Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 22

Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 22
AJý Dögun önnun hins deyjandi, útskýra afleiðingar sjúkdómsins eða aukaverkanir lyfjanna. Samfara þessari daglegu umönnun gefst tækifæri til að auðvelda aðstandendum að tjá sigum hversu erfitt þetta sé, um óttann við framtíðinaeðajafnvelmæta neikvæðum tilfinningum þeirra án fordóma. Það að fá að taka þátt í umönnun sinna nánustu er leið tilað leggjaeitthvað afmörkum, fá tækifæri til að sýna umhyggju sína og er oft huggun í sorginni. Sólveigu hitti égfyrst á mánudegi og hún dó á miðvikudegi. Hún var ípjónustu okkar íhálfa viku,ensamtfannst ættingjunumað við hefðum veitt peim ómetanlegan stuðning. Sólveig og fjölskylda hennar hafði verið mjög sjálfbjarga gegnum veikindi hennar. Hún var alveg skýr á mánudegi, enfékksíðan afar kvalafulla verki sem ekkert var hægt að gera við annað en að gefa verkjalyfpar til peir urðu polanlegir. Eftir petta lá Sólveig í móki ogfékk síðan hægt andlát. Eins og oft er varðfjölskyldan óöruggfyrst eftirandláti en safnaðist pó saman. Þegar hjúkrunarfræð- ingurinn byrjaði að hagræða og pvo líkinu, byrjuðu allir að gera eitthvað; strauja nátt- kjólinn, sem átti að klæða Sólveigu í, hita kaffi, laga til íherberginu,finna kerti og blóm, hugga hvert annað og að lokum tóku systur og mág- konurhennarvið störfum hjúkrunarfræðingsins oggengufrá líkinu.Þarnavarðpátttakan huggun í sorginni. Okkar hlutverk var parna að stilla óbærilega verki og virkja ættingjana aftur til pátttöku. Þegar sjúklingur er dauðvona er oft nauðsynlegt að létta á þagnarskyldunni gagnvart sjúklingi. Það þarf í miklu ríkara mæli að upplýsa aðstandendur í tíma um að sjúklingur sé dauðvona. Það er líka nauðsynlegt að gefa báðum aðilum sömu upplýsingar, helst saman, til þess að forðast tortryggni og auka samheldni og öryggi. Þetta er oft miklu auðveldara í heimahúsum þar sem hlutirnir eru ræddir upphátt í eðlilegu samhengi og aðstandendurnir eru viðlátnir þegar hjúkrunarfólkið er ástaðn- um. Þannig er auðveldara að koma skila- boðunum áleiðis smám saman. Þetta er hins vegar erfiðara inni á spítala þar sem læknarnir eru sjaldnast til taks þegar ætt- ingjarnir eru þar og öfugt. Fjölskyldufundir eru ein leið til þess að ná aðstandendunum og starfsfólki saman, gefa kost á að ræða sjúkdómsferilinn, hvað komi til með að gerastínánustuframtíð og hvaða þjónusta eða aðstoð standi til boða. Slíkir fundir komaað gagni sérstaklega í upphafi þjón- ustu/veikinda en einnig þegar augljósar breytingar eru skammt undan. Þótt fund- imir taki tíma auka þeir oft á samheldni fjölskyldunnar og spara þannig tíma þegar til lengdar lætur. Fundir af þessu tagi hafa ósjaldan hjálpað aðstandendum til þess að byrja að tala saman. Þetta verður einhvers konar þjálfun í samræðum um viðkvæm mál - “fyrst þau geta talað um þetta við hann Jón ætti okkur að vera óhætt að reyna líka!" Stuðningi við aðstandendur ætti ekki að ljúka við andlátið, eins og gerist því miður í flestum tilvikum. Sorgarferillinn er talinn taka a.m.k. eitt ár og er æskilegt að fylgja syrgjendum eftir þann tíma, nokkuð þétt í byrjun og síðan með lengra millibili þartil sleppt er af þeim hendinni. Slík fylgd hefur ekkitíðkast hérlendis fyrr en með ráðningu sjúkrahúspresta við stóru sjúkrahúsin. Við sem sinnum dauðvona sjúklingum í heima- húsum lítum á slíka starfsemi sem nauð- synlegt framtíðarverkefni. Éghefvalið að tala nokkuð almennt um þetta efni og lýsa frekar skilyrðum fyrir stuðningi en beinlínis hvernig hann er framkvæmdur enda hlýtur hann alltaf að vera ákaflega einstaklingsbundinn. Það er svo algengt að halda að það sé nóg að vilja vel, en á þann hátt hjálpar maður fáum. Aðhlynning dauðvona sjúklinga krefst þekkingar, þjálfunar og markvissra vinnu- bragða. En undirstaðan er virðing fyrir einstaklingnum, lífinu og margbreytileika þess. Við sem störfum við þetta þurfum að trúa að eitthvað séhægtað geraogað það sé einhvers virði. 22

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.