Fréttablaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 6
22. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hvaða tónlistarmaður hlaut fl est verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaun- unum? 2. Hvaða þingmaður hefur boðið sig fram til varaformennsku í Vinstri grænum? 3. Hvaða íslenski fjölmiðlamaður mun lýsa Óskarsverðlaununum á sunnudag? SVÖR 1. Ásgeir Trausti 2. Björn Valur Gíslason 3. Freyr Gígja Gunnarsson SAMFÉLAGSMÁL Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var formlega festur í lög á Alþingi á miðvikudag, tæpum tuttugu árum eftir að hann var fullgiltur hér á landi þann 28. október árið 1992. Samningurinn var undirritaður af hálfu Íslands þann 26. janúar árið 1990 og öðlað- ist gildi hér á landi 27. nóvember 1992. „Þetta er mikil réttarbót fyrir börn á Íslandi,“ segir Erna Reynisdóttir, fram- kvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Sáttmálinn hafi verið álitinn leiðarljós samtakanna sem hafa lengi barist fyrir lögfestingu hans hér á landi. „Það er því mikið fagnaðarefni að nú sé Barnasáttmálinn loksins orðinn löggiltur og að hægt sé að beita ákvæðum hans fyrir íslenskum dómstólum sem settum lögum.“ Alþjóðasamtök Barnaheilla, Save the Children, sendu frá sér tilkynningu vegna málsins í gær þar sem fram kom að sam- tökin hefðu frá upphafi barist ötullega fyrir réttindum barna og segja mætti að saga samtakanna væri samofin sögu Barnasátt- málans og baráttu fyrir réttindum barna. Þá sendi Unicef á Íslandi frá sér tilkynn- ingu í gær þar sem áfanganum er fagnað og þingmönnum færðar þakkir. Samtökin segja að um tímamót sé að ræða. - sv Barnaheill á Íslandi fagna lögfestingu Alþingis á Barnasáttmála SÞ í vikunni: Loks festur í lög eftir tuttugu ár RÉTTINDI ÞEIRRA FEST Í LÖG Alþingi lögfesti Barnasátt- mála SÞ í vikunni, tæpum tuttugu árum eftir að hann tók formlega gildi hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Athygli er vakin á að á skattur.is er boðið upp á sjálfsafgreiðslu og á rsk.is er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um skattamál. Lokað í dag ! Föstudaginn 22. febrúar er lokað hjá ríkisskattstjóra Fá meiri aðstoð ef börnin eru rík 1 DANMÖRK Aldraðir í Danmörku sem eiga rík börn fá meiri heimilis aðstoð en aldraðir sem eiga tekjulág börn. Umfang aðstoðarinnar er óháð tekjunum sem aldraðir höfðu á meðan þeir voru sjálfir á vinnumarkaði. Þetta kemur fram í frétt Politiken um könnun dönsku hagstofunnar. Tine Rostgaard, prófessor við Álaborgarháskóla, telur mögulegt að ríku börnin séu með meiri menntun og eigi þess vegna auðveldara með að eiga við kerfið. Lögreglan notar hrákahettu 2 NOREGUR Norska lögreglan er orðið þreytt á lögbrjótum sem hrækja á hana og ætlar þess vegna að setja sérstaka hettu á þá. Haft er eftir lögreglunni á vef Aftenposten að hettan sé hættulaus. Árið 2006 lést maður sem sett hafði verið hetta á og var þá hætt að nota þær. Hart deilt um sýknudóm 3 SVÍÞJÓÐ Harðar umræður eru nú í Svíþjóð í kjölfar dóms hof- réttar yfir manni sem stungið hafði fingrum sínum upp í leggöng unn- ustu sinnar í þeim tilgangi að kanna hvort hún hefði verið ótrú, eins og hann hélt fram. Maðurinn hafði um langt skeið hótað unnustu sinni og barið hana. Undirréttur dæmdi manninn í tveggja ára og átta mánaða fangelsi, meðal annars fyrir nauðgun. Hof- réttur taldi málið ekki vera kynferðis- brot þótt maðurinn hefði brotið gegn kynhelgi konunnar. Tilgangur sak- bornings hefði ekki verið kynferðis- legur. Hofréttur dæmdi manninn í 14 mánaða fangelsi. VEISTU SVARIÐ? NORÐURLÖND 1 2 3 STJÓRNMÁL Sjálfstæðisflokkurinn hyggst, komist hann til valda í vor, veita sérstakan skattaafslátt vegna afborgana fólks af lánum til íbúða- kaupa. Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, sagði í setningarræðu sinni á landsfundi flokksins í gær að þetta yrði gert til að létta greiðslu- byrði og auðvelda fjölskyldum að lækka húsnæðislán sín. „Og við munum nýta skattkerf- ið til að hjálpa fólki að lækka hús- næðislán sín,“ sagði hann í ræðunni. „Skattaafsláttur er í dag veittur til að leggja fyrir í séreignarsparnað. Ég vil veita þeim sem frekar kjósa að greiða inn á húsnæðislánin sín þennan sama afslátt – varanlega. Það mun létta áhyggjum af fjöl- mörgum um hver mánaðamót.“ Þá talaði Bjarni aftur fyrir svo- kallaðri lyklaleið. Ef skuldari sjái Mun veita eigendum húsnæðis skattaafslátt Formaður Sjálfstæðisflokksins boðar skattaafslátt til handa þeim sem borga af húsnæðislánum sínum. Hann talaði aftur fyrir lyklaleiðinni svokölluðu í setningar- ræðu sinni á landsfundi flokksins og lofaði jöfnu hlutfalli kynja í ráðherraliðinu. „Ég vona að þið virðið mér það til betri vegar að ég segi frá eigin brjósti: Ef dugandi lækna og hjúkrunarfólks hefði ekki notið við á Landspítalanum hefði ég getað misst bæði konu og barn fyrir rúmu ári,“ sagði Bjarni þegar hann ræddi stöðuna í heilbrigðiskerfinu í setningarræðunni í gær. Bjarni eignaðist son í september 2011. Hann sagði nauðsynlegt að forgangsraða upp á nýtt til að geta tryggt öryggi og aðgengi að heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Hefði getað misst bæði konu og barn KLAPPAÐ FYRIR FORMANNI Bjarni Benedikts- son, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, talaði fyrir sérstökum skatta- afslátti vegna afborgana fólks af íbúðalánum á landsfundinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI engan veginn fært að standa undir rekstri húsnæðis síns eigi „honum að vera heimilt að skila lyklunum og losna undan skuldum sínum, án þess að það leiði til gjaldþrots“. Bjarni vék að jafnréttismálum í ræðu sinni og sagði að kæmist flokkurinn í stjórn mundi hann „að sjálfsögðu gæta þess að hlutur karla og kvenna úr okkar röðum verði jafn þegar kemur að ríkisstjórnar- myndum“. Þetta er nokkur stefnu- breyting frá því sem var þegar Sjálfstæðisflokkurinn sat síðast við stjórnvölinn. Þá voru fimm af sex ráðherrum flokksins karlar. Landsfundinum lýkur á sunnu- daginn, þegar formaður og varafor- maður verða kjörnir. Bjarni Bene- diktsson hefur gefið kost á sér til áframhaldandi setu á formanns- stóli og Hanna Birna Kristjánsdótt- ir hefur boðið sig fram í varafor- mannsembættið. stigur@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.