Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 21

Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 21
21 SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004 RANNSÓKNIR Í könnuninni var leitað upplýsinga um hversu vel leikskólinn kæmi til móts við þarfir barnsins og sögðu 96% foreldra leik- skólann gera það. Foreldrar barna með sérstakar þarfir voru spurðir út í þá þjónustu sem Ráð- gjafar- og sálfræðideild Leikskóla Reykja- víkur býður upp á. Tæp 90% foreldra sögðu að vel væri staðið að sérkennsluráð- gjöf frá Ráðgjafar- og sálfræðideildinni. Næstum allir foreldrar sögðu að leikskól- inn mætti sérstökum þörfum barnsins vel. Niðurstöður könnunarinnar verða nýttar til að byggja enn frekar upp og bæta leik- skólastarfið. GG Sjá nánar: www.leikskolar.is leikskólar hafa bætt sig töluvert hvað varð- ar samstarf við foreldra, dagleg samskipti og upplýsingar til foreldra. Fagstarf í leikskólum vel unnið Rúm 98% foreldra eru mjög eða frekar ánægð með uppeldis- og menntastefnu leikskólans eins og hún kemur fram í námskrá. Um 76% telja að markvisst sé unnið eftir uppeldis- og menntastefnu leikskólans. Athygli vekur þó að 36% for- eldra vita ekki hvort leikskólinn hafi gefið út námskrá. Rúmur helmingur foreldra reyndist þekkja ársáætlun leikskólans og 95% foreldra telja hana gefa góðar upp- lýsingar um starfsemi leikskólans. Foreldrar hafa jákvætt viðhorf til viðfangsefna leikskólans en 95% þeirra sögðu viðfangsefnin vera áhugaverð. Leikskólar Reykjavíkur könnuðu við- horf foreldra leikskólabarna til leik- skóla síðastliðið vor. Spurt var um fag- legt starf leikskólans, foreldrasamstarf, samskipti og upplýsingagjöf. Niður- stöðurnar sýna svo að ekki verður um villst að mikil ánægja er með þjónustu Leikskóla Reykjavíkur. Foreldrar eru ánægðir með uppeldis- starfið og samskipti við starfsfólk og hafa mjög jákvætt viðhorf til veru barna sinna í leikskólanum. Þannig telja 98% foreldra að barn þeirra sé ánægt í leikskólanum og 99% að barninu sínu líði vel þar. Flæði upplýsinga gott Foreldrar fá upplýsingar um starfið í leikskólanum gegnum dagleg samskipti við starfsfólk, í foreldraviðtölum, af upplýs- ingatöflu og í fréttabréfum leikskólanna. Almennt eru þeir ánægðir með foreldra- samstarf og samskipti við leikskólann. Næstum allir foreldrar eru ánægðir með hvernig tekið er á móti barninu þeirra og það kvatt. Greinilegt er að foreldrar eru sáttir við upplýsingar sem þeir fá um leik- skólann við upphaf leikskólavistar. Tæp 90% foreldra eru ánægðir með upplýsing- ar leikskólans um atriði sem snerta þeirra eigið barn. Foreldrar telja helst kynningu nýrra starfsmanna ábótavant, en tæp 40% foreldra töldu að þar mætti gera betur. Samanburður við eldri kannanir sýnir að Næstum allir foreldrar telja að barninu sínu líði vel í leikskólanum Ánægja með leikskólana í Reykjavík efni skýrslunnar vel og sjá til þess að allir félagsmenn gerðu það. Hún benti á að mörg atriði hennar skiptu hinn almenna félagsmann miklu máli t.d. að endurskoð- un aðalnámskráa á að fara fram á vorönn 2005. Hún undirstrikaði mikilvægi þess að fylgjast með þróun framlaga á fjárlögum til menntamála sem gæfu tóninn um hversu mikil alvara yfirvöldum menntamála væri með því að endurskoða námsskipan og námskrár á öllum þremur skólastigunum. Oddur Jakobsson kynnti síðan sérstak- lega atriði úr starfsmannakafla skýrslunnar og fór yfir áhrif fyrirhugaðra breytinga s.s. fækkun námseininga til stúdentsprófs og flutning milli skólastiga á fjölda stöðugilda í framhaldsskólum. Hann gerði auk þess grein fyrir sjónarmiðum FF í starfshópnum, sem birtast í skýrslunni um áherslur okkar í kjarasamningum sem snúa að væntanlegri styttingu námstíma. Þar er meginkrafan sú að kjör kennara skerðist ekki að grunnlaun hækki verulega m.a. m.t.t. lífeyrismála og að kennsluskylda lækki. Undirbúningur kjarasamninga við ríkið Núverandi kjarasamningur, sem er framlenging á fyrri samningi, rennur út 30. nóvember nk. Drög að kröfugerð fyrir komandi kjarasamninga voru kynnt á fund- inum. Laun félagsmanna hafa dregist aftur úr launum viðmiðunarhópa og við því verð- ur brugðist. Helstu forsendur kröfugerðar- innar eru tíundaðar í sjö liðum og er þar helst að nefna að launarammar verði end- urskoðaðir og launataflan hækkuð þannig að markmið um samkeppnishæfni náist. Þáttur grunnlauna í heildarlaunum aukist enn frekar og grunnlaun byrjenda hækki meira en annarra. Stofnanahlutinn verði hluti af sjálfum kjarasamningnum og fjár- magn til hans tryggt og síðast en ekki síst að lengd kjarsamnings taki mið af áform- aðri styttingu námstíma til stúdentsprófs. Elna Katrín auglýsti eftir hugmyndum fundarmanna til viðbótar þeim sem hér voru kynnt. Nokkrir fundarmenn komu með tillögur og ábendingar til stjórnar. Stutt kynning var á undirbúningi árs- fundar og aðalfundar FF og þings KÍ. Að lokum kynnti uppstillingarnefnd störf sín. GG

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.