Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Síða 71

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1988, Síða 71
Lestur og ritskýring foma. Höfundur vitnar m.a. í bókina Political Language and Rhetoric eftir Paul Corcoran til að lýsa þessum mun.64 Þar stendur: „Málfar nútíma stjómmála er ekki notað til að sannfæra menn heldur til þess að hafa stjóm á þeim, ekki til þess að örva hugsun heldur til þess að koma í veg fyrir hana, ekki til þess að veita upplýsingar heldur til þess að leyna þeim eða villa um fyrir mönnum, ekki til þess að vekja athygli manna heldur til þess að dreifa athyglinni og kæfa hana. í stuttu máli: Málfar nútíma stjómmála virðist gegna þveröfugu hlutverki við það sem mælskulist átti að gegna til foma. f stað ,aðferðar‘ mælskulistar að kenna, sannfæra og upplýsa, hefur nútíma stjómmálaræðan þróast í innihaldlausar einræður sem sefja, sjá málefhi ekki í samhengi og reyna ekki að kryfja þau eða útskýra." Höfundur telur að beint samband ríki milli eðlis stjómmálaumræðna og áhuga almennings á stjómmálum. Stjómmálaumræður hvetja menn sjaldan til málefhalegra umræðna og þess vegna finnst mörgum stjómmálaumræður þreytandi. Fjölmiðlar eiga sinn þátt í þessari þróun. Þeir hafa á vissan hátt tekið að sér að hugsa fyrir fólk og gert það þar með að óvirkum áhorfendum. Þótt benda megi á margt sem styður þá fullyrðingu að almenningur sé vanhæfur til að setja sig inn í flókin málefhi stjómmála þá stafar það frekar af upplýsingaskorti en af eðlislægu vanhæfi. Leiðina til úrbóta telur höfundur vera þá að kennslustofhanir beiti kröftum sínum til að gera hvem einstakling hæfan til að beita aðferðum mælskulistar,65 með öðmm orðum að stuðla að því að hver einstaklingur verði gagnrýninn viðtakandi. Lesendakannanir sem framkvæmdar hafa verið í Svíþjóð og hér á landi benda til að Biblían sé lítið lesin enda þótt fólk hér á landi a.m.k. hafi áhuga á og hugsi um trúmál. í sænsku lesendakönnuninni virðist fremur lítill hluti þeirra sem spurðir vom tengja biblíulestur grundvallar- spumingum um lífið og tilvemna. í virtu læknatímariti birtist nýlega grein um dauða Jesú Krists eftir lækna og guðfræðinga.66 Þar og í eftirfarandi lesendabréfum virðist gengið út frá því sem gefhu að guðspjöllin séu bein lýsing á atburðum sem gerðust í raun og eðli frásagnanna ekki kannað og því lítill eða enginn 64 (Austin: University of Texas Press, 1979), bls. XV, Contemporary political language is used not to persuade, but to control, not to stimulate thought, but to prevent it; not to convey information, but to conceal or distort it; not yo draw public attention, but to divert or suppress it. In short, contemporary political language may play precisely the reverse role from that classically conceived for political rhetoric. Instead of a rhetorical ‘method* to inform, persuade and enlighten, contemporary political language aims at an etiolated monologue which has no content, which placates, and which bears no relationship to the organization, coherency, and clarification of information and ideas. 65 to improve public competence by making a real commitment to developing rhetorical skills in every citizen. 66 The Joumal of the American Medical Association (JAMA) mars 1986. 69
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.