Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Síða 6
Hlutafjárarður greiddur aðilum heimilisföstum inn-
anlands er ekki staðgreiðsluskyldur.
Arður greiddur úr landi er staðgreiðsluskyldur og er
skatthlutfallið 28,69% þegar um er að ræða einstak-
ling en 20% þegar um er að ræða félag. I tvísköttun-
arsamningum er alltaf samið um lægra hlutfall, en þar
er almenna hlutfallið 15% en hlutfallið í beinni þár-
festingu 0 til 5%.
Arður erlendis frá er skattskyldur en frádrátmr
vegna greidds staðgreiðsluskatts á arð erlendis er
veittur samkvæmt tvísköttunarsamningum eða sam-
kvæmt sérstakri beiðni sé samningur ekki fyrir hendi.
Þetta gildir einnig um arðgreiðslur til félags heimil-
isfasts á Islandi frá erlendu félagi. Islenska félaginu
ber að telja slíkan arð að fullu til skattskyldra tekna.
Hafi arðurinn sætt staðgreiðsluskatti erlendis kemur
hann til frádráttar íslenska skattinum. Hins vegar er
ekki veitt nein undanþága eða frádráttur vegna þess fé-
lagaskatts sem hið erlenda félag hefur greitt.
Þetta má skýra nánar með eftirfarandi dæmi í töflu
1B. Miðað er við arðgreiðslu til íslensks móðurfélags
frá finnsku dótturfélagi, en félagaskatmrinn í Finn-
landi er 25% og staðgreiðsluskattur 0, sbr. síðar í kafla
5.1.
TAFLA 1B
FINNLAND
Hagnaður dótmrfélags í Finnlandi 100
Félagaskattur í Finnlandi 25% ( 25)
Arður til útborgunar 75
Staðgreiðsluskattur 0
Arður til Islands eftir skatt 7 5
ÍSLAND
Arður ffá dótmrfélagi í Finnlandi 7 5
Tekjuskatmr á íslandi 33% (25)
Hagnaður móðurfél. á Islandi eftir skatt 50
2. Skattgreiðslur af arði milli hlutafélaga
Varðandi skattgreiðslur af arði milli hlutafélaga
gilda mismunandi reglur í hinum ýmsu Evrópulönd-
um innan OECD.
Ef tekið er mið af Finnlandi sem beitir ígildisaðferð
em meginreglurnar í smtm máli þessar: Hlutafélagið
sem greiðir arðinn hefur greitt 25% félagaskatt af
hagnaði án nokkurs ffádráttar. Hlutafélagið sem mót-
tekur arðinn telur hann til tekna að viðbættu ígildi fé-
lagaskattsins hjá geiðslufélaginu en dregur frá sömu
fjárhæð vegna ffádráttarreglnanna, sbr. dæmið í töflu
1A hér að framan. ígildisfrádrátturinn nemur 1/3 af
nettóarðinuin (75x1/3=25) sem samsvarar 25% skatti
af brúttó arði. Þannig er komið í veg fyrir tvísköttun
arðs milli félaga.
Ef tekið er mið af Hollandi þar sem sígilt kerfi ríkir
þá eru meginreglurnar eftirfarandi: Þegar hlutafélag
móttekur arð frá öðra hlutafélagi er hann að aðalreglu
skattskyldur að fullu. Frá þessari reglu gildir hins veg-
ar sú mikilvæga undantekning að arður sem hlutafélag
móttekur frá öðra hlutafélagi sem það á að minnsta
kostd 5% eignarhlutdeild í (auk annarra skilyrða) er
undan þegið skatti hjá fyrst nefnda félaginu. Þessi
undanþága er nefnd hlutdeildarundanþága (part-
icipation exemption). Ef hún á við er arðurinn einnig
undanþeginn afdrætti skatts (withholding) hjá félaginu
sem greiðir arðinn. Þannig er komið í veg fyrir tví-
skötmn skatts milli hlutafélaga með ákveðnum skil-
yrðum.
Það er fróðlegt að bera þessi tvö dæmi um skatdagn-
ingu arðs milli félaga saman við íslenska kerfið. Það
verður gert með töflunni hér á eftir. Forsendur era
eftirfarandi:
Hlutafé í félaginu sem greiðir arðinn (d) er kr. 1000
þús. og hagnaður kr. 100. Tekjuskattur er 33% og all-
ur arður effir skatt er greiddur út. I dæminu á hluta-
félagið sem móttekur arðinn (m) meirihlutann í félag-
inu sem greiðir hann út. I ígildiskerfinu er gert ráð
fyrir því að móðurfélagið njóti fulls ígildisfrádráttar og
að í sígilda kerfinu gildi hlutdeildarundanþága.
TAFLA 2 . ígildiskerfi DÓTTURFÉLAG Sígilt kerfi ísienskt kerfi
Hagn. dótmrfélags 100 100 100
Frádráttarbær arður 0 0 100
Skattsk. tekjur d hf 100 100 0
Tsk. dótturfélags (33) (33) 0
Arðsúthlumn MÓÐURFÉLAG 67 67 100
Arðstekjur móðurf. 67 67 100
Tsk. móðurfél 0 0 (33)
Tekjur m hf eftir skatt 67 67 67
Af dæminu sést að þegar 10% frádráttarreglan veld-
ur því að skattskyldar tekjur dótturfélagsins verða 0 þá
er útkoman sú sama í kerfunum þremur.
4