Skessuhorn - 10.06.1999, Síða 7
'ElU«tW.
S2ESSUHOEKI
V/c'íAY.'/.'/ 'i\i
FIMMTUDAGUR ÍO.JÚNÍ 1999
7
Mjólkursamlagið í Búðardal stækkað
Heppnir með
nýjungar
Segir Sigurður Rúnar Friðjónsson samlagsstjóri
Framkvæmdir standa yfir við
stækkun Mjólkursamlagsins í
Búðardal. Búið er að taka grunn
að 850 fermetra viðbyggingu
sem reist verður á næstu dögum.
Að sögn Sigurðar Rúnars Frið-
jónssonar mjólkursamlagsstjóra
mun nýja húsnæðið hýsa geymsl-
ur og lager og leysa af hólmi
leiguhúsnæði annars staðar í
bænum.
„Umsvifin hafa verið að aukast hjá
okkur á undanförnum árum. Mikil
áhersla hefúr verið lögð á vöruþróun
og það er óhætt að segja að við höf-
um verið heppnir með nýjungar.
Þessi auknu umsvif hafa gert það að
verkum að þrengst hefur um plássið
hjá okkur,“ sagði Sigurður.
Kæra vegna
byggingarinnar
Framkvæmdir við stækkun
Mjólkursamlagsins voru ekki boðn-
ar út og fékk samlagið á sig kæru á
þeim forsendum að verktakar hefðu
ekki uppfyllt lagaleg skilyrði. „I
fyrsta lagi var einungis um að ræða
lítinn part af ffamkvæmdunum, það
er að segja jarðvegsvinnu og sökkla.
Við vorum búnir að afla verða úr
reynslubanka og tókum ákvörðun
um að semja við ákveðinn aðila.
Forsendur kærunnar hafa verið
hraktar enda uppfyllir verktakinn
öll skilyrði. Sjálft húsið er límtrés-
hús frá Flúðum sem við tókum
fram yfir innflutt stálgrindarhús og
verður reist á næstu vikum,“ sagði
Sigurður. Aætlað er að bygginga-
framkvæmdum ljúki í lok júlí.
G.E.
Mjólkursamlagið í Búðardal
Samstarf Akranes- og Borgameslögreglu að aukast
Aldrei verið vandamál
Segir Þórður Sigurðsson yfirlögregluþjónn í Borgarnesi
Annað slagið hafa samskipti lög-
reglunnar í Borgamesi og á Akra-
nesi verið til umræðu í fjölmiðlum
og í tengslum við opnun Hval-
fjarðarganga lýstu margir þeirri
skoðun að ástæða væri til að end-
urskoða löggæsluumdæmin.
Að undanfömu hafa lögregluum-
dæmin haft samvinnu um hraða-
gæslu í nágrenni Hvalfjarðarganga
og um síðustu helgi stóðu lögreglu-
menn í Borgamesi og á Akranesi
saman að því að góma bíff æfiia inn-
brotsþjófa. Blaðamaður Skessu-
horns hafði samband við yfirlög-
regluþjónana þá Þórð Sigurðsson í
Borgarnesi og Svan Geirdal á Akra-
nesi og spurði hvort lögregluliðin
væm farin að starfa saman í sátt og
samlyndi. „Það hefur aldrei staðið
neitt í veginum fyrir samvinnu á
milli lögregluumdæmanna,“ sagði
Þórður. „Við höfum starfað saman
þegar á hefur þurft að halda. Sam-
skiptaörðugleikamir hafa verið bún-
ir til í fjölmiðlum og umræðan um
samstarf þessara aðila hefur verið
neikvæð. Aðstæður hafa hagað því
þannig að samstarf lögregluliðanna
hefur verið meira áberandi að und-
anförnu en það hefur ávallt gengið
vandræðalaust," sagði Þórður.
„Við höfum átt góða samvinnu
um hraðagæslu héma í nágrenninu
effir að göngin opnuðu og einnig
höfum við sinnt eftiriitd á svæði
Borgarneslögreglu og samstarfið
hefur gengið vel,“ sagði Svanur.
G.E.
Akranes
Framkvæmdir við Stillholtið
Þessa dagana standa yfir ffam-
kvæmdir við nýja veginn við
Stillholtið. I vikunni var lokið við
að ganga frá öllum helstu lögn-
um og stefnt er að því að ljúka
við að steypa veginn um miðjan
mánuðinn. Sömu tæki verða not-
uð og þegar Kalmans- og
Smiðjuvellir vom steyptir á síð-
asta ári. Við lagningu nýja vegar-
ins beinist umferðin ffá Stjóm-
sýsluhúsinu og verslunum við
götuna. Færast bílastæðin inn á
gömlu götuna og verður svæðið
afmarkað með kantsteinum.
Að sögn Gísla Gíslasonar verður
framhald á uppbyggingu gatna á
Akranesi í sumar. Næst verður ráð-
ist í að steypa Leynisbrautina og
þar á eftir verður Jaðarsbrautin tek-
in í gegn. Jaðarsbrautin er einstak-
lega illa farin og segir Gísli bæjar- þeir hafa sýnt þessi síðustu misseri.
yfirvöld íbúum við götuna þakklát K.K
fyrir þá ótrúlegu þolinmæði sem
I vikunni var gengiðfrá öllum helstu lögnum við veginn og nú er bara beðið efrir steyp-
unni! Mynd: K.K
Uppáhalds vefurinn
vesturland.is
Garðplöntustöðin Lágafell
Höfum opið 10-20
Úrval sumarblóma - matjurtir - fjölæringar
tré - runnar - rósir -
limgerðis- og skjólbeltaplöntur.
6 km. vesfan Vegamóta.
Byggjum á 8 ára reynslu f garðyrkju á Snæfellsnesi.
Sfmi 435 6639
Kröftugur gróður í garðinn
H öfu m til sö lu 6 0 teg u n d ir
a f trjá m og runnum,
sum arblóm og kálplöntur.
0pið frá kl. 13 til kl. 22 alla daga.
'eSllúMiÍH ígahHd íSííhhhí.
Árniog Þuríður.
Þorgautsstöðum 2
H v í t á r s í ð u . s: 435 1372
Kartöfluskífur til gratineringar og
afhýddar kartöflur argreitt í 7 kg. fötum.
Kartöflur í 25. kg. ækkjum.
TAMNINO - ÞJALFUN
Húsnœði óskast!
Kaupfélag Borgfirðinga br;
eða hús á leigu fyrir nýjai
Um er ræða þriggja man
Qóð fyrirframgreiðsla.
Nánari upplýsingar vei
Guðsteinn Einarsson e
Georg Hermannsson í
Kaupfélag
Byggdasofri Dalamanna
Laugum Dalasýslu.
Opió frá 10. júní - 30. ágúst kl. 15 - 1S>.
Príájudag - 5unnudags.
Lokaá á mánudögum.
Upplýsingar í símum :434 132Ö, Byggðasafn
4341550, Birna, 434 1272, Jóhann
Veríð velkomin
Safnvörður.