Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 20

Ný Dögun - 01.11.1991, Blaðsíða 20
/Oý Dögwn. valið rétt lyf, útskýrt og meðhöndlað auka- verkanir og endurmetið meðferð þegar þarf. Þegar sjúklingurinn er orðinn verkja- laus er hægt að sinna hinni andlegu hlið . Heilbrigðisstarfsfólk sem er illa að sér í ein- kennameðferð vantar mikilvægasta verk- færið til líknar. Viðbrögðvið dauðanum Á samaháttogvið þurfumað þekkjaeðli mannslíkamanns, sjúkdómanna og lyfjanna til þess að lina hina líkamlegu þjáningu, þurfum við að hafa ákveðna innsýn í „víddir" dauðans ogalgeng viðbrögð bæði sjúklinga, aðstandenda og okkar sjálfra til þess að geta veitt hinum dauðvona andlegan stuðning. Okkurhættirofttilað líta á dauðastríðið, sem einhvers konar kvilla sem annað hvort er ekkert hægt að geravið eða nægilegt að ávísa róandi lyfjum. En auðvitað er lokakafli lífhlaupsins oft mjög viðburðarríkur og jafnvel þroskatími. Rakel,kona íblómalífsins,semvar að deyja frá ungu barni, sagði við prestinn: „Já, ég hef lært margt af pessu". Guðrún, tæplega sjötug kona, vissi fyrir rúmum mánuði síðan að nú dygði engin meðferð lengur. Hún sagði við mig hér um kvöldið : „Síðan égsá pig síðast heféggert ótrúlega margt og á enn eftir ýmislegt". Þetta er líf hlaðið ÓVISSU um HVAÐ gerist og HVENÆR. ÓTTA við þjáningu og niðurlægingu fremur en dauðann. Ótta við að verða öðrum háðurenjafnframtvið það að verða yfirgefinn í neyð. Ótta við það að hætta að vera til. Þetta er tímabil sem við- komandi bíður hvern ÓSIGURINN á fætur öðrum, líkaminn hrömar og hættir að hlýða skipunum, sjálfsímyndin riðlast, margt sem áður skipaði veigamikinn sess í lífinu, s.s. atvinna, hlutverk innan fjölskyldunnar og baráttumál, missa smám saman gildi sitt og veröld hins deyjandi þrengist bæði hvað varðar tímaogrúm. Hið ytralífhefurminni og minni þýðingu á meðan hið innra vex enda tíminn naumur og framtíðin tak- mörkuð. Einsogalltafvið alvarleg áföllerKVÍÐI algengur hjá dauðvona sjúklingum og birtist oft sem óróleiki, s vefntruflanir og versnandi verkir eða þá sem hugarangist. Kvíði minnkar oft við góða læknis- og hjúkrunar- þjónustu, með öryggi og samfellu og með því að auðvelda sjúklingum að viðhalda vissri sjálfstjórn. Rakel, sem ég nefndi áðan, var nýkomin heim afsjúkrahúsi eftir bráða innlögn vegna vaxandi einkennafrá sjúkdómnum. Hún neitaðiað láta kallaá okkuríheilavikupótthúnværiafar illa haldin af verkjum og uppköstum. Þegar við vorumloksins tilkölluð var pað fyrsta sem hún sagði: „Ég fer ekki á spítala." Hún varð ekki samvinnupýð fyrr en við lofuðum að hún yrði aldrei lögð inn gegn vilja sínum. Það er nauðsynlegt fyrir starfsfólk að smitast ekki af kvíða sjúklingsins, eigi það að geta hjálpað. Oft getur návist einhvers og það að deila hugsunum sínum með öðrum linað kvíða. Og auðvitað á ekki að hika við að nota róandi lyf. AFNEITUN er áhrifarík vörn gegn kvíða og því ekki alltaf af hinu illa. Hjúkrunarfólki reynist hins vegar oft erfitt að takast á við afneitandi sjúkling. Hver man ekki eftir sjúklingnum sem talar í öðru orðinu um að hann sé að deyja og í hinu er hann að ráð- gera ferðalag til Spánar? Oftast er afneitunin tímabundinog sveiflukennd. Það ereinsog sjúklingnum sé nauðsynlegt að fá sér smá „frí" frá raunveruleikanum öðru hvoru, láta eins og ekkert sé. Það er hvorki ráðlegt að brjóta slíka afneitun niður með hörku né samþykkja hana skilyrðislaust heldur að reyna smám saman að komast að viðkom- andi með því einfaldlega að taka ekki undir afneitunina. Það tekst þó ekki alltaf. Vilborg var að deyja úr lungnakrabbameini. Hún talaðialltaf um að bíða polinmóð par til sér batnaðienfannstverstpetta með hæsið semhlyti að stafa af langvinnu kvefi sem hún fékk fyrir áramótin. Hvernig sem reynt var að tala um að hæsið væri tengt sjúkdómnum lét hún sem hún heyrði ekki. Hún hafði aldrei pörf að ræða sjúkdóminn né dauðann. 20

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.