Skírnir - 01.01.1963, Blaðsíða 13
Skirnir
Þriggja alda minning
9
Hver áhrif störf jarðabókarnefndar höfðn til umbóta
íslenzku þjóðfélagi, er sagnfræðilegt viðfangsefni, sem hér
verður ekki um fjallað. Hins vegar skal vikið að því, að
starf nefndarmanna bar þrenns konar fræðilegan árang-
ur, sem mikilsverðan verður að telja: manntali&, jar&a-
hókina og handritasöfnun.
Manntali& 1703, fyrsta allsherjarmanntal á íslandi og
eitt fyrsta manntal sinnar tegundar í veröldinni, er merki-
leg söguleg, ættfræðileg og ekki sízt félagsfræðileg heim-
ild. Þar má sjá með vissu mannf jölda á íslandi á þessu ári,
skiptingu hans milli byggðarlaga og einstakra býla, skipt-
ingu lians eftir kynjum, aldri, atvinnustéttum o. s. frv. En
þótt manntalið sé um fram allt félagsfræðileg heimild,
má ekki glevma því, að það er einnig hið traustasta gagn
um mannanöfn á þessum tíma, nafnaforðann í heild, tíðni
einstakra nafna og útbreiðslu þeirra á tilteknum lands-
svæðum.
Um Jar&abók þeirra Árna og Páls Vídalíns er svipaða
sögu að segja og um manntalið. Hún er merkasta heimild
um hagsögu landsins á þessum tíma, hrein fróðleiksnáma
um landshagi og efnahagsmál. En jafnframt er hún mál-
fræðingum, sem við örnefnarannsóknir fást, ómissandi
heimildargagn. Bæði þessi verk, manntalið og jarðabókin,
eru kennileiti, sem miða iná við og miða verður við í at-
vinnusögu landsins og á mörgum öðrum sviðum.
Um handritasöfnun Árna Magnússonar er sumt kunn-
ugt, en annað á huldu. Hann mun vart liafa tekið að safna
handritum fyrr en eftir að hann kom til Hafnar, þ. e. eftir
1683. Um þessar mundir var —— og hafði raunar verið
um nokkurn tíma — mikill áhugi á söfnun liandrita, ekki
sízt íslenzkra handrita, bæði í Danmörku og Svíþjóð. Vel
má vera, að þessi almenni áhugi hafi orkað á hinn unga
mann, og varla hafa kynni hans af Thomasi Bartholin,
sem var merkur fornfræðingur, spillt áhuga hans á söfn-
unarverkinu. En því má ekki gleyma, að söfnun handrita
var eðlilegt framhald af uppeldi hans. Eins og áður er
sagt, fékkst afi hans, Ketill Jörundarson, nokkuð við upp-