Lögmannablaðið - 01.06.2004, Qupperneq 7

Lögmannablaðið - 01.06.2004, Qupperneq 7
7 misnotað og nefndin drukkni í verkefnum. Það hefur reyndar ekki enn gerst en málunum má ekki fjölga mikið til þess að forsendur breytist. Mér fyndist koma til álita að sá sem leggur fram kvörtun til nefndarinnar þurfi að leggja fram hóf- legt kærugjald. Það mætti svo eftir atvikum end- urgreiða kærugjaldið komist nefndin að niður- stöðu um að kvörtun hafi verið á rökum reist. Eru öll mál sem lögð eru fyrir nefndina tekin fyrir? Að því gefnu að mál séu í því formi að hægt sé að taka þau fyrir er það gert. Það er svo annað mál að nefndin hefur lögbundið verksvið og þegar erindi berast sem ekki verða felld undir verksvið nefndarinnar, sem stundum gerist, þá er þeim vísað frá með rökstuðningi. Hve langur tími líður frá því mál er lagt fram og þar til úrskurður liggur fyrir? Eru einhver tíma- mörk? Það er misjafnt hve langan tíma málsmeðferðin fyrir nefndinni tekur. Flest mál klárast á nokkrum mánuðum en því miður dregst málsmeðferðin í einstaka tilvikum. Núna eru 19 mál til meðferðar hjá nefndinni sem er vísbending um að meðal afgreiðslutíminn sé innan við hálft ár því nefnd- inni berast að jafnaði rúmlega 40 mál á ári. Eitt málanna er frá árinu 2002 og fimm frá fyrri hluta árs 2003. Afgreiðslutíminn ræðst mjög af því hversu greiðlega málsaðilar svara erindum nefnd- arinnar. Hverjir eru það sem kvarta til nefndarinnar, almenningur eða lögmenn fyrir hönd umbjóð- enda? Oftast er kvartað án aðstoðar lögmanns þótt hitt sé ekki óalgengt. Sjálfsagt er það stundum þannig að lögmaður hefur aðstoðað viðkomandi máls- hefjanda þótt hann láti ekki nafns síns getið. Hve oft má áminna lögmann áður en farið er fram á sviptingu leyfis og hefur nefndin fleiri úrræði til refsingar? Samkvæmt 27. gr. lögmannalaganna eru þau viðurlög sem nefndin getur beitt aðfinnslur, við- vörun, áminning og rökstutt álit til dómsmálaráð- herra um sviptingu réttinda sbr. 1. mgr. 14. gr. lag- anna. Nefndin hefur litið svo á að viðvörun sé í raun ekki sérstök viðurlagategund heldur verði að túlka lagagreinina með þeim hætti að viðvörun verði einungis beitt samhliða öðrum viðurlögum, ef sýnt þykir að ítrekað brot muni leiða til alvar- legri viðurlaga. Við það er miðað hjá nefndinni að annarri áminningu til sama aðila fylgi viðvörun um að þeirri þriðju geti fylgt álit til dómsmálaráð- herra um sviptingu réttinda, tímabundið eða ótímabundið eftir atvikum. Í því sambandi ber að hafa í huga að ítrekunaráhrif áminningar vara ekki endalaust. Hefur reynt á sviptingu leyfis fyrir dómsmála- ráðherra? Nei, það hefur ekki gerst. Slíkt hefur þó komið til álita innan nefndarinnar í tveimur tilvikum. Í L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð Úrskurðarnefnd lögmanna f.v. Marteinn Másson hdl., en hann er starfsmaður nefndarinnar, Kristinn Bjarnason hrl., Friðgeir Björnsson héraðsdómari, Gestur Jónsson hrl. og formaður nefndarinnar, Bjarni Þór Óskarsson hrl. og Elín S. Jónsdóttir framkvæmdastjóri Dómstólaráðs en hún kom inn á fundinn sem varamaður Hrefnu Friðriksdóttur hdl.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.