Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Blaðsíða 66

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Blaðsíða 66
einhver frægasta mynd í fomum ritningum íslendinga af jötni með járnstaf í hendi. Himnasýn og hamfarir Snorri Sturluson hermir svo frá í Ólafs sögu Tryggvasonar (33. kap) að Haraldur Gormsson Danakonungur ætlaði að sigla liði til íslands í því skyni að hefna níðs þess sem landar vorir höfðu ort um konung. En áður en af því yrði lét hann njósna um aðstæður hérlendis: Haraldur konungur bauð kunngum manni að fara í hamfömm til Islands og freista hvað hann kynni segja honum. Sá fór í hvalslíki. En er hann kom til landsins fór hann vestur fyrir norðan landið. Hann sá að fjöll öll og hólar vom fullir af landvéttum, sumt stórt en sumt smátt. En er hann kom fyrir Vopnafjörð, þá fór hann inn á fjörðinn og ætlaði á land að ganga. Þá fór ofan eftir dalnum dreki mikill, og fylgdu honum margir ormar, pöddur og eðlur og blésu eitri á hann. En hann lagðist í brott og vestur fyrir land, allt fyrir Eyjafjörð. Fór hann inn eftir þeim firði. Þar fór móti honum fugl svo mikill að vængirnir tóku út fjöllin tveggja vegna og fjöldi annarra fugla, bæði stórir og smáir. Braut fór hann þaðan og vestur um landið og svo suður á Breiðafjörð og stefndi þar inn á fjörð. Þar fór móti honum griðungur mikill og óð á sæinn út og tók að gella ógurlega. Fjöldi landvétta fylgdi honum. Brott fór hann þaðan og suður um Reykjanes og vildi ganga upp á Víkars- skeiði. Þar kom í móti honum bergrisi og hafði jámstaf í hendi, og bar höfuðið hærra en fjöllin, og margir aðrir jötnar með hon- um. Þaðan fór hann austur með endlöngu landi — „var þá ekki nema sandar og öræfi og brim mikið fyrir utan en haf svo mikið millim landanna," segir hann, „að ekki er þar fært langskipum.“ Þá var Brodd-Helgi í Vopnafirði, Eyjólfur Valgerðarson í Eyjafirði, Þórður gellir í Breiðafirði, Þóroddur goði í Ölfusi. (Heimskringla I, 271). Eins og Matthías Þórðarson rökstuddi fyrir löngu, þá bendir landvættasaga Snorra til áhrifa frá heilagri ritningu.8 í Himnasýn Jóhannesar hljóðar klausa á þessa lund: Sá eg hjá dómstóli guðs fjögur kykvendi augnafull utan og innan umbhverfis. [. . .[ Eitt af þessum kykvendum var glíkt hinu óarga dýri, annað var glíkt oxa, hið þriðja hafði álit manns, en hið fjórða var glíkt erni fljúganda. (ísHóm, 180; sbrPost. 635-6). Landvættasagan dregur mikinn dám af Himnasýn (oxi: griðungur mikill; öm: fugl mikill; maður: bergrisi), en þó er undarlegt að í stað ljóns (hins óarga dýrs) er kominn dreki með öllu sínu föruneyti af skriðdýra- ætt: eðlum, pöddum og ormum.9 Þótt tákn- málið í landvættasögu sé af lærðum rótum runnið, þá er sagnfræði hennar innlendur fróðleikur. Hér eins og víðar í táknrænum frásögnum verður ekki komist hjá því að gera ráð fyrir fjölþættum uppruna, enda eru slík dæmi sjaldan af einum toga. Þó verður ekki farið út í þá sálma hér að kanna land- vættasýn af smásmygli, enda gengur mér annað til. Sú magnaða sýn af landi og þjóð sem látin er birtast fjölkunnugum Dana í hvalslíki á skriði umhverfis ísland er að nokkru leyti sambærileg við draum Flosa 64 TMM 1990:4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.