Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 19

Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 19
Dögut\ stór hluti heilbrigðisstarfsmanna illa undir- búinn til að sinna deyjandi fólki. í langri upptalningu á streituvöldum í starfi hjúkrunarfræðinga er vinna með mikið veikasjúklingaog deyjandiofarlegaá blaði. Hvað veldur? Er það bara menntunar- og þjálfunarskortur? Að hlutaerþað skýr- ingin en e.t.v. ekki síður spurningin um viðhorf. Við höfum ekki nýtt þekkingu okkar á skipulegan hátt til að meðhöndla og líkna dauðvona fólki. Slíkt starf er oft talið mjög andlega krefjandi, sem það oger, lítið faglega örvandi,einhæft og árangurinn ákaflega dapurlegur - það deyja allir! Það eru nokkur grundvallaratriði, sem nauðsynlegterað hafa í huga, þegar unnið er með dauðvona sjúklinga. Þó að þau atriði sem hér er fjallað um byggi á reynslu við umönnun krabbameinssjúklinga hafa þau einnig almennt gildi. Markmið Þegar unnið er með dauðvona sjúklinga, verður ávallt að hafa í huga þá staðreynd að dauðinn sé eðlileg endalok lífsins. Það verður að virða rétt hvers og eins til að deyja með reisn og virðingu. Meðferð og markmið verða að miðast við að tíminn sé takmarkaður, miðast við að gera lífið sem bærilegast og þjáningarminnst þar til yfir lýkur. Heilbrigðisstarfsfólk hefur lengi haft ofurtrú á mætti tækninnar og minna sinnt hinni mannlegu hlið. Bæði hjúkrunar- fræðingar og læknar hafa fengið góða þjálfun í að lækna enda sjaldan kvartað undan kunnáttuleysi starfsfólks í þeim efnum. En gildi lækningarinnar er oft óeðlilega mikið, sérstaklega innan læknisfræðinnar, þegar tillit er tekið til þess að aðeins er unnt að lækna hluta hinna sjúku. Við gleymum stundum að skyldur okkar við sjúklinginn eru margþættari en að lækna. Twycross, þekktur enskur „hospice" læknir segir á einum stað. „Það er STUNDUM hægt að lækna, OFTAST hægt að lina þrautir en ALLTAF hægt að líkna." Þegarmarkmiðið erað lækna er leyfilegt að beita aðferðum sem valda (oft miklum) aukaverkunum meðan á meðferð stendur enda auðveldara að þola tímabundnar aukaverkanir þegar batahorfur eru góðar. Ungum manni um tvítugt með nokkuð úibreitt eistakrabbamein er gefin krabbameins- meðferð, sem fylgja miklar aukaverkanir. En batavonir eru góðar og pess vegna er auðveldara fyrirhann að ganga ígegnum meðferðina, pviað hann veit að prautirnar taka enda og von er um betri líðan og fulla heilsu. Það er lika mun auðveldara fyrir starfsfólk að gefa slika meðferð og styðja unga manninn í að halda út vegna vissunnar um bata. Þegar batavon er lítil þurfa markmiðin augljóslega að vera önnur. Þá þarf að velja meðferð sem stuðlar að sem bestri líðan sjúklingsins á líðandi stund. Meðferðin þarf að miðast við að lina þau einkenni sem valda sjúklingnum óþægindum og gefa jafnframt sem minnstar aukaverkanir. Það er nútíðin en ekki framtíðin sem gildir. Margir heilbrigðisstarfsmenn, og þá sér- staklega læknar, líta á það sem mistök af sinnihálfuað geta ekki læknað ogeigaerfitt með að hafa önnur markmið, svo sem líkn, að leiðarljósi. Það er hins vegar svo að aðhlynning dauðvona sjúklinga er oft á tíðum marg- slungin og krefst miklar læknis- og hjúkrunarfræðilegrar þekkingar. Það er alltaf hægt að gera eitthvað, það er einungis spurning um markmið og leiðir. Skýr mark- mið eru forsenda þess að hægt sé að veita deyjandi einstaklingi og fjölskyldu hans aðstoð. Ef hjúkrunarfólkið velkist í vafa um eðli meðferðarþáerþví ómögulegtað veita öðrum öryggi og stuðning. Einkennameðferð Stór hluti þeirra sem deyja úr langvinnum líkamlegum sjúkdómum þjást af verkjum, andnauð, þrekleysi o.fl. semnauðsynlegter að meðhöndla. Sjúklingur með óbærilega verkiþarfekkiá stuðningssamtali að halda, hann þarf fyrst og fremst einh vern sem kann verkjameðferð, getur greint tegund verkja, 19

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.