Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 6

Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 6
6 SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004 er að sækja um og góðir möguleikar á að fá jákvæð viðbrögð. Ég sem hata flókin eyðublöð leysti alla skriffinnskuna á auga- bragði. Nordplus menntaáætlunin er orðin önnur og meiri en hún var þegar ég var að kenna. Núna eru í gangi fimm svið sem eru ætluð ólíkum hópum, svæðum og þemum. Þau heita Nordplus Junior, Nordplus, Nordplus Voksen, Nordplus Sprog og Nordplus Nabo. Það er Norræna ráðherranefndin sem stendur að baki þessu mikla verkefni. Ég ætla ekki að kynna þessi fimm svið í smáatriðum enda eru aðrir færari um það. Þó get ég ekki látið hjá líða að nefna sér- staklega Nordplus Junior sem miðar beint að því að gera grunnskólum mögulegt að sækja um styrki til ferða fyrir nemendur og kennara milli norrænu ríkjanna og fléttast ferðirnar beint inn í skólastarfið. Tilgangurinn með Nordplus er sá að há- skólar og æðri menntastofnanir á Norður- löndum geti sótt um styrki til netsamstarfs til þess að styrkja tengsl og byggja upp heilsteypt norrænt menntakerfi. Loks vil ég benda á Nordplus Voksen sem á að efla samstarf og þróun faglegra verkefna á sviði fullorðinsfræðslu. Í byrjun þessa árs efndi Norræna ráðherranefndin, í samvinnu við Endur- menntun HÍ, Nordplus og Norden i fókus, til námskeiðs fyrir fólk sem vildi fræðast um leiðir til að sækja um þessa styrki. Þátt- takendur voru alls staðar að af landinu og afar áhugasamir. Þarna var fólk sem eygði möguleika á að fá nýtt krydd inn í skólastarfið gegnum samstarf við skóla í öðru landi og geta samtímis miðlað af sínu. Spurningar frá þátttakendum voru óteljandi. Spurt var um hvernig hægt væri að nálgast umsóknareyðublöð og um tæknilega útfærslu á samstarfinu. Nám- skeiðinu lauk með hagnýtum ráðum um gildi þess að kasta ekki til höndunum við að fylla út umsóknareyðublöðin, nokkuð sem reynslan sýnir að oft gerist. Ítarleg um- sókn gefur meiri möguleika á jákvæðum viðbrögðum en óskýr, útkrotuð umsókn. Það er Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins, Neshaga 16, 107 Reykjavík, sem veitir allar upplýsingar um Norðplus menntaáætlun- ina. Slóðin er www.ask.hi.is Mig langar til þess vekja athygli á heimasíðunni sem ég ber ábyrgð á sem yfirmaður upplýsingadeildar Norðurlanda- ráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar. Ég er oft spurð að því hvað laði fólk inn á heimasíðuna okkar. Það eru fyrst og fremst þrjár ástæður: Fólk vill lesa norræn- ar fréttir sem eru á vefnum. Það vill kanna hvort ekki sé verið að auglýsa eftir fólki til starfa á norrænum vettvangi og síðast en ekki síst fer fólk inn á www.norden.org til þess að kanna hvort það geti sótt um styrki, ekki bara gegnum Nordplus heldur líka þau fjölmörgu styrkjakerfi sem þarna er að finna. Það væri að æra óstöðugan að telja upp alla möguleikana en ég læt ekki hjá líða að nefna norræna menningarsjóðinn sem hefur veitt fjölmarga styrki í verkefni sem hafa auðgað íslenskt menningarlíf. Það er auðvelt að feta sig áfram á heima- síðunni og til að gera Íslendingum auð- veldara fyrir er stór hluti upplýsinganna þýddur á íslensku. Yfirskriftin er „Að sækja um styrki“. Ef eitthvað er óljóst er hægt að senda fyrirspurn í tölvupósti eða hringja. Ég skrifa þessi orð ekki aðeins sem yfirmaður upplýsingadeildarinnar, heldur líka sem Íslendingur sem finnst það skipta miklu máli að við nýtum okkur þann fjár- sjóð sem er að finna í grönnum okkar. Unga kynslóðin nú til dags ferðast miklu meira en mín kynslóð fékk tækifæri til. Það er eitt að ferðast til sólarlanda og liggja þar á strönd við hlið fjölskyldunnar úr næstu götu og annað að fá tækifæri til þess að kynnast fólki í öðru landi. Í Hávamálum er undirstrikað að vináttu þurfi að rækta: Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. Ég trúi því að þetta eigi enn við. Netbréf og SMS koma aldrei í staðinn fyrir persónu- leg, lifandi samskipti. Við höfum miklu að miðla og grannþjóðir okkar gera það líka. Möguleikarnir eru fyrir hendi og nú er bara að nýta sér þá. Myrkrið umvefur Nuuk. Á morgun bíður unga fólksins í Grænlandi nýr skóla- dagur. Ég fékk tækifæri til þess að heim- sækja framhaldsskólann í bænum í þessari stuttu dvöl minni. Skólastjórinn talaði um tungumálin tvö, grænlensku og dönsku, sem bæði eru kennd í skólanum. Hún lýsti áhyggjum sínum af þeim unglingum sem ekki hefðu farið að heiman áður en þau byrjuðu nám í framhaldsskólanum og eru allt í einu send í heimavist í Nuuk, fjarri öll- um sínum. Stór hluti þeirra gefst upp strax á fyrstu mánuðunum og hættir námi. Hún sagði að þeir unglingar spjöruðu sig best sem væru búnir að ferðast, kynnast öðr- um þjóðfélögum og ná góðum tökum á dönsku samhliða því að rækta grænlensk- una. Sem betur fer eru aðstæður aðrar og miklu betri á Íslandi en í Grænlandi en samt sem áður búum við við nokkuð af þessum sama vanda sem tengist fámenni og einangrun. Það er stundum erfitt að fá ungling, sem er alinn upp í fámennu þorpi, til að skilja gildi þess að mennta sig og læra tungumál þegar hann getur malað gull um borð í togara. Það er dýrt að ferðast milli landanna í norðri, ekki síst fyrir okkur sem búum á norðvestursvæðinu, en það getur verið enn dýrkeyptara að gera það ekki, því heimskt er heimaalið barn. Styrkjamögu- leikarnir eru staðreynd. Þeir eru opnir öll- um Norðurlandabúum, líka þér og þínum nemendum. Þessi tengsl auka víðsýni og hvaða sýn er betri en einmitt sú tegund? Sigrún Stefánsdóttir Höfundur er yfirmaður upplýsingadeildar Norrænu ráðherranefndarinnar og Norður- landaráðs. Netbréf og SMS koma aldrei í staðinn fyrir persónuleg, lifandi samskipti. Við höfum miklu að miðla og grann- þjóðir okkar gera það líka. Möguleikarnir eru fyrir hendi og nú er bara að nýta sér þá. GESTASKRIF

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.