Fréttablaðið - 06.01.2023, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.01.2023, Blaðsíða 2
Leiðarljós í landi Í gegn um aldir hefur verið sjófarendum mikilvægt að hafa kennileiti til að styðjast við á för sinni. Vitinn við Skarfabakka í Reykjavík er einn hundraða ljósvita landsins sem vísa áhöfnum örugga leið í höfn og í faðm ástvina sinna og ættingja. Vitar eru ekki síst mikilvægir í skammdegi vetrarins. fréttablaðið/Ernir info@arcticstar.is - www.arcticstar.is Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618 MARINE COLLAGEN Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans. Kollagen er að finna í öllum liðum, liðamótum, vöðvum, sinum og beinum mannslíkamans. Arctic Star Marine Collagen inniheldur íslensk sæbjúgu, kollagen úr þorskroði og C vítamíni. C vítamín er þekkt fyrir: • Stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir starfsemi brjósks, beina og húðar. • Stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga- kerfisins og ónæmiskerfisins. • Stuðlar að því að verja frumur fyrir oxunarálagi og draga úr þreytu og lúa. • Stuðlar að endurnýjun afoxaðs forms E-vítamíns og auka upptöku járns. • Stuðlar að eðlilegum orkugæfum efnaskiptum. ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fast www.arcticstar.is Arctic Star Marine Collagen Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Fjarðakaup og Heimkaup.is Einn besti knattspyrnumað- ur allra tíma, Brasilíumaður- inn Pelé, var borinn til grafar í vikunni. Hann kom til Íslands árið 1991 og var gefin út bók í kjölfar heimsóknar hans. Á kápu bókarinnar má sjá sjónvarpskonuna Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur. benediktboas@frettabladid.is Fólk „Undir hökunni á mér er Jóhannes Karl og guttinn með ÍA-bandið er Garðar Gunnlaugsson,“ segir Sig- rún Ósk Kristjánsdóttir fjöl- miðlakona en á forsíðu bókar um heimsókn Pelé til Íslands frá 1991, Svörtu Perlunni, er mynd frá komu hans til Akra- ness. Þar er Sigrún Ósk áberandi fyrir aftan knattspyrnugoðið sem var lagt til hinstu hvílu í vikunni. Einnig er á myndinni Jóhannes Karl Guðjónsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari og fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta, sem og markahrókurinn mikli Garðar Gunnlaugsson ásamt fleiri krökkum frá Akranesi. „Það fyndna er að ég gat ekki nefnt einn frægan fótboltamann á þessum tíma. Ekki til að bjarga lífi mínu. En ég frétti að það væri ein- hver þekktur á leiðinni í bæinn og ég var að safna eiginhandaráritun- um af miklum móð á þessum tíma. Þannig að ég lét mig ekki vanta,“ segir hún og skellir upp úr. Sigrúnu langaði svo mikið að fá áritun í safnið sitt að hún fékk þá fyrstu í heimsókn Pelé til Akraness. Eitthvað sem hún var mjög stolt af. „Hann bættist í hóp með Bubba, Kim Larsen, Magnúsi Ver og síðast en ekki síst – og nú má spenna belt in, Össuri Skarphéðins- syni! Þetta er alvöru hópur,“ segir Sigrún og getur varla hætt að hlæja. „Ég gaf reyndar bróður mínum áritunina einhvern tímann þegar ég var í spariskapi,“ segir hún, enn þá örlítið svekkt yfir góðmennsku sinni. „Ég man það vel að Pelé hafði góða áru yfir sér. Hann var rosa- lega glaður og almennilegur, engir stælar. Seinna neyddist ég auðvitað til að lesa þessa bók þar sem ég hafði rambað á forsíðuna og ég var alveg smá svekkt að hafa ekki vitað meira um líf hans þegar ég hitti hann. Ég sá það að hann hefði alveg átt inni fyrir stælum, saga hans er náttúru- lega einstök,“ segir hún. Sigrún segir að það hafi verið mikill spenningur fyrir komu Pelé til Akraness á þessum tíma en hann fór víða um landið í þriggja daga heimsókn sinni. „Það voru allir karlarnir hjá ÍA mun beinni í baki en venjulega.“ Eftir að hafa verið gerður að heið- ursfélaga ÍA flaug Pelé til Akureyrar og þaðan til Egilsstaða. Dagurinn endaði svo í Vestmannaeyjum. Sigrún er gift Jóni Þór Hauks- syni, fyrrverandi landsliðsþjálfara kvenna og núverandi þjálfara ÍA, og á tvo gutta sem báðir eru djúpt í fót- boltafræðunum. En bókin er ekki til á heimilinu. „Hún er þó til hjá ömmu. Ég hef ekki gerst svo fræg að eignast hana sjálf. En synir mínir, sem eru níu og tólf ára, vita allt um Pelé sem sýnir hvað hann er enn þá stór karakter hjá fótboltaguttum í dag,“ segir for- síðufyrirsætan Sigrún Ósk. n Sigrún Ósk á forsíðu bókar um Íslandsheimsókn Pelé Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona er á mynd á kápu bókarinnar um Pelé sem gefin var út árið 1991. Mynd/Stöð2 kristinnhaukur@frettabladid.is viðskipti Icelandic Glacial, fyrir- tæki Jóns Ólafssonar, mun veita vatnið á Golden Globes-hátíðinni sem fram fer miðvikudaginn 11. janúar. Munu bæði hinir tilnefndu og aðrir gestir dreypa á vatninu sem kemur úr Ölfusi. Þetta er í annað skiptið sem Icelandic Glacial er í samstarfi við hátíðina, og hefði verið í þriðja skiptið ef hátíðinni hefði ekki verið „slaufað“ í fyrra. En hátíðin hafði hlotið mikla gagnrýni frá konum og minnihlutahópum, meðal annars vegna samsetningar dóm- nefndar. Nú hafa hins vegar verið gerðar miklar breytingar á skipulagi hátíðarinnar og verður henni sjón- varpað á nýjan leik. n Drekka vatn Jóns á Golden Globes Jón Ólafsson býður stjörnunum upp á íslenskt vatn. fréttablaðið/Valli. gar@frettabladid.is reykjavík Finna á nýtt svæði „utan alfaraleiða og fjarri byggð“ fyrir skotfélögin tvö í Reykjavík eftir að þau misstu aðstöðu sína á Álfsnesi. Borgarráð ákvað í gær að skipa starfshóp sem gera á tillögu um lausn fyrir 1. apríl. „Ekki hefur verið sátt um stað- setningu skotvallanna og hafa íbúar verið ósáttir og kvartað undan hávaðamengun og jarðvegs- mengun,“ segir í bréfi Dags B. Egg- ertssonar borgarstjóra. Kolbrún Baldursdóttir, borgar- fulltrúi Flokks fólksins, sagði mikil- vægt að finna lausn sem sátti yrði um. „Ef kalla á til sérfræðinga þarf að vanda val þeirra vel, þannig að þeir gangi ekki aðeins erinda áhuga- manna um skotveiði. Erfitt getur reynst að finna svæði í Reykja- vík þar sem ekkert mannlíf er í nágrenninu og þar sem blýmengun veldur ekki skaða og/eða þar sem skotæfingar skaða ekki náttúru,“ bókaði Kolbrún. n Finni skotfélögum á hrakhólum svæði Skotæfing á Álfsnesi. Mynd/Jón Mýrdal 2 Fréttir 6. janúar 2023 FÖSTUDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.