Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 29

Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 29
29 FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004 Bókin Nemandinn í nærmynd. Skap- andi nám í fjölbreyttu umhverfi eftir Elínu G. Ólafsdóttur er komin út á vegum Fræðslumiðstöðvar Reykjavík- ur og Rannsóknarstofnunar Kennara- háskóla Íslands. Elín, sem var kennari í Langholtsskóla, gegndi starfi aðstoðar- skólastjóra og ráðgjafa fræðslustjóra í Reykjavík um árabil. Hún hefur alla tíð haft mikinn áhuga á fjölbreyttum kennsluháttum og lagt áherslu á að gera skóla- stofuna að lifandi námsumhverfi fyrir nemendur. Rauði þráður bókarinnar er fjölbreytt, skapandi og einstak- lingsmiðuð kennsla. Bókin er tæplega 140 bls., prýdd fjölda ljósmynda. Enn hefur Sölvi Sveinsson skóla- meistari og íslenskukennari bætt við bók um íslenskt mál. Saga orð- anna er á fjórða hundrað blaðsíðna og hefur að geyma yfirlit yfir ættir og sögu fjölmargra íslenskra orða, gamalla og nýrra. Merking þeirra er skýrð og gerð grein fyrir upp- runa og skyldleika við önnur orð, íslensk og erlend. Íslenskur orðaforði óx svo um munaði á 20. öld og verður það tímabil án efa stór kafli í málsögu framtíðarinnar. Saga orð- anna er innlegg í þau fræði. Iðunn gefur bókina út. Bókin er 384 bls. Margmiðlunardiskur með æfingum í ensku Út er kominn margmiðl- unardiskur með enskum málfræðiæfingum og orða- forðaverkefnum sem kallast BeMa-diskurinn. Í texta sem fylgir diskinum segir: Hugmyndin að þessum tölvudiski er að mæta þörf- um nemenda, sem eru að byrja í framhaldsskóla, fyrir efni til að styrkja enskukunnáttu sína. Reynslan sýnir að þessum nemendum sé ekki gjarnt að leita aftur í gömlu kennslubækurn- ar sínar til þess að lesa sér til um málfræðiatriði sem búið er að kenna þeim. Efnið á diskinum samanstendur af 80 gagnvirkum málfræðiæfingum og 30 orðaforðaæfingum sem hafa verið flokkaðar í undirhópa, til dæmis sagnir, forsetningar, orðmynd- un og stafsetningu. Höfundar eru Betty Nikulasdottir og Mary S. Bache. Diskurinn fæst í bókaverslunum IÐNÚ, Máls og menningar og hjá Eymundsson. Saga orðanna Nemandinn í nærmynd. Skapandi nám í fjölbreyttu umhverf i Ný bók í kennslufræði ætluð kennurum, kennaranemum og foreldrum BeMa-diskurinn Sjúkrasjóður KÍ Sjóðurinn greiðir grunnkrabbameinsskoðun, að hámarki 2.500 kr. Kynntu þér reglurnar. www.ki.is Á þingi Samtaka evrópskra skólastjórnenda (European School Heads Association, ESHA) sem haldið var í Stafangri í Noregi dagana 23.- 25. september var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða. Heimsbyggðin varð fyrir áfalli þann 1. september, á fyrsta skóladegi ársins, þegar hryðjuverkamenn réðust á skóla í Beslan. Við sátum eftir með sáran harm þegar gíslatakan endaði með dauða meira en 350 saklausra barna, foreldra og kennara. Við sem erum hér saman komin í Stafangri í Noregi, rúmlega 400 skólastjórnendur frá 21 Evrópulandi, viljum tjá samúð okkar með skólanum og samfélaginu í Beslan. Við trúum því að menntun æskunnar verðskuldi allan þann stuðning, virðingu og vernd sem samfélagið getur veitt. Mennt- unin er lífæð samfélagsins. Hinir alvarlegu atburðir í Beslan eru reiðarslag, ekki aðeins fyrir Beslan og ekki aðeins fyrir Rússland heldur fyrir allan heiminn. Við skulum standa saman að því að endurheimta traust á að skólinn veiti börnunum öryggi og uppörvandi aðstæður eins og hver skóli á að gera. Og við skulum halda á lofti undirstöðureglu siðmenntaðs samfélags: Látið börnin okkar í friði, látið skólana okkar í friði. Fyrir hönd allra aðildarfélaga, Antonino Petrolino, forseti ESHA Viðstaddir voru skólastjórnendur frá eftirtöldum löndum: Lúx- emborg, Ítalíu, Þýskalandi, Hollandi, Spáni, Ungverjalandi, Frakk- landi, Rússlandi, Eistlandi, Íslandi, Danmörku, Bretlandi, Írlandi, Noregi, Hvíta Rússlandi, Hollandi, Svíþjóð, Finnlandi, Sviss, Tékk- landi og Úkraínu. Ályktun frá þingi evrópskra skólastjórnenda Hryðjuverkin í Beslan

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.