginn posi verður á staðnum. 22.00 Ljótu hálfvitarnir spila á Græna hattinum, Akureyri. Boðið verður upp á klassískar krásir í bland við efni af væntanlegri plötu. Forsala miða er í Eymundsson á Akureyri og á midi.is. 22.00 Dj Major Disco & Commander Funk spila í aðalrými Faktorý. 23.00 Hljómsveitin NOLO mætir á Dillon og spilar nýtt og gamalt efni í bland. Aðgangur er ókeypis. Fyrirlestrar 20.00 Mannfræðifélag Íslands stendur fyrir fyrirlestrinum Gamla (berhátt- aða) bændasamfélagið: af prjónuðum smokkum, hrafnseistum og öðrum kynlífs- tengdum munum fyrri alda. Það er Eiríkur Valdimarsson MA í þjóðfræði sem flytur fyrirlesturinn sem fer fram í Reykjavík- urAkademíunni, Hringbraut 121, 4. hæð. 20.00 Gylfi Aðalsteinsson heldur fyrir- lestur um skammtaeðlisfræði og heims- mynd trúarbragða í húsi Lífspekifélags- ins að Ingólfsstræti 22. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Save the Children á Íslandi Náttúruvá á Íslandi Eldgos og jarðskjálftar H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N h a s k o l a u t g a f a n . h i . i s Náttúruvá á Íslandi er fræðirit fyrir almenning þar sem helstu sérfræðingar landsins fjalla um eldgos og jarðskjálfta. Bæði er greint frá eðli þessara náttúru fyrirbæra og þeirri vá sem af þeim stafar. Sagt er frá nýjustu rann sókn - um í jarðvísindum og jarðskjálftafræði sem tengjast Íslandi. Er bókin þannig einstakt yfirlit yfir þekkingu okkar á þessum þáttum íslenskrar náttúru. Bókin er tæpar 800 bls. í stóru broti og í henni eru nærri 1000 ljósmyndir, teikn ingar og skýringamyndir. Náttúruvá á Íslandi er án efa eitt ítar legasta og efnismesta rit um eldvirkni og jarðskjálfta á Íslandi sem gefið hefur verið út. NÁTTÚRUVÁ Á ÍSLANDI ELDGOS OG JARÐSKJÁLFTAR T I LVA L I N Ú T S K R I F TA R G J Ö F Sunnudaginn 24. febrúar kl. 17:00 Rósalind Gísladóttir og Helga Bryndís Magnúsdóttir flytja aríur eftir Verdi, Mascagni og Rossini ásamt lögum úr söngleikjum eftir Kern, Loewe og Gershwin. SÖNGUR RÓSALINDAR TÍBRÁ TÖFRATÓNAR Í www.salurinn.is MENNING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.