Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2001, Page 50

Læknablaðið - 15.06.2001, Page 50
UMRÆÐA & FRÉTTIR / UNGAR KONUR í LÆKNASTÉTT Starfsbróðirinn Kristján Guðmundsson var gripinn í óvœnta skoðun í skoðunarherberginu á háls-, nef- og eyrnadeild Landspítala Fossvogi. sneri mér til fagfélagsins og fékk að lokum þau laun sem ég gat sælt mig við. Fékkstu einhver viðbrögð? Já, þeim fannst ég dæmigerður Islendingur sem gefst ekki upp. En það var mjög einkennilegt að lenda í þessu. Þegar maður er staddur erlendis er maður auðvitað alltaf útlendingur og finnur fyrir því. Ég var þar að auki útlendingur og kona og átti ekki að fá viðunandi laun af því ég átti ekki börn.“ Heldttr þú að ef þú hefðir átt börn, hefði kannski verið fundin önnur ástœða? „Já, að minnsta kosti ef ég hefði verið gift, þá hefði ég væntanlega átt góða fyrirvinnu og ekki þurft að fá eins há laun og ella þess vegna. Það var sagt við konur sem voru í launabaráttu þarna úti: „Þú þarft nú varla svona góð laun, þú átt svo góða fyrirvinnu.“ Hverjtt áttir þú von á þegar þú snerir heim til íslands? „Ég velti því lítið fyrir mér. Ég taldi mig eiga jafna möguleika á stöðu hér heima og kollegar mínir og það reyndist vera rétt. Hálfu ári eftir að ég kom heim fékk ég stöðu þar sem ég vinn enn. Yfirlæknir deildarinnar er ungur maður, var innan við fertugt þegar hann tók við starfinu. Hann hefur kannski ferskan skilning þannig að ég er heppnin með yfirmann. Mér hefur ekki fundist ég vera að kljást við gömul sjónarmið sem ég veit að sumar konur þurfa að glíma við. En ég hef heyrt af dæmum um slíkt frá félögum mínum í Félagi kvenna í læknastétt á íslandi." Tengslanet og að vera sýnilegar Hvað kom til að þú gerðist virk íþvífélagi? „Ég var ein af þeim sem undirbjuggu stofnun félagsins. Félaginu er fyrst og fremst ætlað að vera staður fyrir umræðu um ýmis mál sem tengjast konum meira en körlum og til að styðja hver aðra og styrka á framabrautinni. Þetta er ekki félag byggt í kringum óánægðar konur. I félaginu eru margar konur sem gengið hefur mjög vel og ekki lent í neinum leiðindum, hvorki hér heima né erlendis, en þar eru líka konur sem hafa lent í því að vera mismunað. Við höfum gert margt skemmtilegt í þessu félagi, meðal annars staðið fyrir námskeiði í framsækni síðastliðinn vetur. Það var almenn ánægja með það hjá þátttakendum. Okkur var meðal annars bent á mikilvægi þess að byggja upp tengslanet og vera sýnilegar, og ég held að það sé mjög mikilvægt að við séum það. Hugmyndin kom fyrst og fremst frá ung- læknum, og aðaldriffjöðurin var Sigríður Björns- dóttir, en hún var ein af örfáum unglæknum í félaginu, en nú hefur þeim fjölgað verulega. Konum í hópi unglækna fannst gott að fá nám- skeið til að byggja upp meira öryggi í starfi. Námskeiðið var svo vel sótt að skipta þurfti því upp í tvo hópa og við höfum verið beðnar um að efna til þriðja námskeiðsins í haust, hvort sem það tekst nú eða ekki. Þær sem sóttu námskeiðin voru á öllum aldri, þarna voru til dæmis konur sem voru búnar að vera sérfræðingar í mörg ár, og þær voru mjög ánægðar með framtakið. Konur á öllum aldri 550 Læknablaðið 2001/87 J

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.