Skessuhorn - 10.06.1999, Qupperneq 14
14
A r
r r -r, \ (| ';T T‘T
auliSSUtiUM^
Agúst Skarphédinssan hílasali viðfyrsta bílinn sem hami seldifyrir 15 áram síðan.
Fimmtán ár
í bransanum
Bílasala Vesturlands styðnr björgnnarstörf
Þann 1. júní sl. voru liðin 15 ár
síðan Agúst Skarphéðinsson, eða
Gústi bílasali eins og hann er jafn-
an nefndur, tók við rekstri Bílasölu
Vesturlands í Borgarnesi. Jafnframt
er bílasalan 20 ára á sama tíma. Af
þessu tilefni bauð Ágúst, og kona
hans Erla Jónsdóttir, gestum og
gangandi til grillveislu sl. laugar-
dag.
Bílasala Vesturlands hefur um-
boð fyrir nýja og notaða bíla ffá
Ingvari Helgasyni, Bílheimum og
Suzuki umboðinu. Auk þess eru hjá
BV seldir notaðir bílar frá Brim-
borg og B&L. Á afmælisdaginn var
meðal annars til sýnis fyrsti bíllinn
sem Gústi seldi. Það er Subaru
1800 st. sem lengst af var í eigu
Hitaveim Akraness og Borgarfjarð-
ar og var bíllinn í umsjón Jóns Kr.
Guðmundssonar fv. hitaveitustjóra.
I tilefni afmælisins ánafnaði
Ágúst Slysavarnadeildinni Þjóð-
björgu í Borgarnesi andvirði sölu-
launa tíundu hverrar nýrrar bif-
reiðar sem seldist í gegnum Bíla-
sölu Vesturlands. Það verður síðan
tilviljun háð hver upphæðin verður
þar sem sölulaun fara eftir verði
seldrar biffeiðar. Það var Áslaug
Þorvaldsdóttir formaður Þjóð-
bjargar sem veitti gjöfinni viðtöku
við hátíðlega athöfn í skýli Björg-
unarsveitarinnar Brákar á sjó-
mannadaginn sl. sunnudag.
-MM
Hlutavelta
Þessar stúlkur héldu hlutaveltu krónur. Stúlkurnar heita Sandra,
til styrktar Rauða krossi Islands, Aðalheiður, Hanna María, Lilja
Akranesdeild og söfnuðust 2900 Björk, Inga og Iðunn.
Jóhanna L. Jónsdóttir ráðin
Jóhanna L. Jónsdóttir hefur ver-
ið ráðin til að undirbúa þátttöku
Jóhanna L. Jónsdóttir. Mynd: K.K.
Akranesbæjar í Menningarhátíð
Reykjavíkurborgar árið 2000 og að
undirbúa Irska daga á Akranesi á
næsta ári. Jóhanna sagði í samtali
við Skessuhorn að starfið legðist
vel í sig og sig hlakkaði til að takast
á við þau fjölbreyttu verkefni sem
biðu.
Hún segir að sín bíði að skipu-
leggja gerð útilistaverka og annarra
uppákoma samkvæmt tillögum sem
starfshópur um Sjávarlist setti fram
en sú verður yfirskrift menningar-
hátíðarinnar á Akranesi. Fengnir
verða listamenn úr ýmsum list-
greinum til að taka þátt í hátíðinni.
Jóhanna kemur til með að vinna
með félagasamtökum og kennurum
og eins mun hún sjá um fjáröflun
fyrir hátíðina.
K.K.
rr
FIMMTUDAGUR 10.JUNI 1999
Múlakot
flytur
Efnalaugin Múlakot í Borgar-
nesi flutti sig um set í stærra hús-
næði um síðustu helgi en fyrirtæk-
ið hefur fest kaup á húseigninni
þar sem áður var verslunin Metró.
Skessuhorn ehf hefur keypt húsið
við Borgarbraut 49 af Múlakoti og
mun blaðið flytja starfsemi sína
þangað í lok júnímánaðar.
Þaö var mikið um að vera við Borgar-
brautina áfóstudag er efnalaugin Múla-
kotflutti öll sín tæki og tól í nýtt húsnæði.
Myndir MM/GE
Styrkir til menningarmála
Menningarsjóður Kaupfélags
Borgfirðinga hefur verið starfandi
um alllangt skeið og hefur látið fé
af hendi rakna til góðra málefna í
héraði. I maí síðastliðnum var út-
hlutað úr sjóðnum fyrir árið 1999.
Styrki hlutu karlakórinn Söng-
bræður, kr. 50.000 vegna útgáfu
geisladisks, Kirkjukór Borgarnes-
kirkju, kr. 100.000 til Danmerkur-
ferðar, Kveldúlfskórinn, kr.
100.000 til Póllandsferðar. Einnig
styrkir Kaupfélagið eftirtalin verk-
efni á árinu: Lýsuhólsskóli, kr.
50.000 vegna útgáfu affnælisrits,
Björgunarsveit SVFI - Ok kr
150.000 vegna bílakaupa, Borgar-
neskirkja, til klukkukaupa, kr
100.000, Grunnskóli Borgarness
kr. 42.000 vegna Danmerkurferðar
og Þorvaldur Blöndal júdókappi, kr
50.000, vegna Olympíuleikanna í
Sidney árið 2000.
G.E.
Séra Þorbjöm Hlynur Arnason blessar nýjan björgunarbát Brákarmanna í Borgarnesi.
MyndMM
Nýr björgunarbátur
Þrátt fyrir að útgerð sé ekki ríkj-
andi þáttur í atvinnulífi Borgnes-
inga var sjómannadagurinn engu að
síður haldinn hátíðlegur þar í bæ.
Helsta dagskráratriðið var vígsla
nýs björgunarbáts í eigu Björgunar-
sveitarinnar Brákar.
Báturinn er af Humber gerð,
drifinn áfram af tveimur kraftmikl-
um utanborðsmótorum. Við vígslu-
athöfnina var Brákarmönnum m.a.
færðar eitthundrað þúsund krónur
að gjöf frá Slysavarnadeildinni
Þjóðbjörgu sem stutt hefur dyggi-
lega við starf sveitarinnar í gegnum
tíðina.. Nýja björgunarbátinn
blessaði síðan og vígði sóknarprest-
urinn og prófastur héraðsins; Þor-
björn Hlynur Árnason. Gat hann
þess m.a. í ávarpi sínu að þótt bát-
urinn væri nauðsynlegt og gott
björgunartæki vonaðist hann til að
hann yrði sjaldan notaður. Að lok-
um mynntist sóknarprestur þeirra
sem látist hafa á sjó og landi og ekki
síður þeirra sem eiga um sárt að
binda af þeim sökum. -MM