Skírnir - 01.01.1963, Blaðsíða 23
Skírnir
Handritastofnun fslands
19
15 þúsund“. Öllum er kunnugt um, að hér var mjór mikils
vísir; styrkveitingar þessar halda áfram, veittar nú stúdent-
um af ýmsum þjóðum, og hafa þeir síðari árin verið kringum
tólf. Um þetta má vísa til fjölritaðrar skýrslu eftir Birgi Thor-
lacius ráðuneytisstjóra.
Sama ár harst Háskóla Islands bréf frá Einari Þorgríms-
syni, forstjóra Lithoprents (dags. 27. janúar 1948), þar sem
hann lét í ljós ósk sína að gefa út íslenzk handrit og mælt-
ist til samvinnu við Háskólann, þannig að Háskólinn tilnefndi
menn í útgáfuráð. Einar Þorgrímsson hafði þá ljósprentað
handrit af Passíusálmunum (1946) og ýmsar gamlar hækur.
Háskólinn tók þessu vel, kaus af sinni hálfu prófessorana
Einar Öl. Sveinsson, Ólaf Lárusson og Sigurð Nordal (röð
sem í bréfinu). Völdu þeir til útgáfu bæði handrit séra Jóns
Erlendssonar af Islendingabók. Áður en þessu verki væri
langt komið, andaðist Einar Þorgrímsson (24. apríl 1950), og
féll það þá niður.
Árið 1950 flutti Gunnar Thoroddsen borgarstjóri tillögu
til þingsályktunar um handritamálið. Hún er á þessa leið:
„Alþingi ályktar að lýsa yfir því, að jafnskjótt sem hand-
ritin íslenzku fást afhent frá Danmörku, mun íslenzka ríkið
reisa byggingu yfir handritin, þar sem tryggð verði örugg
geymsla þeirra og góð starfsskilyrði. Einnig lýsir Alþingi yfir
þeirri fyrirætlun að veita fé til vinnu við handritin, þar á
meðal styrki til erlendra fræðimanna, sem hér vildu starfa.
— Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hefja nú þegar,
í samráði við Háskóla Islands, undirbúning fyrrgreindra ráð-
stafana.“
í greinargerð er getið um ástæður tillögunnar, vitnað í
bréfið frá 1946, sem ríkisstjórnin hafi samþykkt á ráðherra-
fundi í aðalatriðum, en tillagan sé fram komin til þess að
Alþingi lýsi sínum vilja í þessu efni. — 1 mnræðum um til-
löguna bar Pétur Ottesen fram breytingartillögu, þar sem
bætt er við orðin ‘reisa byggingu yfir handritin’ orðunum
‘eða búa þeim húsnæði á annan hátt’, og í stað ‘Háskóla Is-
lands’ stendur hér ‘landsbókavörð, þjóðskjalavörð og Háskóla
Islands’, og var tillagan samþykkt með þessum breytingum.