Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Blaðsíða 54

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Blaðsíða 54
ar verða; en þetta gjörir sá sem elskar heiminn, því jarðnesk gæði eru hverf- ul, heimsins útlit breytist og gleðinnar mynd stendur langt á bak við mann þegar hann loksins þykist vera kominn að því eftirþreyða takmarki; og hvað er það þá sem maðurinn hefur meira af allri sinni armæðu! Já! þó að maðurinn þykist hafa náð einhvörri af þessum ímynduðu unaðssemdum, þá er nautn- in samt eins óviss; því dauðinn er skjótfær engill sem fyrr en varði kem- ur að dyrum. (I, 334) Auðvitað er þetta hálfgert skyldutal af því tagi sem vænst var af prestsefnum. En þetta er þó altént innrætingin, þetta er vegamesti hans þegar hann heldur úr skóla upp í lífsins langferð. Og hér er lýst einhvers konar köll- un sem nái ekki að uppfyllast nema með því að neita sér um heimsins gæði, gleði og nautnir og unaðssemdir; neita sér um ást. Og þótt guð almáttugur þoki og verði síðar- meir að mildum og afskiptalitlum föður og vini alls sem er í huga Jónasar, þá má gera ráð fyrir að enn séu í hugarheimi hans þess- ar andstæður köllunar og unaðar, og þær kunna líka að búa að baki því ofboði sem gripið hefur Tómas Sæmundsson þegar hann frétti af trúlofunaráformum Jónasar. Nú hef ég ekki lagt mig sérstaklega eftir guðrækilegum mælskubrögðum, þykist þó vita að þau séu í býsna föstum skorðum og veiti lítið svigrúm til persónulegra tilþrifa. Það er því sennilegt að myndmál ræðunnar sé nokkuð sjálfgefið og formúlubundið, en mig langar samt að láta sem svo að það sé eftir Jónas — það er þessi skuggalíking sem er að þvælast fyrir mér, vegna þess að hún skýtur aftur upp kollinum í nokkuð breyttri mynd að vísu í Grasaferð í dálítið sérkenni- legum samræðum þeirra frændsystkinanna þar sem þau sitja þegjandi á fjallinu og skemmta sér við að sjá skuggana sem liðu í ýmsum myndum yfir engjar og haga eftir því sem skýin losnuðu og bárust á burt um himininn. „Vildirðu ekki vera svo léttur,“ sagði systir mín, „að þú gætir sest á einhvern fallegasta skuggann þarna niður frá og liðið svo yfir landið, sveit úr sveit, og séð það sem fyrir ber?“ „Ekki væri það óskemmtilegt," svar- aði ég, „en ef skýin þarna uppi eyddust þegar ég væri kominn norður á Sléttu þá færi, held ég skugginn líka og svo hefði ég ekkert að sigla á aftur heim til þín.“ Systir mín leit við mér einhvern veg- inn skrýtilega, að mér þótti, eins og hún væri að virða mig fyrir sér og sagði heldur seint: „Þá gætirðu sest að á Sléttunni þangað til þú ert orðinn nógu stór til að geta gengið heim aftur og vaðið ámar í leiðinni.“ (I, 296) Aftur þetta: að berast burt með hverfulum skuggum, burt frá þeim stað þar sem maður vill vera, nema hér bera skuggarnir þig burt frá heimsins gæðum, samverunni við stúlk- una, meðan líkingamál ræðunnar gekk út á að eftirsókn eftir lífsins gæðum, láni í einkalíft, jafngilti eltingarleik við skugga. Jónas fór í ferðalag. Hann eltist við hug- myndir og lenti í ýmsum villum og vann mörg frækileg afrek, hann dugði þjoð sinni vel, varð móðurjörðinni, veslings gömlu konunni, til bæði gagns og sóma. Hann varð Hafnaríslendingurinn dáði, og síðar meir ástmögur og ljúflingur og nokkurs konar yfirálfur þjóðarinnar. En móðirin brást hon- um áður en lauk, jörðin sökk undir honum: 52 TMM 1990:4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.