Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 31

Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 31
/Oý Dögurv Erfðaskrá verður að gera skriflega með tveimur vottum eða staðfesta hjá notario publico sem jafnframt er skiptaráðandi og vottfesta. Erfðaréttur langlífari maka - Erfðaskrá Við skipti eftir lát skammlífari maka nýtur langlífari maki að sjálfsögðu helmings búshluta síns og auk þess lögerfðaréttar úr búshluta skammlífari og einnig úr séreign, hans hafi hjónin gert kaupmála. Þá nýtur langlífari maki einnig búshluta úr séreign sem samkvæmt ákvæðum laga eða kaup- mála á að hlíta reglum um hjúskapareign að öðru hjóna látnu. Sé sameiginlegum niðjum eða niðjum skammlífari til að dreifa fær langlífari maki 1 /3 í arf eftir maka sinn. Hafi skammlífari ekki átt niðja tekur langlífari allan arf eftir hann. Erfðaréttur langlífari maka hefur verið rýmkaður, og er það enn eitt dæmið um hvemig reynt hefur verið að draga úr þeirri röskun á stöðu og högum, sem andlát maka hefur í för með sér. Síðast var afnuminn erfðaréttur foreldra skamm- lífari maka, ef hann átti enga niðja á lífi, en áður tóku þá foreldrarnir 1/3 arfs, en maki 2/3. Fari skipti hins vegar ekki fram fyrr en eftir andlát langlífari maka, svo sem vegna þess að langlífari maki hefur fengið leyfi til setu í óskiptu búi, fellur niður lögmæltur erfðaréttur hins langlífari eftir hið skamm- lífara. Þá geta hjón, svo og sambúðarfólk einnig bætt stöðu langlífari með arfleiðslu í gagnkvæmri erfðaskrá, með því að arfleiða það sem lengur lifir að öllum eignum hins skammlífari, enda eigi arfleiðandi ekki skylduerfingja þ.e. niðja, en aðeins að 1 /3 sé skylduerfingja til að dreifa. Með gerð erfða- skrár og sambúðarsamningi má gera stöðu langlífari sambúðaraðila þannig, að hann verði eins eða svipað settur og langlífari maki, en reglur erfðalaga um óskipt bú geta ekki átt við og lögerfðatengsl eru ekki á milli sambúðaraðila. Þá getur arfleiðandi einnig með erfðaskrá að vissum skilyrðum uppfylltum, ráðstafað ákveðnum munum úr séreign sinni eða hjúskapareign, til skylduerfingja, annarra en maka, þ.e. barna eða annarra niðja, en hins vegar hefur langlífari maki að lögum forgangsrétt til útlagningar á einstökum munum, og getur þ ví þrátt fyrir arfleiðsluna krafistþeirra. Langlífari sambúðaraðili hefur ekki þennan forgangsrétt að lögum, og yrði því að tiltaka þá hluti sérstaklega, sem eftirlifandi sambúðaraðili á að eignast forgangsrétt til. Við dánarbússkipti getur langlífari talið til réttinda, sem ekki verða afhent eða fram- seld öðrum eða eru persónulegs eðlis. Slíkum réttindum kann hann að geta haldið utan búskipta. Má þar nefna eftirlaun, lífeyri, forlagseyri, framfærslurétt, höfundaréttindi og réttindi til auðkenna, örorkubætur, óframseljanlegan rétt til höfuðstóls, bætur fyrir missi fyrirvinnu og fyrir þjáningar og miska og persónulega muni, t.d. verðlaun vegna afreka í íþróttum og vísindum. Þá getur eftirlifandi maki tekið af óskiptu, muni sem eingöngu eru ætlaðir honum til nota, enda sé ekki verð þeirra óeðlilega hátt miðað við efnahag búsins. Sem dæmi um þetta er stundum nefnt íþróttaáhöld, fatnaður, hjólastóll, skartgripir o.fl. Einnig getur eftirlifandi maki, tekið af óskiptu, ef fjármunir bús eru lítils virði, húsgögn, verkfæri og aðra lausa muni, sem telja verður nauðsynlegt til að hann geti haldið áfram atvinnu sinni. Þá getur langlífari maki haldið öllu búinu eða nokkru af því, þótt það fari fram úr búshluta og arfi makans, enda skuldbindi hann sig til að greiða samerfingjum sínum í peningum það sem umfram er. Því hefur verið haldið fram, að þetta geti verið honum mikið hagsmunamál, þar sem mat sé yfirleitt lágt hjá skiptarétti, en til þess að finna verðmæti búsins og erfðahluta verður að meta eignir búsins til peninga. Lögráða erfingjar geta veitt langlífari maka greiðslu- frest og með leyfi skiptaréttar og að upp- fylltum frekari skilyrðum, getur langlífari 31

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.