Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 9

Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 9
/Oý DðguKv Þegar ástvinur deyr, er eins og hluti manns sé slitinn burt, brottnuminn og því verður ekki brey tt. V iðbrögð okkar bir tast í sorginni, og er sá ferill oftast langvarandi, sársauka- fullur og erfiður. Sorgin er eðlileg og ekki skilgreind sem sjúkdómur. Ef vel tekst til (eða öllu heldur, ef allt er „eðlilegt") getur hún snúist til huggunar, meiri lífsþroska og aukins persónulegs styrks. Þegar best lætur nær sorgin að þróast til sáttar og innri friðar. Ef illa tekst til, getur sorgin haft mjög alvar- legar afleiðingar í för með sér, afleiðingar, sem geta leitt til mikillar vansældar og jafn vel veikinda. 2. Eins og gefur að skilja er mismunandi hvernig dauða fólks ber að höndum. Við- brögð okkar eru líka í samræmi við það. Þegar aldraður maður deyr, sem ef til vill hefur legið lengi fyrir dauðanum, saddur lífdaga og ófær að mestu leyti, eru flestir nákomnir að einhverju leyti undirbúnir. Dauði hans kemur engum á óvart og er jafnvel léttir fyrir aðstandendur. Þó skyldi maður aldrei reikna með því að fólki finnist dauðinn sjálfsagður, þegar ástvinir eiga í hlut og staðreynd dauðans blasir við. Óvæntur dauðdagi, t.d. af völdum líkamlegs áfalls (t.d. hjartastopp, heilablóð- fall), og þó einkum dauði af völdum slysa (t.d. bifreiðaslys, sjóslys, flugslys, atvinnu- slys) eða vegna sjálfsvígs, kemur ástvinum mjög í opna skjöldu og hefur í för með sér miklu stórtækari viðbrögð og sársaukafyllri fyrir viðkomandi. Þegar andlát er tilkynnt ber því að auðsýna mikla gætni og tillitsemi. Sérstaklega er mikilvægt að rétt sé að slíkri tilkynningu staðið, þegar um skyndidauða er að ræða. 3. Hversemer, geturlentíþeirriaðstöðu að þurfa að láta vita um dauðsfall. Það er ávallt mjög erfitt hlutskipti, m.a. vegna þess að hver sá, er þarf að koma slíkum skila- boðum á framfæri, kemst ekki hjá því að mæta þeim sterku, tilfinningalegu átökum, sem óhjákvæmilega koma yfir þann, sem þarf að meðtaka slík dauðans vátíðindi. Allir sem þurfa að flytja slíkar fréttir, hljóta að gerast hluttakendur í þeim sárs- auka, sem viðtakendur verða fyrir, og gildir þá að kunna að hafa stjóm á tilfinningum sínum, orðum og gerðum- og geta orðið að liði, en verða ekki byrði. 4. Þessi tilkynningarskylda leggst mun oftar á herðar starfsfólks heilbrigðisstétta, en flestra annarra. Einkum lækna og hjúk- runarfræðinga. Lögreglan kemur hér oft að góðu liði og í Reykjavík og nágrenni er það þó oftast rannsóknarlögreglan. Algengt er, einnig að prestar séu hér kallaðir til, enda eiga þeir í námi sínu, sálgæslunámi, að vera sérstaklega undir það búnir. Ég þykist þó vita, að sérstakur undirbúningur fyrir slík verkefni hafi verið mjög takmarkaður fram til þessa. Einnig býst ég við að í námi hjúkrunarfræðinga sé sálgæslunám oft af mjög skornum skammti, og þá ekki síður í læknanámi, þótt undarlegt sé. Ég tel mig þó líka vita það með vissu, að á öllum þessum námsbrautum hafi orðið mikil viðhorfs- breyting til hins betra, nú allra síðustu misseri. 5. Hér á eftir leyfi ég mér að setja fram nokkur atriði er varða tilkynningu andláts, er mættu verða til leiðbeiningar þeim, sem þurfa að flytja slík tíðindi. 5. 1. Tilkynning þarf að berast svo fljótt sem kostur er. (Þetta þarf að gerast án þess að sá sem tilkynnir, fari sér að voða í óðagoti, enda er nauðsynlegt að hann haldi stillingu sinni). Aðstandandi á rétt á því að honum berist andlátsfregn sem fyrst, og áður en hún berst honum með öðrum hætti, kannski miður heppilegum, t.d. gegnum fjölmiðla. Ef dráttur verður á tilkynningu, getur það vakið upp reiði og jafnvel ásakanir að óþörfu. Þegar spurning vaknar um það, hvort andlát eigi að tilkynna eða ekki, einhverjum, sem er erlendis t, .d. í sumarleyfi, gildir langoftast sú regla að láta hann vita, hvað hafi gerst, en hjálpa honum síðan að meta, h vað best sé að gera, t.d. hvort hann komi heim eða verði kyrr. 9

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.