Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 46

Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 46
Dögim Iþér upplifun minni á svipaðan hátt og ég gerði með námsstefnugestum. A námstefnunni var efnið flutt í bútum á eftir fyrirlestrum eftir því sem andinn blés mér í brjóst, en hér er efninu raðað Sigu^ðuK ^óKannsson í tímaröð en fyrirsagnir fyrirlestrana notaðar sem millikaflar í frásögn minni. IrrcKSÖgn sy rgjanda í dag er myndin af prestinum á tröpp- unum, berhöfðuðum með alvörusvip, jafn greinileg í hugskoti mínu eins og hann hefði staðið þar í gær. ...en mínútumar þar á eftir, næstu dagar, vikur og mánuðir eru í hálfgerðum skugga. Þennan tíma held ég að ég hafi framkvæmt það sem gera þurfti með kaldri yfirvegun, en þegar ég hugsa til þessa tíma finn ég ennþá fyrir dofanum sem læsti inni tilfinningarnar á þessu tímabili. Góði lesandi. Mig langar til að deila með Tilkynning andláts Það eru núna fimm ár síðan að konan mín dó í bílslysi. Við Helga höfðum rætt um að skilja, ég var fluttur að heiman, og við höfðum leitað til prests, en höfðum ekki ennþá sótt um skilnað. Ég og börnin vorum nýkomin heim af skíðum, þegar dyrabjöllunni var hringt og sóknarpresturinn okkar stóð fyrir utan. Hann var búinn að koma áður og var nú á leið upp í fjall að finna okkur, en kom við ef við skyldum vera komin heim. Presturinn tilky nnti okkur um dauða Helgu. Hann sagði okkur hvenær, h var og hvernig slysið hefði orðið, og að maðurinn og börnin í hinum bílnum væru lítið meidd. í minningunni er svart sársaukafullt tómarúm fram eftir þessum degi þar sem glittir í „návist prestsins", „návist tveggja mágkona minna og manna þeirra, og síðar mömmu og systur", „erfitt símtal við tengdamömmu", „upptalningu á ættingjum og vinum, og hvemig við skiptum á milli okkar að koma dánarfregninni til þeirra". Stutt var í minninguna um hana á skíðum með okkur þrem helgina áður, og þar sem hún kvaddi okkur um morguninn er hún vildi frekar fara í 46

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.