Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1967, Page 158

Skírnir - 01.01.1967, Page 158
Skírnir 156 Ritfregnir en hann reynir allt um það að beita hlutlægu mati. Þessi er einn af kost- um bókarinnar. Þetta tvennt, til þess að gera víð útsjón og tiltölulega hlutlægt mat, tel ég gefa bókinni mest gildi. Mesti galli bókarinnar er hins vegar sá, að hún er ekki alls kostar áreiðanleg og stundum villandi. Hér er enginn kostur á að gera því efni skil, enda væri það verkefni fyrir sagnfræðing. Ég vil aðeins drepa á tvö atriði. Frásögnin um Björn Simonarson é bls. 32 er öðrum þræði vill- andi og að sumu leyti röng. Hitt atriðið er, að á bls. 240 segir, að Klem- enz Jónsson hafi verið „einn af frumherjum Framsóknarflokksins núver- andi“. Ég þykist hafa það eftir góðum heimildum, að þetta sé rangt. Ekki skal farið hér lengra út í þessa sálma. En þetta er því alvarlegra vegna þess, að ekki er hægt að gáta heimildir höfundar, þar sem tilvis- anir skortir. Höfundur gat þess í bréfi, sem hann sendi Skírni með ein- taki af bókinni, að ætlunin væri, að heimildaskrá kæmi með síðara bindi sama verks. Það yrði mikil bót. Heimildaskrá er vandalitið að semja, en að gera hana eftir á þannig, að hún sé jafnframt skrá um tilvisanir, er miklu erfiðara. Ég vil jafnframt taka fram, að tilvísanir til heimilda eru, að mínum dómi, þægilegastar, þegar þær eru felldar inn í texta eða neð- anmáls á sömu síðu. Héðan af er slíkt ekki hægt. Þá er það mikill ósiður í mörgum islenzkum bókum — ekki aðeins þessari — að nafnaskrá er sleppt. Mikið er um prentvillur — eða öllu heldur stafsetningarvillur — í hók- inni. Ég er orðinn svo vanur slíku, að ég kippi mér ekki upp við það. En þetta verður að telja til óvandaðs frágangs. Frásögnin er lipur og lifandi — stundum þó hnökrótt. Og viða mætti bæta um málfar að minni hyggju. Ég hefi hér að ýmsu fundið og annað lofað, reynt að segja kost og löst á bókinni frá minum bæjardyrum séð. Að lokum vil ég taka það fram, að ég las mér bókina til mikillar ánægju og taldi mig hafa mikið gagn af lestri hennar. Halldór Halldórsson. Bókasafn A.B. Almenna bókafélagið hefur hafið útgáfu bókaflokks, er nefnist Bóka- safn A.B. Er hér um að ræða ódýra almenningsútgáfu merkra bóka, sem verða mættu undirstaða að heimilisbókasöfnum hjá alþýðu manna. Tvö síðastliðin ár hafa komið út fimm bækur í þessum flokki, en út- gáfan hófst haustið 1966. Bækurnar eru þessar og í þessari röð útgefnar: 1. Kristrún í Hamravík eftir Guðmund G. Hagalín. 2. Líf og dauði eftir Sigurð Nordal. 3. Sögur úr Skarðsbók. Ólafur Halldórsson sá um útgáfuna. 4. Pislarsaga sira Jóns Magnússonar. Sigurður Nordal sá um út- gáfuna. 5. Anna frá Stóruborg eftir Jón Trausta.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.