Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 34

Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 34
/Oý "Dögun. tryggingar, þar sem slys við heimilisstörf eru all algeng. Dánarbætur Leiði slys til dauða innan tveggja ára frá því að slysið varð, skal greiða dánarbætur til ekkju eða ekkils, sem var samvistum við hinn látna eða á framfæri hans, í 8 ár. Þessar bætur eru óháðar öllum öðrum bótum en 6 og 12 mánaða bótum til ekkju eða ekkils, og falla ekki niður þó stofnað sé til hjúskapar á ný. Auk þess greiðist barnalífeyrir með börnum hins látna til 18 ára aldurs. Hafi maki verið orðinn 50 ára eða eldri, þegar slysið varð, eða starfsorka hans skert um 50% eða meira, greiðist auk nefndra bóta sérstakur lífeyrir til 67 ára aldurs, en hann fellur þó niður við nýja hjónabandsstofnun. Hafi hinn látni haft á framfæri barn yfir 16 ára aldri sem er meira en 33% öryrki, skal greiða því tiltekna fjárhæð. Karl og kona sem búið hafa saman og eru bæði ógift eiga sama rétt til bóta og ekkill eða ekkja, eins og lýst var í kaflanum um ekkjulífeyri. Vinnuslysatryggingar samkvæmt kjara- samningum Algeng eru í kjarasamningum stéttar- félaga við vinnuveitendur, ákvæði um frekari vinnuslysatryggingar, en falla undir reglur almannatrygginga. Er þá vinnuveit- endum gert skylt, að tryggja launþega þá, sem samningurinn tekur til, fyrir dauða eða varanlegri örorku af völdum slyss í starfi eða á eðlilegri leið til og frá heimili og vinnustað. Stundum er tryggingarskyldan víðtækari. An þess að það hafi verið sérstak- lega kannað virðast dánarslysabætur greiðast í flestum tilfellum eingöngu eftirlifandi maka, nema annað sé sérstaklega tekið fram, fyrir utan greiðslur til bama, kjörbarna og fósturbarna. Bætur sjúkra- eða styrktarsjóða verkalýðs- félaganna Samkvæmt lögum ber vinnuveitendum að greiða í sjúkra- eða styrktarsjóði verka- lýðsfélaganna 1 % af útborguði kaupi verka- fólks, nema um hærri greiðslur hafi verið samið í kjarasamningi. Sem dæmi í þessu sambandi má taka, að Verslunarmannafélag Reykjavíkur kaupir svokallaða frítímatryggingu fyrir alla launþega, sem til sjúkrasjóðsins greiða. Við andlát fullgilds félaga greiðir sjóðurinn eftirlifandi maka, og eftir atvikum sam- búðaraðila dánarbætur og einnig bætur með börnum undir 21 árs aldri. Sækja þarf um þessar bætur. Hjá sumum sjúkrasjóðum stéttarfélag- anna eru bætur þessar hins vegar nefndar útfararstyrkur eða greiðsla upp í útfarar- styrk. Þessar bætur geta numið nokkrum upp- hæðum og eru þýðingarmiklar. Bætur lífeyrissjóða Samkvæmt lögum er öllum launamönn- um, og þeim sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, rétt og skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði. Ef sjóðfélagi andast og lætur eftir sig maka á lífi á hinn eftirlifandi maki rétt á lífeyri úr sjóðnum og nefnist hann makalífeyrir. Einnig er þá greiddur bamalífeyrir með börnum, kjörbörnum og fósturbörnum til tiltekins aldurs, almennt 18 ára. Sækja þarf um maka-ogbarnalífeyri. Makalífeyrir er í vissum tilfellum greiddur eftirlifandi sambúðaraðila, eða þeim, sem hefur annast hinn látna. Makalífeyrir getur skipst á milli maka, þar sem sjóðfélagi hefur verið tvígiftur, í hlutfalli við þann tíma sem hvor hefur verið giftur hinum látna. Rétthafamir geta einnig verið fleiri en tveir og gildir þá hliðstæð regla. 34

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.