Skírnir - 01.01.1967, Page 71
Skírnir
Islenzk fræði í Ástralíu
69
fræðaskólann (School of General Studies). Þessi hópur kall-
ar sig „lesflokk“ („reading class“) og kemur saman einu sinni
í viku. 1 þessum félagsskap var Gunnlaugs saga lesin 1964
og Hœnsa-Þóris saga árið eftir. Starfsemi þessa lesflokks vakti
mjög athygli prófessors Turville-Petres, þegar hann var í
Ástralíu.
Árið 1965 hófst kennsla í miðaldafræðum, en var ekki
bundin við eina háskóladeild. Af þessari kennslu eru sex fyr-
irlestrar um norrænt efni og taka að nokkru leyti mið af
Islandi. Þannig fer áhugi á íslenzkum fræðum vaxandi í
Canberra.
Islenzka í Drottningarlandi
Höfuðborgin i Drottningarlandi, sem er hálfgert hitabeltis-
ríki í Norðaustur-Ástralíu, er Brisbane. Þar er Háskóli Drottn-
ingarlands (University of Queensland), einhver fegursti há-
skóli Ástralíu að húsakosti. Hann er yngri en háskólarnir í
Sydney og Melbourne og allmiklu minni.
t Háskóla Drottningarlands er forníslenzka ein af val-
greinunum á þriðja og fjórða námsári til meiraprófs í ensku.
Á þessum tveimur árum fara stúdentar yfir Gordon: An In-
troduction to Old Norse og viðbótarefni, sem er breytilegt frá
ári til árs. Verkefnið á lokaprófi er að þýða skriflega bæði
lesinn texta og ólesinn og svara spurningum með stuttum
ritgerðum um norræna menningu og bókmenntir í forneskju
og baksvið þeirra. I þessu námi eru gerðar miklar kröfur og
þvi ekki á færi annarra en góðra námsmanna að leggja
stund á íslenzku.
Kennsla í íslenzku var hafin við Háskóla Drottningarlands
af hr. Hank Kilstra 1960. Sjálfur hóf hann nám í norrænum
málum í föðurlandi sínu, Hollandi, á stríðsárunum. Síðar var
hann eitt ár í Leeds hjá Arnold Taylor, sem endurskoðaði
málfræði Gordons, og á tslandi sumarið 1947, þar sem hann
gat æft sig í íslenzku. Áður en hann tók við stöðu sinni við
Háskóla Drottningarlands, var hann við Háskólann í Mel-
bourne. Aðstoðarmaður hans í Brisbane er cand. fil. S. H.
Gerson.