Skessuhorn - 10.06.1999, Side 5
' Fi.\i.Vm';DA'c;i k í'o'. )úní;i999
.5
ónarmib Flosa
Fáklæddar konur
Ég er alveg rosalega svag fyrir fáklæddum kon-
um.
Ég hef ekkert verið að hafa orð á þessari stað-
reynd heima hjá mér, enda er þetta nokkuð sem
kemur mér einum við og ég kæri mig ekki um að
vitnist.
Ég hugsa að þetta flokkist, svona öðru fremur,
undir hugrenningarsynd og svo ég segi nú hug
minn allan, svona í trúnaði, þá er ég stundum svo-
lítið sakbitinn útaf því að vera svona svag fyrir fá-
klæddum konum.
Stundum verður sektarkenndin nær óbærileg
og þá á ég enga ósk heitari en að geta talað um
það við einhvern hvað ég er svag fyrir fáklæddum
konum.
En þegar ég ía að þessu vandamáli við vini
mína og kunningja fær það ekki nokkurn hljóm-
grunn.
Það er einsog kunningjakreðsinn gefi skít í það
hvort konur kappklæðast eða fækka fötum.
Menn virðast þá yfirleitt fremur með hugann við
bensínverð eða það hvort olíufötunum fækki í ver-
öldinni og hvort verðið á olíufatinu sé tuttugu eða
fjörutíu dollarar.
Og það virðist vera á hreinu að fáklæddar kon-
ur eiga ekki aðgang að hugskoti þeirra vina minna
sem knúnir eru áfram af vitsmunum, enda hafa þeir
annað og þarfara að hugsa um, eins og til dæmis
það hverjir eigi að fá lóðir við Brúartorg í Borgar-
nesi, hvort íbúar í Skorradal þurfi endilega að eiga
heima í Skorradal, hvort fara eigi efri eða neðri
leiðina til að komast í Reykholtsdal, hvort afleggja
eigi pósthúsið í Reykholti og hvort eiginfjárstaða
Kaupfélagsins sé ekki í himnalagi.
Sem er að mínum dómi deginum Ijósara.
Stundum finnst mér einsog áhugi minn fyrir fá-
klæddum konum svona einsog einangri mig fá
öðru fólki. Mér líður stundum einsog ég sé einhver
andskotans öfuguggi.
Þið vitið " þessar endalausu raðir af löngum
lærum á snoppufríðum smástelpum sem fylla síð-
ur og opnur í öllum málgögnum þjóðarinnar dag
eftir dag og viku eftir viku án afláts.
En ég þykist vera að lesa eitthvað annað þegar
ég er að skoða kroppana og lambaketið í blöðun-
um. “ Þið vitið svona myndir eftir Elít -samkeppn-
ina, Ford "samkeppnina, að ekki sé nú talað um
fegurðarsamkeppni íslands „sem við sigruðum"
eins og sagt er í fótboltanum.
Annars er þetta svolítið að lagast hjá mér. Ég er
ekki nærri eins sakbitinn einsog ég var yfir áhuga
mínum á fáklæddum konum.
Það þakka ég blessuðum fjölmiðlunum.
Sá maður hlýtur að vera meira en lítið skrítinn,
sem flettir blöðunum reglulega og horfir að stað-
aldri á sjónvarp, og heldur jafnframt að hann sé al-
einn um eldlegan áhuga á fáklæddum konum.
Fáklæddar konur eru oft meginuppistaðan í efni
fjölmiðla.
Mér er nær að halda að fáklæddar konur séu
bókstaflega ær og kýr sjónvarps og blaða.
Hálfsíður, heilsíður og opnur sem sanna mér að
fáklæddar konur höfða heldur betur til lesendask-
arans.
Og ég hugsa sem svo:
-Maður er, þegar öllu er á botninn hvolft, svos-
em ekkert einn á báti.
En stundum einsog finnst mér að áhugi minn á
fáklæddum konum sé á öfugum forsendum.
Þegar ég sé mynd af fáklæddum konum í blöð-
um fer ég strax einsog að vorkenna þeim.
Mér finnst þær eiga svo bágt.
„Litlu greyin", hugsa ég þegar ég sé stelpu-
krakkana sem einhverjir „fínir“ athafnamenn þurfa
að græða á í fegurðarsamkeppnum.
Og þegar ég sé fatafellur finnst mér alltaf ein-
sog ég skynji einhverja angist í augunum á þeim
eða örvæntingu.
Og ég fer að vorkenna þeim.
En það hefur nú verið sagt að þær séu systur
vorkunin og væntumþykjan, svo líklega er ég
svona svag fyrir fáklæddum konum af því ég vor-
kenni þeim að vera svona illa búnar og varnarlaus-
ar.
Stundum er ég ekki mönnum sinnandi dögum
saman af því ég er svo hræddur um að slái að
þeim og þær fái lungnabólgu einsog gjarnan vill
henda þegar nærri berrassað fólk er að vasast um
allar trissur í nepjunni.
Og svo endar þetta með því að mér fer að þykja
vænt um þær.
Litlu greyin.
Flosi Ólafsson, Bergi
Guðjón
varaforseti
Samkvæmt tillögum þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins
verður Guðjón Guðmundsson,
fjórði þingmaður Vesturlands
varaforseti Alþingis á ný-
byrjuðu kjörtímabili. Sturla
Böðvarsson gegndi embættinu
á síðasta kjörtímabili en hann
er sem kunnugt er sestur í stól
samgönguráðherra.
G.E.
Gluggáskreyting á sjningu nemenda
Brekkubajarskóla.
Vorið
Nú stendur yfir sýning nem-
enda úr 8. 9. og 10. bekk
Brekkubæjarskóla í Listasetrinu
Kirkjuhvoli á Akranesi sem hef-
ur yfirskriftina „Vorið.“ A sýn-
ingunni eru fjölbreytt verk,
málverk, ljósmyndir og skúlp-
túrar og sýna verkin að grósku-
mikil listastarfsemi þrífst meðal
nemenda í skólanum. Sýning-
unni lýkur næstkomandi sunnu-
dag og er fúll ástæða fyrir unga
sem aldna að leggja leið sína í
Kirkjuhvol til að skoða sýning-
una. Listasetrið er opið daglega
frá kl.15-18. K.K
Hiisiií verður gjörbreytt bceði að utan og innan.
Nýr veitingastaður
Þessa dagana er unnið að mikl-
um endurbótum á Skólabraut 14 á
Akranesi þar sem opnaður verður
nýr veitingastaður undir merki
Hróa Hattar. I húsinu var áður
Skóvinnustofa Akraness og bakarí-
ið Hús Bakarans sem brann árið
1997. Unnið er hörðum höndum
að gagngerum endurbótum og
miklum breytingum á húsinu bæði
innan dyra og utan. Gert er ráð fýr-
ir að staðurinn taki um 70 manns í
sæti og stefnt er að því að opna
hann um mitt sumar. K.K
Mjólkurbílstjóri
-sumarafleisingar-
Olíudreifmg ehf. leitar nú að
meiraprófsbílstjóra til sumarafleysinga
í júlí og ágúst við
mjólkursöfnun frá
Borgarnesi.
Nánari upplýsingar veitir
Grétar Már Steinarsson í
síma 550 9900.
Iflllllfýýí
KANNTU AÐ 5ELJA?
Okkur vantar dreifingaraðiía.
Víð erum að leíta af fólki á öílum aídri
til þcss að seíja frábærar vörur í
neímahúsum. Nýtt á íslandi.
Áhugasamir hríneíð í síma 699-6617
Katrin Eííza.
Vegur nr. 56
yfir Vatnaheiði á Snæfellsnesi
Niðurstöður frumathugunar og úrskurður
skipulagsstjóra ríkisins.
Skipulagsstjóri ríkisins hefur úrskurðað
samkvæmt lögum nr. 63/1993 um mat á
umhverfisáhrifum. Ráðast skal í frekara mat
á umhverfisáhrifum vegar nr. 56 yfir
Vatnaheiði á Snæfellsnesi.
Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá
Skipulagsstofnun, Laugavegi 166,
150 Reykjavík.
Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu
Skipulagsstofnunar: http://www.skipulag.is.
Úrskurð skipulagsstjóra má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur
til 9. júlí 1999.
Skipulagsstjóri ríkisins