Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Side 50

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Side 50
15 kumlum og stakar í átta kumlum. Sam- kvæmt Kuml og hctagfé eru þær algeng- astar skartgripa í gröfum kvenna. Rétt er aö benda á aö fundaratvik virðast oft vera frekar óljós og ekki unnt að kyngreina beinagrindur meö vissu (Kristján Eldjám, 2000, bls. 353). í þeirn 23 kumlum þar sem kúptar nælur fundust viröast aðeins fimm þeirra hafa veriö kyngreind meö vissu samkvæmt Kuml og haugfé. Þar er um kvenkynskuml aö ræða (Kristján Eldjárn, 2000, bls. 49-249). Af þeim sökum er skiljanlega hugsað um kúptar nælur sem kvengripi, enda hafa þær ekki enn fundist meö körlum í kumlum hér á landi svo vitaö sé. Nokkur kuml í kumla- talinu vekja sérstaka athygli. í kumli frá Mjóadal í Noröurárdalshreppi vom nær engar beinaleifar en ásamt kúptum nælum fundust þríblaöa næla, 25 sörvistölur, tveir silfurpeningar og ryögaður jámbútur sem samkvæmt Kuml og haugfé „...líkist helst sveröi eöa stórum hníf." (Kristján Eldjám, 2000, bls. 103). Augljóslega má túlka ryðgaðan jámbút á ýmsa vegu en út frá þessum fundi er ekki hægt aö útiloka aö kona hafi borið vopn. Vitneskja um kumlfund aö Brú í Biskupstunguhreppi er athvglisverö en engu að síður ófullnægjandi. Þar bendir haugféötil þess að karl hafi verið heygður í því samkvæmt Kuml og haugfé, en þar kemur einnig ífam að . .nælubrotiö hefur ekki getaö veriö í karlkynskumli." (Kristján Eldjárn, 2000, bls. 86). Þó eðlilegt sé aö álvkta aö um tvö kuml hafi verið aö ræða. karls og konu, er haugféð eitt og sér varla næg sönnun til aö kveða upp dóm um þaö. Af þessu má sjá aö ekki erheldur hægt aö fúllyrða aö kúptarnælur hafi ekki verið grafnar meö líffræðilega greindum karlmannsbeinagrindum. þótt þær hafi ekki fúndist með vissu hjá þeim. Axir: Fundist hafa 24 axir í kumlum hér á landi (Kristján Eldjám, 2000, bls. 345). Sex þeirra tengjast kyngremdum einstaklingum samkvæmt Kuml og haugfé og er þar um karla að ræöa (Kristján Eldjám, 2000, bls. 49-238). Þar er einnig vakin athygli á tveimur litlum öxum. Önnur þeirra er sögö hafa verið lögö í gröf 10 ára drengs en hin með unglingsdreng. (Kristján Eldjám, 2000, bls. 347) Hildur Gestsdóttir sem hefur framkvæmt kyn- og lífaldurs- greiningu á beinum úr þeim kumlum sem tekin em fyrir í Kuml og haugfé, bendir þar á aö ekki hafi verið hægt aö kvngrcina bein unglingsins en bein bamsins vom ekki á lista hennar yfir þau kurnl sem hún kvngreindi (Hildur Gestsdóttir, 1998, bls. 11-18). Því máleiða líkum aö því aö kyn ungmennanna hafi veriö ákvarðað út frá haugfé, svo sem öxunum, enda tíökaöist þaö enn á þeirn tíma sem Kristján Eldjám vann rit sitt Kuml og haugfé á sjötta áratug síðustu aldar. Þar sem einungis einn fjórði afkumlum meö öxum em greinanleg til kyns, verða axir aö teljast vafasöm vísbending um kyn, þó vissulega hafi þær ekki fundist meö konu svo vitað sé. Sverð: Fundist hafa sverð í sextán kurnlum á landinu (Kristján Eldjám, 2000, bls. 323). Helmingurinn af þessum sverðum em samkvæmt Kuml og haugfé í karlkyns- kumlum en ekki er hægt aö fullyrða urn kyn beinagrinda meö hinum helming þeirra. Þó sverö virðist vera betri vís- bending urn karlk\nskuml en axir, er langt frá því aö fullt mark sé takandi á kyn-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.
https://timarit.is/publication/1111

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.