Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 14

Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 14
Dögun. Það hefur verið sagt um sorgina, að hún sé gjaldið sem við greiðum fyrir það, að þykja vænt um aðrar manneskjur. Verðið sem upp er sett er ómælanlegt, en þó mishátt þegar um ástvinamissi er að ræða. Þungi tilfinninganna ræðst af inntaki þess sem misst er. Við kunnum að syrgja á annan hátt þann sem deyr í blóma lífs, í miðjum klíðum vona og fyrirheita, heldur en þann sem fell- ur frá og hefur lifað langa ævi, orðinn saddur lífdaganna. Hér ræður líka miklu eðli sam- bandsins, hversu nauðsynlegt það var okkar eigin vellíðan og sjálfsmynd. Var sambandið náið, og þess vegna um leið bæði blítt og strítt? Jákvæðu tilfinningarnar ráðum við yfirleitt betur við, heldur en að takast á við þær neikvæðu. Hér getur líka fyrri missir sett mark sitt á viðbrögðin, einnig þjóð- félagslegt viðhorf og arfurinn sem við búum við. Annar áhrifaþáttur, sem ræður miklu um þunga sorgarinnar og ætlunin er að gera sérstaklega að umræðuefni hér, þessar fáu mínútur, er þessi: hvernig dauða ber að. Var um að ræða eðlilegan dauðdaga, slys, sjálfsvíg, manndráp eða morð, var aðdrag- andi eða bar dauðann brátt að og skyndilega? Hversu oft höfum við ekki heyrt ástvini, sem fylgst hafa með löngu dauðastríði, segja þegar andlátið verður: „Þetta er það sem maður hefur búist við og búið sig undir, en samt er maður aldrei reiðubúinn". Hvað þá með skyndidauðann, þar sem enginn að- dragandi gefst. Það er samdóma álit þeirra, sem um skyndidauða hafa fjallað, að hann sé erfiðari viðfangs eftirlifandi ástvinum, en dauðinn sem færðist stöðugt nær og veitti fólki tæki- færi til að syrgja saman og búa sig undir það óhjákvæmilega. Þess vegna er óskin tvíbent, sem oft er látin í ljós þegar dauðinn er fjarri: „Ef ég fengi einhverju að ráða um dauða minn, þá vildi ég að hann bæri brátt að sársaukalaus í svefni". Það er gott fyrir þann sem deyr frá sorginni, en tvímælalaust þyngra viðfangsefni fyrir þann sem lifir og syrgir. Fyrstu viðbrögð við skyndidauða eru jafnan þau að hugurinn myrkvast. Áfallið er ó vægið högg, og það er líkt og tilveran hrynji. Það er algengt við þessar kringumstæður, að fólk verði hamslaust eða þá frosið og dofið. Tárin, harmakveinið, eða þá köld yfirvegun, allt eru þetta gild viðbrögð og tjáning á óbærilegum sársauka. Það er mikilvægt strax í upphafi að tíðindin, sem berast og breyta öllu séu borin ástvinum af nærfærni og reynt að finna út úr því hvað best getur stutt. Hlý návist skiptir miklu, að setjast niður með fólki og veita snertingu ef það er mögulegt, og sé eftir henni leitað. Við megum ekki láta eigið hjálparleysi verða til þess að koma með ótímabær svör eða huggun við aðstæður, þar sem ekkert huggar nema það ómögulega, að fá aftur þann sem dáinn er. Aftur á móti er mikilvægt við skyndidauða, að ástvinir fái svör við þeim áleitnu spurn- ingum, sem er á mannlegu færi að svara. Hvað með dánarorsök? Hefði það einhverju brey tt, ef hjálpin hefði borist fyrr? Togstreitan er mikil á milli þess, sem var gert eða látið ógert, sagt eða ósagt, bæði raunverulegt og ímyndað. Sekt og reiði eru systur, sem haldast í hendur og spretta upp úr sálardjúpi syrgj- andi manneskju. Þessar erfiðu tilfinningar geta leitað inn á við og verið tortímandi og eyðandi afl og valdið angist, og til lengri tíma jafnvel þunglyndi. Þær brjótast einnig fram, og það er betra þegar þær beinast að okkur, læknum, hjúkrunarfólki, lögreglu, prestum, vinum og fjölskyldu, Guði eða jafnvel þeim dána, sem yfirgaf mann ótíma- bært og í miðjum klíðum lífs og starfs. Að finna til reiði á þennan hátt kallar oft á aukna sekt og skömm, sérstaklega að finna fyrir reiði út í þann sem dáinn er. Slíkar tilfinningar þurfum við að staðfesta, þær eru skiljanlegar, þær eru eðlilegar og þær eru nauðsynlegar. Krufning getur oft eytt óvissu og varpað ljósi á þætti, sem ella gætu haldið áfram að valda vaxandi vanlíðan. Samkvæmt nýjum lögum, sem öðluðust gildi fyrr í vetur, er brýnt fyrir læknum að veita upplýsingar um 14

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.