Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Side 53

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Side 53
grafhir meö körlum. konum og bömum í kumlum á víkingaöld hérlendis. Sýningin undirstrikar frekar dæmigerðar ímyndir um stöðu og hlutverk karla, kvenna og bama á þessum tíma og hætt er við að sýningargestir upplifi hina opinberu söguskoðun Islendinga sem einfaldaða og staðlaöa hvað varðar hlutverk kynjanna. Sú greining, sem gerð var í tengslum við þessa grein, sýnir aö breidd í sam- setningu og skiptingu haugfjár á milli kyns og aldurs hefur verið langtum meiri en dæmin í Þjóðminjasafhinu sýna. Algengt var t.d. að konur fengu hest í kuml sitt og dæmi em um að hundur hafi einnig verið látinn fýlgja þeim, þó þaö komi ekki fram á sýningunni. Skartgripir finnast jafnt í gröfúm karla sem kvenna, líkt og sörvis- tölur, auk þess sem jafnmargar veíjar- skeiðar hafa fundist með körlum og konum. Þessi atriði koma ekki fram á gmnnsýningu Þjóðminjasafnsins. Vissulega em til gripaflokkar, sem hafa aðeins fúndist með öðm kyninu, eins og sverð og kúptar nælur. Samt sem áður er kumlasafhið í heild það lítið að vafasamt er að draga sterkar ályktanir út frá því í þessu sambandi. Ef kona hefur lagt kúpta nælu með karikyns maka sínum og ekkert er eftir af beinum þegar kuml hans er grafið upp, myndi hann vafalítið verða greindur sem kona. Það er ekki ætlunin hér að kollvarpa neinum kenningum um merkingu eða þýðingu haugfjár. En ljóst er að samspil haugfjár, kyns og aldurs er langt frá því að vera einfalt og nauðsynlegt er að fara varlega þegar áh'ktað er í þessu sambandi áður en ítarlegar rannsóknir hafa farið fram á þessu sviði. Að minnsta kosti skvldi alltaf koma fram ef einungis er um kvngreiningu út frá gripum að ræða, en ekki líffræðilega greiningu beinagrindar, þegar dregnar er ályktanir um fundi eins og „Fjallkonuna”. Að öðrum kosti erhætt við að almenningur fái, ekld nauðs\Tilega ranga, heldur ófullnægjandi og einfaldaða mynd af lífsháttum fólks fyrr á öldum. Heimildir Elín Ósk Hreiðarsdóttir. (2005). íslenskar perlurfrá vikingctöld - með viðauka um perlurjrá sidari öldum. I. hluti. Óbirt MA-ritgerö: Háskóli íslands, Hugvísindadeild. Fomleifavemd. (e.d.). Fjallkonan. Björgunarrannsókn Fornleifaverndar rikisins. Sótt 13. janúar2006afslóðinni http:/Avww.fomleifavemd.is/2/ Fjallkonan/Fjallkonan.htm. Hildur Gestsdóttir. (1998). Kyn- og lífaldursgreiningar á beinum úr islenskum kumlum. Reykjavík: Fomleifastofnun íslands. Kristján Eldjám. (2000). Kuml og haugfé úr heiðnum sið á Islandi. 2 útgáfa. Ritstjóri Adolf Friðriksson. Reykjavík: Mál og Menning. Reykjavíkurborg. (e.d ). Hallveigar- brunnur. Sótt 16. janúar 2006 af slóðinni http://wwwumhverfís svid.is/default.asp?sid_id=22835&tid = 1. Stalsbeig, A. (2001). Visible women made invisible: Interpreting Varangian Women in Old Russia. í Bettina Amold og Nancy L. Wicker (ritstj.), Gender and the Archaeolog\> ofDeath. Bls. 65 - 79. England: AltaMira Press.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.
https://timarit.is/publication/1111

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.