Fréttablaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 32
FRÉTTABLAÐIÐ Af þreying, heilsa, fegurð og hamingja, helgarmaturinn og spjörunum úr. 10 • LÍFIÐ 22. FEBRÚAR 2013 Í dag eyða börn meiri tíma fyrir framan tölvur og sjón- varp á kostnað útiveru. Þau þurfa að hreyfa sig reglu- lega til að viðhalda heilbrigð- um vexti og þroska auk þess sem hreyfing eykur andlega og lík- amlega hreysti þeirra. Foreldrar eru fyrirmyndir barna sinna og með því að stunda reglulega úti- vist með börnunum stuðlum við að heilbrigði þeirra og aukum lík- urnar á að útivist verði hluti af þeirra lífsstíl síðar meir. Nú er helgi fram undan og margir grunnskólar í vetrarfríi. Því er kjörið að skipuleggja ein- hverja skemmtilega afþreyingu með barninu. Í Reykjavík og ná- grenni er margt í boði fyrir fjöl- skyldufólk og hér eru nokkrar hugmyndir: Fjöruferð er alltaf vinsæl hjá börnum. Þau gleyma sér auðveld- lega við að vaða eða leita að fjár- sjóði fjörunnar. Nálægðin við hafið og friðsældin hefur róandi áhrif á hugann. Gott er að taka með stígvél og regngalla eða jafn- vel vöðlur ef þær eru til á heim- ilinu. Einnig getur verið sniðugt að taka með poka eða ílát fyrir skeljar, steina eða annað áhuga- vert í fjörunni. Stækkunargler, kíkir eða háfur getur gert ferðina eftirminnilegri og ekki gleyma að taka með nesti. Það eru margar fjörur í Reykjavík og nágrenni en það er ákveðinn sjarmi við fjör- una hjá Gróttu og Álftanesströnd. Menningarferð í miðborg Reykjavíkur getur verið spenn- andi. Börnum þykir alltaf gaman að taka strætó og því upplagt að skilja bílinn eftir heima. Það er skemmtileg upplifun fyrir barn að fá að fara upp í Hallgríms- kirkjuturn og horfa yfir Reykja- vík, jafnvel nefna litina á húsþök- unum fyrir þau yngstu. Skammt frá kirkjunni er Listasafn Ein- ars Jónssonar en þar er falleg- ur styttugarður þar sem hægt er að skoða stytturnar með barninu. Síðan er hægt að rölta niður Skólavörðustíginn með viðkomu í Bókabúð Máls og menningar en þar er góð barnadeild á neðstu hæð. Upplagt er að enda ferðina á kaffihúsi og hlýja sér á heitu kakói. Fyrir þau sem hafa áhuga á myndlist verður vinnusmiðja á sunnudaginn fyrir börn 9 ára og eldri í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur kl. 14-16. Laugardalurinn býður upp á margvíslega afþreyingu fyrir fjölskyldufólk. Þar er skemmti- legt leiksvæði með ævintýraleg- um ormi sem börn geta prílað á. Lítill skógur er við leiksvæð- ið þar sem hægt er að fara í felu- leik. Í Fjölskyldu- og húsdýra- garðinum eru nýfæddir grísir sem gleðja lítil hjörtu. Ásmund- arsafn er skemmtilegt safn sem höfðar til barna. Það er rétt við Laugardalinn. Úti er fallegur höggmyndagarður og það er löng hefð fyrir því að leyfa börnum að klifra á styttum í garðinum, fyrir utan þær styttur sem eru hvítar og lægri en mannshæð. Á föstudaginn er vinnusmiðja í Ás- mundarsafni fyrir 6 ára og eldri kl. 14-16. Aðalsafn Borgarbókasafns er með barnadagskrá alla sunnu- daga kl. 15. Á safninu er mjög góð barnadeild á 2. hæð þar sem gestir geta látið fara vel um sig með bók. Á hæðinni er einnig skemmtilegt leikherbergi með búningum fyrir börn. Sunnudag- inn 24. febrúar verður skugga- leikhússmiðja þar sem myndlist og leikhúsi verður fléttað saman. Fjölskyldan ætti því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi um helgina og notið þess að vera saman. Eftir: Láru G. Sigurðardóttur lækni og Sigríði A. Sigurðardóttur hjúkrun- arfræðing, höfunda bókarinnar Útivist og afþreying fyrir börn og heimasíð- unnar www.fyrirborn.is. AFÞREYING HELGIN MEÐ BARNINU Hver man ekki eftir því úr æsku að hafa komið inn rjóður í kinnum og glaður eftir góða útiveru, sest niður við eldhúsborðið með heitt ilmandi kakó og átt notalegt spjall við sína nánustu? Nú eru breyttir tímar. VERULEIKI FRAMHALDSSAGA SAGA AF VERU, RAUNUM HENNAR OG HUGLEIÐINGUM Anna Rún Frímannsdóttir íslenskufræðingur og rithöfundur skrifar Ég er bara ogguponsu væmin og glaðvær 11 ára stelpuskotta sem finnst fátt eðlilegra en að borða 17 vöfflur í einu, allar með mínu eigin heimatilbúna sultutaui, sofa á gólfinu með vettlinga á tánum og borða hafragraut í kvöldmat. Þetta flokkast kannski allt undir það að vera öðruvísi. Flokkast! Af hverju þarf að flokka allt og alla? Þessi er lítill, þessi er feitur, þessi fer í vitlausa flokkinn því hann er ekki nógu klár, þessi fer í ofvirka flokkinn því hann gengur á eitt fjall í viku … flokk- ar, flokkar, flokkar! Það er svolítið þreytandi að hugsa um alla þessa flokka. Mamma og pabbi eru til dæmis flokksbundin Framsóknar- flokknum en foreldrar Pálmars, besta vinar míns, eru heiðblá eins og pabbi kallar það. Heiðblá, sem þýðir að þau kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Svo er rifist um pólitíkina í öllum boðum sem ég fer í. Ohhh, það er svo leiðinlegt! Mér leiðist pólitík. Enda heitir hún TÍK. Það hlýtur að vera ástæða fyrir því. Pabbi keyrir til dæmis um á fallegum fólksbíl og pirrar sig svo á jeppaeigendum sem þykjast eiga vegi landsins, svo ekki sé talað um hjólhýsa- og fellihýsafólkið. Það er líka í flokkum. Jeppaflokkurinn, hjólhýsa- og fellihýsaflokkurinn, vélsleðaflokkurinn og svo „liðið“ sem á 2-3 bíla. Þetta skilur hann pabbi ekki. Hann og mamma eru pínulít- ið upptekin af því að flokka allt og alla. Svona er þetta fullorðna fólk. Svo verðum við börnin alveg eins á einhverjum tímapunkti. Við börnin endurspeglum foreldra okkar en ég ætla að gera allt sem í mínu valdi stendur til að komast hjá því að verða FLOKKARI. Annars gæti ég orðið góður „umhverfisvænaflokkari“ en það eru þeir sem flokka allt ruslið sitt og eru með grænar, bláar og alls kyns litar ruslafötur fyrir utan húsið sitt. Mamma kallar það stílbrot að skreyta lóðir húsanna með þessum ferlíkjum og leggur sig því fram við að flokka ekki rusl- ið okkar, bara út af útliti ferlíkjanna. „Þvílík endemis vitleysa og fífla- gangur í þér, kona“, hvæsir þá amma Alvhild sem flokkar allt ruslið sitt og það í ræmur eins og hún orðar það. Amma Alvhild hefur nefni- lega áhyggjur af því að við séum að ganga fram af jörðinni okkar með öllu þessu rusli sem við hendum. Ég er sammála henni, aumingja jörð- in okkar er fljótandi í rusli hér og þar og sjórinn er mengaður af alls kyns úrgangi sem mig hryllir við að hugsa um. Ef hvert og eitt einasta heimili myndi hugsa aðeins um ruslið sitt og flokka það, þó ekki væri nema pappír og dósir, gerði það strax gagn. Það er ég hundviss um, heilmikið gagn. Ég set þetta á listann minn yfir allt það sem ég ætla að gera í framtíðinni, meðal annars að verða heimsins besti „umhverf- isvænaflokkari“. Rusl er allavega það eina sem ég ætla mér að flokka, ekki manneskjur eins og fólkið í kringum mig gerir alla daga! Þó mér leiðist pólitík get ég stofnað umhverfisvæna flokkaraflokkinn sem mun leggja sig fram við að bjarga jörðinni frá því að verða einn alls- herjar ruslahaugur. Mig langar ekkert sérstaklega til að búa á rusla- haug. Það eru til börn úti í heimi sem búa á ruslahaugum og það gera þau ekki af fúsum og frjálsum vilja, þau geta ekkert að því gert en það getum við. Ég ætla strax að stofna þennan umhverfisvæna flokkara- flokk og fyrsta verkefnið verður að losna við ruslið á götunum hér í Hafnarfirði. Ég ætla að gera Hafnarfjörð að heimsins hreinasta bæ og hana nú! FRAMHALD Í NÆSTU VIKU Um er að ræða nýtt byltingarkennt og háþróað dagkrem frá Olay sem inniheldur einstaka samsetningu innihaldsefna. Þessi Satin/ Silk-formúla inniheldur bíópeptíð + B3 complex sem veitir húðinni þann raka sem húðin þarfnast og dregur sjáanlega úr hrukkum og fínum línum. Aðaleinkennis- merki Wrinkle relaxing complex er silkimjúk áferð þess en þar eru Microfiller-púðureind- ir að verki sem vinna á yfirborði húðarinn- ar þannig að húðin verður stinnari en jafn- framt mýkri viðkomu. Upplagt er að nota dagkremið undir andlitsfarðann þar sem mjúk áferðin sléttir úr línum og veitir húðinni óaðfinnanlega áferð. HIÐ FULLKOMNA VOPN GEGN HRUKKUM Börn þurfa að hreyfa sig reglu- lega til að við- halda heilbrigðum vexti og þroska. Mikilvægt er að vera góð fyrirmynd barna sinna. – Lifið heil ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 6 31 99 0 2/ 13 Í tilefni konudagsins bjóðum við 20% afslátt af öllum ilmum fyrir konur dagana 22.-24. febrúar. ILMUR FYRIR KONUNA www.lyfja.is FR ÉT TA BL A Ð IÐ /S TE FÁ N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.