Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 20

Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 20
20 SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004 KJARAMÁL FÉLAGS FRAMHALDSSKÓLAKENNARA Stjórn og samninganefnd FF efndi til árlegs fundar með formönnum félags- deilda og trúnaðarmönnum 1. október sl. Helstu umfjöllunarefni fundarins voru nýútkomin skýrsla menntamála- ráðuneytisins „Breytt námsskipan til stúdentsprófs“ og undirbúningur kjara- samnings fyrir framhaldsskóla. Auk þess var fjallað um framkvæmd núverandi kjarasamnings í framhaldsskólum og samningaviðræður BHM, BSRB og KÍ um réttindamál við samninganefnd ríkisins. Fundarstjóri var Aðalheiður Steingríms- dóttir varaformaður FF. Í upphafi fundar gerði Björk Helle Lassen, í samninganefnd FG, grein fyrir stöðu mála í verkfalli grunnskólakennara sem hafði þá staðið í tvær vikur. Fundurinn samþykkti ályktun til stuðnings kjarabar- áttu félagsmanna KÍ í grunnskólum. Brot á kjarasamningi of algeng í framhaldsskólum Elna Katrín Jónsdóttir formaður FF fjallaði fyrst um þá lagaskyldu að veita trúnaðarmanni upplýsingar um laus störf og mannaráðningar í framhaldsskólum en mikill misbrestur er á að skóla- meistarar virði þetta ákvæði. Elna nefndi nokkur algeng dæmi um að kjarasamningur FF væri brotinn. Hún sagði brýnt að trúnaðarmenn og formenn félagsdeilda þekktu vel kjarasamningsákvæði um starfstíma og árlegan vinnutíma og gerðu sér grein fyrir því að fyrsti mögulegi dagur starfstíma með nemendum væri 22. ágúst ár hvert. Sé það sunnudagur skal byrja 23. ágúst því miðað sé við almanaksdaga. Hún fjallaði um skilgreiningu á vinnutíma námsráð- gjafa og undirstrikaði sérstaklega að fyrir utan sérákvæði í bókun um vinnutíma þeirra gilti það sama um þá og kennara t.d. hefðu þeir að sjálfsögðu bæði jóla- og páskafrí eins og kennarar. Stéttarfélagið er afar óánægt með fram- kvæmd einstakra framhaldsskóla á reglu- gerðarákvæðum um viðmiðunarfjölda nemenda sem skilgreindur er í auglýsingu nr. 4 frá 2001. Endurtekið er yfirbókað í hópa nánast á línuna í einstökum skólum án þess að leita eftir samþykki kennara og oft án þess að sérstaklega sé samið um greiðslur vegna málsins. Kennarar standa því uppi með yfirfulla hópa oft af hreinum sparnaðar- og niðurskurðarástæðum og fagleg gæði eru látin lönd og leið auk þess sem álag á kennarana er óhóflegt. Að lokum var fjallað um samhengi milli eininga og kennslustunda sem er einnig skilgreint í auglýsingu nr. 4 frá 2001 og á að vera tvær kennslustundir á viku á móti hverri kenndri einingu eða t.d. 6 kennsl- stundir á viku í 3 eininga áfanga. Heimilt er að leita afbrigða frá meginreglunni í einstökum tilvikum samþykki kennari það. Veruleg brögð hafa verið að því að kennslutími sé hafður af nemendum og laun af kennurum með því að þrýsta á um að kenna áfanga á færri stundum en tilskil- ið er. Stundum liggja eðlilegar ástæður að baki, s.s. þegar nemendur eru örfáir. Al- mennt talað virðist þetta vera óheillaþróun og örþrifaráð skóla til að spara fé á kostn- að faglegra gæða og með tilheyrandi kjara- skerðingu fyrir kennara. Með þessum hætti er grafið undan kjarasamningnum og vegið að fagmennsku kennara. Elna auglýsti eftir dæmum um þetta og hvatti trúnaðarmenn og formenn félagsdeilda til að spyrna við fótum þar sem þetta er reynt. Skýrslan bláa, „Breytt námsskipan til stúdentsprófs“ Elna Katrín gerði grein fyrir nýút- kominni skýrslu menntamálaráðuneytis um styttingu námstíma til stúdentsprófs. Mikil andstaða reyndist vera við málið meðal kennara þegar viðhorf þeirra til málsins voru könnuð árið 2003. Stjórn KÍ hefði þó metið það svo að skynsamlegt væri að taka þátt í umræðu um málið til að fá möguleika á að hafa áhrif á hvernig styttingin yrði framkvæmd. Það eitt gæti tryggt að þeir hagsmunir sem KÍ setur á oddinn næðu fram að ganga. Aðildarfélög KÍ stóðu öll saman að álitsgerð og tillögum um framkvæmdaáætlun til menntamála- ráðherra í október 2003. Fyrir ári hófu þrír starfshópar störf sem FF tilnefndi fulltrúa í að ósk mennta- málaráðherra. Einn hópurinn fjallaði um námskrár- og gæðamál, annar um starfs- mannamál og sá þriðji um fjármál. Með stefnumörkun KÍ og vinnu fulltrúa þess í starfshópunum náðist ýmislegt fram sem KÍ telur mikilvægt. Samráð var haft við fag- félög um greinabundin málefni og lagt til að aðalnámskrá yrði endurskoðuð allt frá leikskóla til framhaldsskóla. Að mati kenn- arasamtakanna er hins vegar alls ekki nægi- lega skýrt fjallað um nauðsynlegar breyt- ingar á kennaramenntun, hvergi er minnst á brottfall úr framhaldsskólum, almennu brautina né stuðning við nemendur sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Hvergi í skýrslunni né í starfi starfshópanna var held- ur á dagskrá að gera tillögur um breytingar á öðru námi en bóknámi til stúdentsprófs. Elna Katrín hvatti fólk til að kynna sér Fundur með formönnum félagsdeilda og trúnaðarmönnum

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.