Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Side 71

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.03.2006, Side 71
„Um siðfar áa vorra Haugfé, kyngervi og íslensk kynjafornleifafræði SandraSif Einarsdóttir „Fornleifafræði er stöðug barátta við að grafa fram okkar eigin fordóma og ómeðvitaða afstöðu“ (Pearson, 1999, bls. 96).1 Inngangur Ariö 1962 fannst kuml á Öndverdamesi í Snæfells- og Hnappadalssýslu. Haugfé þess samanstóð af sverði, spjóti, skjaldar- bólu, hníf og beinprjóni, auk nokkurra ógreindra jámmola og beinagrindar af 14 áradreng (Þorkell Grímsson, 1966, bls. 78-83). Frá upphafi var greinilegt að kumlið féll illa að þeirri mynd sem sett hafði verið fram af fræðimönnum um tengsl á milli aldurs fólks og haugfjár, vegna óvenjulega ungs aldurs þess sem he\gður var á Öndverdamesi með ríkulegu haugfé. Seinni tíma rannsóknir á beina- grindinni hafe svo flækt málið enn ffekar, en þær hafa leitt í ljós að erfitt sé að kyngreina hana út frá líffræðilegum atriðum. Hávaxin og fingerð, bæði með einkenni karla og kvenna, virðist þessi manneskja hafa skorið sig úr því samfélagi sem hún bjó í. Kumlið á Öndverðamesi vekur í þessu samhengi upp spumingar um hina stöðluðu ímynd sem hefur veriö dregin upp af hlutverkum kynjanna á landnámsöld og birtingamiyndum þeirra í kumlum. Vom það afrek hins látna eða hugmvndir samtímamanna sem réðu því hvernig haugfé hann hlaut? Getur ætterni eða fjölskyldutengsl haft hér áhrif? Kumlið á Öndverðarnesi getur enn fremur varpaö ljósi á stöðu kynja- fomleifafræði á Islandi í dag. Tværgreinar hafa verið skrifaðar um kumlið og þess er getið í nýrri útgáfú Kumls og haugfjár. I því sem birst hefúr á prenti um kumlið, hefúr þó á engan hátt verið reynt að fjalla um það á kynjafomleifafræðilegan hátt þó svo að efniviðurinn bjóði augljóslega upp á slíka nálgun. Revnt verður að leita skýringa á því hér af hverju svo sé. Þó svo að aðeins eitt kuml muni væntanlega ekki bre>ta hugmyndum fólks varðandi kyngervi landnámsaldar og birtingar- myndir þeirra, þá er það engu að síður umhugsunarefni hvers vegna kurnl sem kallar fram margar flóknar spumingar varðandi kyngervi landnámsaldar sé hunsað. Spumingin er hvort rannsóknir á kumlinu kristalli ekki stöðu k>njafom- leifafræði hér á landi, sem virðist hvorki hafa þróast samhliða samfélagslegunr bre\tmgum. né [xim sem hafa átt sér stað í kennilegri fomleifafræði. Endurvinnsla á eldri rannsóknum er br\'n til að fá ferska innsýn inn í fortíðina og til að forða því að Island dragist enn meir aftur úr í þróun greinarinnar en þegar hefur gerst. 1 „Archaeology ís a continuous struggle to excavate our own preconceptíons and unacknowledged assumptions' (Pearson, 1999, b!s. 96) (Þyðing. höf). 69
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.
https://timarit.is/publication/1111

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.