Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 19

Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 19
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004 Vinnuhópur á vegum norrænu tónlist- arnefndarinnar, NOMUS, hefur sett saman skjal þar sem fram kemur hvað sé efst á baugi í umræðu norræns sam- starfs á sviði tónlistarmála. Skjalið var stefnumótandi grunnur fyrir skipuleggj- endur svæðisþinganna, FT, og voru hug- myndir vinnuhópsins kynntar þar. Umræðu- og viðfangsefni vinnu- hópsins kallast „músaík“. Orðið er sett saman úr orðunum músík og mósaík. Annars vegar fjallar Músaík um menn- ingarlegan fjölbreytileika í tónlistar- kennslu og hins vegar um stefnumörk- un fyrir tónlistarskóla. Verkefninu, sem nýtur stuðnings frá Norðurlandaráði, er ætlað að stuðla að jafnrétti og jafn- ræði í tónlistarkennslu með þrenns kon- ar hætti. Í fyrsta lagi með því að skrá og þróa aðferðir sem gagnast til þróunar tónlistarkennslu í fjölmenningarlegu samfélagi Norðurlandanna. Í öðru lagi með því að koma á norrænu samstarfs- neti sem gerir þekkingu og reynslu á sviði fjölmenningar aðgengilegri fleir- um en nú er og síðast en ekki síst með því að örva umræður og vitund um gildi aukins menningarlegs fjölbreyti- leika fyrir tónlistar- og menningarpóli- tík Norðurlanda. Verðugt verkefni fyrir stjórnendur tónlistarskóla Til þess að tryggja framgang verk- efnisins hefur verið komið á tengihópi með fulltrúum frá Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi, Íslandi og Noregi. Fljótlega eftir að hópurinn hóf störf kom í ljós þörf fyrir að skilgreina og setja fram sterk menningarpólitísk rök fyrir störf- um hans. En þau eru að alþjóðavæð- ing, fólksflutningar og tæknileg þróun hefur breytt daglegu lífi fólks á Norður- löndum. Tónlist frá öðrum heimshlut- um en Evrópu og Norður-Ameríku er orðin aðgengilegri en áður var og með nútímalegum miðlum er tónlist frá öll- um heimshlutum orðin hluti af okkar daglega umhverfi. Þessi þróun kallar á nýja sýn þeirra sem stjórna tónlistarskól- um og menntun tónlistarkennara þarf að svara kalli nýrra tíma. Tilraunir skila mismiklum árangri Víða hafa verið gerðar tilraunir til að ná til nýrra hópa nemenda og að taka inn aðrar tegundir tónlistar í tón- listarkennslu en hingað til hafa verið kenndar í tónlistarskólum. Í mörgum af undirverkefnum Músaík-verkefnis- ins hefur komið í ljós að samstarf milli æðri menntastofnana og grunnmennt- unar hefur víða skilað góðum árangri en einnig eru til dæmi um verkefni sem hafa verið tímabundin og ekki náð að hrófla við hinu rótgróna menntakerfi. Þetta kallar á nauðsyn þess að viður- kenna mismunandi færni í flutningi tónlistar. Undirbúningsnámskeið, mentor-fyrirkomulag, o.fl. geta orðið mikilvæg atriði í slíku ferli. Ástæða er einnig til að ræða með hvaða hætti inn- tökupróf geta náð til þeirra sem hafa annan menningarlegan bakgrunn en meirihlutinn. „Músaík“ Svæðisþing tónlistarskóla á Vestur- landi og Vestfjörðum fór fram 17.-18. september í tónlistarsalnum Hömrum í hinu sögufræga Húsmæðraskólahúsi á Ísafirði sem nú hýsir Tónlistarskóla Ísafjarðar. Þingið sóttu um 40 tón- listarskólakennarar og skólastjórar. Robert Faulkner, skólastjóri Tónlistar- skóla Hafralækjarskóla, fjallaði um menningarlegan fjölbreytileika og sagði frá verkefni skólans þar sem norskir nemendur voru fengnir til að kenna íslenskum nemendum að spila á „Marimba“ sem eru ásláttarhljóðfæri ættuð frá Suðaustur-Afríku. Robert skýrði m.a. frá tilurð og þróun verk- efnisins og þeim lærdómi sem fengist hefði af því. Svæðisþing tónlistarskóla á Norð- ur- og Austurlandi var haldið föstu- daginn 1. október í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit. Rúmlega 70 tónlistarskólakennarar og skóla- stjórar sóttu þingið. Eva Saether, deildarstjóri fjölmenningardeildar Tónlistarháskólans í Malmö í Svíþjóð, ásamt aðstoðarfólki, kynnti fjölmenn- ingarstarf skólans sem felur m.a. í sér að senda tónlistarkennaranema í þriggja vikna starfsþjálfun til Gambíu í Afríku eða Argentínu í Suður-Ameríku. Þau skýrðu m.a. frá því hvernig starfs- þjálfunin skilaði sér í skólastarfinu, bæði persónulega og faglega til nem- enda og kennara og til samfélagsins í heild. RÁÐSTEFNUR OG ÞING 19

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.