Skírnir - 01.01.1963, Blaðsíða 169
Skírnir
Um hvalskipti Rosmhvelinga
157
Njarðvík er þá Njarðvík eystra, enda á þar að vera kirkja
með prestskyld, en ekki í Njarðvík syðra samkvæmt kirkna-
skrá Páls biskups Jónssonar um 1200. DI XII 4.
I Hítardals- og Vilkinsbókum er máldagi Njarðvíkur syðra
og er eins í báðum. Er hann ærið fáskrúðugur og virðist sýna
vígslu eða endurvígslu eftir 1200, þar sem kirkjan er Maríu-
og Þorlákskirkja. DI III 221, IV 106—7. Á hún eina kú.
Tvær eru þær orðnar 1548.
Kirkja í Njarðvík er þá reist eða endurreist á tímabilinu
1200—1367 eða um það bil, svo að heitið Kirkju-Njarðvík
fær staðizt. Mun heitið vera samnefnt fyrir Innri-Njarðvík
og gefur það ábendingu um, að Ytri-Njarðvík hafi þá verið
við lýði, sé orðalag í skránni óbrjálað, hafi Kirkju-Njarðvík
staðið frá upphafi, en ekki: kirkja í Njarðvík.
Eigi er vitað, að Innri-Njarðvík, eða kirkjan þar, hafi átt
nokkuð í Býjaskerjum.
Þegar Jarðabókin er gerð, heyrir Njarðvík til Vatnsleysu-
strandarhreppi. Og hvalskiptaskráin tiltekur markið milli
Hólms- og Njarðvíkurlanda í Keflavík, og er þá væntanlega
átt við mark í Vatnsnesi. Er sama mark tilgreint í rekaskrá
Rosmhvelinga, DI II 78. Hins vegar er markið milli Njarð-
víkur og Voga Kolbeinsskor í Vogastapa. DI VII 299, 337
o. fl., sbr. og Ldn.: Kvíguvogabjörg. Það er því ærinn kafli,
rekinn fyrir Njarðvík, og ólíklegt, að hann hefði gengið und-
an, hefði Njarðvík verið í Rosmhvalaneshreppi, er hvalskipt-
in voru skjalfest.
Kirknaskrá Páls biskups greinist á þessu svæði í tvær gerð-
ir eftir handritaflokkum. Handritin b og c segja: Kirkja í
(Kirkju-) Vogi, á Kirknabóli og á Útskálum, en a og 390:
Kirkja í (Kirkju)Vogi — á Kirkjubóli og á Útskálum. DI
XII 9. Næsta kirkja í báðum gerðum er svo Kálfatjörn.
Á Rosmhvalanesi, ætti að vera öruggt samkvæmt þessu, að
prestsskyld hafi verið að tJtskálum, en vafasamt um Kirkju-
ból eða Hvalsnes. Nú skal það athugað nánar.
Samkvæmt Hítardals- og Vilkinsbókum eru þessar kirkjur
á Rosmhvalanesi á efri hluta 14. aldar: á Hvalsnesi, Kirkju-
bóli, Útskálum, Hólmi og Býjaskerjum. Er pestsskyld á Hvals-