Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 28

Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIR OG TILKYNNINGAR SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004 Golfmót starfsfólks framhalds- skólanna fór fram í fimmta sinn nú í haustbyrjun á golf- vellinum Leyni, Akranesi. Sveit Iðnskólans í Reykjavík bar sigur úr býtum í keppninni, auk þess sem einn keppenda skólans, Skjöldur Vatnar Björnsson, var stigahæstur þátttakenda í mótinu. Skipulag keppninnar er þannig að þrír efstu einstaklingar hvers skóla í lok móts mynda sveit og voru það þau Baldur Gíslason skólameist- ari, Guðrún Erna Guðmundsdóttir brautarstjóri fataiðna og Skjöldur Vatnar Björnsson sviðsstjóri byggingasviðs. Í öðru sæti í keppninni var Iðnskólinn í Hafnarfirði og Verzl- unarskólinn í þriðja sæti. Laun kennara í Nor- egi hafa hækkað verulega undanfarin ár. Ráðist var í sér- stakt átak til að jafna þátttöku kynjanna í grunnskólakennslu og til þess varið mikl- um fjármunum. Aðal markmiðið með aðgerðunum var að fjölga karlmönnum í kennarastétt og auka virðingu almennings fyrir starfinu. Árangurinn er þegar farinn að sjást. Kennarastarfið er nú eftirsóttara í Noregi en áður og laðar fleiri karlmenn að. Að sögn Arni Hole, deildarstjóra í norska menntamála- ráðuneytinu, er næsta skref að hækka laun leikskólakenn- ara. Í leikskólum landsins starfa nú um 70 þúsund manns og þar af eru 8% karlar. Stefnt er að því að fjölga þeim í a.m.k. 20% eftir fjögur ár. Helstu rök fyrir þessu eru að drengir og telpur þurfi að umgangast og kynnast báðum kynjum. Arni Hole bætti við að ekki væri nóg að hækka launin, breyta þyrfti hugarfari fólks gagnvart þátttöku í atvinnulífinu. Að hennar mati er of algengt að konur vinni hlutastörf og beri hitann og þungann af heimilis- haldi. Karlar í Noregi einoki vellaunuð ábyrgðarstörf í samfélaginu. Byggt á tíufréttum Sjónvarps 27. september 2004. Tannverndarráð mun standa fyrir árlegri tannverndarviku 1. til 7. febrúar nk. Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á tóbak og tannheilsu. Hægt er að nálgast fræðsluefni um tannheilsu og tann- vernd fyrir fagfólk og almenning á heimasíðu Tannvernd- arráðs. Þar er lögð áhersla á fræðslu fyrir afmarkaða hópa, s.s. börn, unglinga, aldraða og sjúka. Meðal annars hefur verið sett upp á heimasíðunni svo- kallað Kennarahorn en þangað geta kennarar sótt verkefni og kennsluefni fyrir börn í leikskól- um og grunnskólum. Helstu markmið efnisins eru að börn skilji mikilvægi þess að hugsa vel um tennurnar og viti hvað þarf til að hirða þær vel. Einnig að þau læri að gera greinar- mun á góðum og slæmum fæðutegundum fyrir tennurnar. Slóðin er www.tannheilsa.is. Golfmót starfsfólks framhaldsskólanna Sveit Iðnskólans í Reykjavík sigraði Golfsveit Iðnskólans í Reykjavík, frá vinstri Baldur Gíslason, Guðrún Erna Guðmundsdóttir og Skjöldur Vatnar Björnsson. Laun hækka - virðing eykst Tóbak og tannheilsa Lj ó sm . H a u k u r M á r H a ra ld ss o n .

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.