Skírnir - 01.01.1963, Blaðsíða 95
Skímir
tír sögu skinnbóka
87
hversu mörg blöð hafi glatazt, er helzt til ráða að telja hvað
margar línur texti sá er í Flateyjarbók, sem staðið hefur á
þessum blöðum. Sá hængur er þó á, að það er dálítið misjafnt
hvað texti eins blaðs í 62 fyllir margar línur í Flateyjarbók,
en framantil í bókinni verður meðaltalið af 5 blöðum í 62
að 124 línum í Flateyjarbók, en aftast í bókinni stendur held-
ur meira á hverju blaði, eða sem svarar um það bil 135 lín-
um. Með þessari aðferð reiknast mér til að framan af bók-
inni vanti 8*4 blað, og er vont dæmið, því að þá verður að
gera ráð fyrir að 9 blöð hafi verið í kverinu, fyrsta blaðsiðan
auð, sem raunar er vel sennilegt, og eitt blaðið stakt, en stök
blöð fyrirfinnast annars ekki í 62. Sennilegra virðist mér að
fyrsta kverið hafi verið 8 blöð, og skriftin á þeim hafi verið
dálítið smærri og þéttari en á kveri því sem nú er fremst í
bókinni.
1 fyrsta varðveitta kverinu eru 10 blöð, og mun það vera
heilt, en milli þess og annars kvers vantar í bókina, og verð-
ur ekki gizkað á með neinni nákvæmni hversu mörg blöð
hafa týnzt hér, vegna þess að á þeim hefur verið kafli úr
Jómsvíkinga sögu og lítið brot af Orkneyinga sögu, sem vænt-
anlega hefur hvorttveggja verið stytt. I Flateyjarbók eru þess-
ar sögur notaðar sérstakar, svo að þar er ekki ÓlTr texti að
fara eftir. 1 þessari eyðu hefur Þorleifs þáttur jarlaskálds ver-
ið, ef hann hefur staðið í 62. ÓlTr-texti Flateyjarbókar, sem
svarar til nokkurs hluta eyðunnar, mundi hafa staðið á 6
blöðum og % hlutum blaðs í 62, en að auki kemur svo sá texti
sem hefur verið styttur og ekki á sér hliðstæðu í Flateyjarbók.
Ef sá texti hefur verið styttur ámóta mikið og kafli sá úr Fær-
eyinga sögu, sem stendur á bl. 34 í 62 (í öðru bindi útgáfu
minnar á bls. 374—4880: banasár—sundrþykki), hefði hann
fyllt um það bil 3 blöð í 62. Hugsanlegt er að flestum vísun-
um í kaflanum úr Jómsvíkinga sögu hafi verið sleppt í 62,
en varla hefur þessi kafli og brotið úr Orkneyinga sögu ver-
ið stytt svo mikið, að þetta hefði allt saman komizt á 8 blaða
kver. Sennilega hefur verið eitt 10 blaða kver í þessari eyðu,
en ef Þorleifs þáttur hefur verið hér, verður að gera ráð fyrir
12 blaða kveri. tJr þessu verður ekki skorið með vissu, en