Fréttablaðið - 06.01.2023, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 06.01.2023, Blaðsíða 26
Kári Emil vann að þýðingu Dúnu í um sjö ár með hléum, eða frá 2015 til 2022. Mynd/Bradley eBerts Kári Emil Helgason þýddi vís- indaskáldsöguna Dúnu eftir Frank Herbert ásamt Dýrleifu Bjarnadóttur. Bókin kom út rétt fyrir jól en um er að ræða fyrstu íslensku þýðinguna á einni þekktustu vísinda- skáldsögu allra tíma. tsh@frettabladid.is Kári Emil starfar sem hönnuður hjá hljóðbókaframleiðandanum Audible í New York hvar hann hefur verið búsettur í fjórtán ár. Dúna (e. Dune) eftir Frank Herbert er fyrsta útgefna þýðing Kára en hann kveðst hafa unnið að bókinni með hléum í um það bil sjö ár eða frá 2015. Dúna er mest selda vís- indaskáldsaga allra tíma og segir frá blóðugri valdabaráttu á eyði- merkurplánetunni Arrakis. „Þegar ég var tólf ára þá reyndi ég að lesa þessa bók, pabbi átti hana. Mér gekk ekkert sérlega vel að lesa hana en ég var samt bara einhvern veginn heillaður af bókinni og ég held að hugmyndin hafi kviknað þá að þýða hana af því hún var ekki til á íslensku. Þetta var svona hugmynd sem ég einhvern veginn hafði alltaf, að það þyrfti að þýða þessa bók. Svo liðu árin og ég byrjaði í rauninni fyrir alvöru af hálfgerðri rælni þegar ég var atvinnulaus 2015 og þurfti að gera eitthvað,“ segir Kári. Átti að koma út 2020 Eins og áður sagði varð Kári heill- aður af söguheimi Dúnu frá unga aldri. Frank Herbert skrifaði sex bækur í seríunni en eftir að Frank lést 1986 héldu sonur hans Brian Herbert og Kevin J. Anderson serí- unni áfram og hefur síðan komið út fjöldi framhaldsbóka. „Ég hef reyndar bara lesið bæk- urnar eftir Frank Herbert, sem eru fyrstu sex bækurnar, ég hef ekki enn farið út í að lesa bækurnar sem sonur hans, Brian Herbert, og Kevin J. Anderson hafa skrifað,“ segir Kári. Dúna átti upphaflega að koma út hjá útgáfunni Partusi 2020 en vegna þess hversu umfangsmikið verk- efnið var tafðist útgáfan til 2022. Meðþýðandi bókarinnar er Dýrleif Bjarnadóttir sem kom upphaflega að verkinu sem ritstjóri en endaði á að þýða bókina með Kára og segir hann samstarfið hafa verið gjöfult. Þurftu að búa til orð Kári segir það vera áhugavert í menningarlegu samhengi hversu fáar vísindaskáldsögur hafa verið skrifaðar á íslensku. Auk þess átt- aði hann sig snemma á því að það sárvantaði góðar íslenskar þýðing- ar á vísindaskáldsögum. „Það hafa heldur ekki verið neitt margar vísindaskáldsögur þýddar og mér fannst alltaf Dúna vera frekar stór eyða í auði íslensk- unnar. Við rákum okkur á að það eru alls konar orð sem hljóma mjög eðlilega í ensku sem lýsa alls konar vísindaskáldsagnahugtökum en vantar á íslensku. Eitt gott dæmi um það er að á ensku er talað um „off-world“ sem lýsingarorð og fólki lýst sem „off-world people“ og svo framvegis. Þetta er lýsingar- orð sem er notað í vísindaskáld- skap um fólk frá öðrum plánetum. Það er ekkert sambærilegt orð til á íslensku þannig við bjuggum til orðið „erhnettur“ samanber erlendur, og að „vera erhnettis“. Það eru alls konar svona hlutir sem við þurftum aðeins að finna út,“ segir hann. Hvimleitt að vísa til vatns Af hverju ákváðuð þið að þýða titil- inn Dune sem Dúna? „Þetta var mjög f lókin ákvörðun en á endanum þá fannst mér margt mæla með henni. Þýðingin þurfti að gera þrennt: sem titillinn á bók- inni, sem orð yfir hugtakið sand- öldu og sem gælunafn á plánetunni Arrakis. Hin almennu orð sem við þekkjum yfir þetta á íslensku eru sandalda eða sandskafl en á plán- etunni Arrakis er ekkert vatn og það var hvimleitt að fólk sem býr á vatnslausri plánetu þyrfti að nota orð sem vísar í vatn til að lýsa svona grundvallarþætti í landslagi sínu. Alda og skafl eru bæði að rótinni til orð sem lýsa vatni eða ís.“ Kári segist hafa leitað leiða til að nota eitthvert annað orð yfir sand- öldu sem vísaði ekki til vatns og ákváðu þau Dýrleif að fara þá leið að þýða orðið dune sem dúna. „Orðið Dúna er til í næstum öllum evrópskum málum og ég lít svo á að af því þetta fyrirbæri er ekki til á Íslandi hafi orðið bara glatast í fornmálinu við landnám af því það voru engar dúnur til að lýsa á Íslandi. En við finnum orðið um alla álfuna, það er frum-indó- evrópskt að uppruna, þannig að ég lít bara á þetta sem endurvakningu á fornu orði,“ segir hann. Dúna hefur notið fádæma vin- sælda allt frá því hún kom fyrst út 1965. Bókin hefur verið kvikmynd- uð nokkrum sinnum og nú síðast kom út kvikmynd í leikstjórn Denis Villeneuve 2021. Spurður um hvort komi til greina að þýða hinar fimm bækurnar í upprunalegri bókaröð Franks Herbert segir Kári: „Já, það kemur alveg til greina ef áhuginn er til staðar. Ég held að við séum alveg opin fyrir því.“ n Heillaður af bókinni allt frá tólf ára aldri Þegar ég var tólf ára þá reyndi ég að lesa þessa bók, pabbi átti hana. Mér gekk ekkert sér- lega vel að lesa hana en ég var samt bara ein- hvern veginn heillaður af bókinni. Verk eftir bandaríska listamanninn Will Owen. Mynd/aðsend tsh@frettabladid.is Í dag, 6. janúar, opnar listamaður- inn Will Owen sýningu í Komp- unni í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Will Owen er listamaður frá Fíladelfíu í Bandaríkjunum. Á sýningunni kynnir hann röð af viðgerðum eða viðhaldsverkum sem glíma við siðferði og siðfræði samtímans. Með því að nota efni- við og tjáningarmiðla af margvís- legu tagi, meðal annars keramik, skúlptúra, hefðbundar aðferðir til að hnýta f lugur, auk málverka, veltir Will upp ýmsum spurningum á borð við: „Hvernig erum við ábyrg gagn- vart sálrænum áföllum? Gagnvart efnislegri neyslu? Gagnvart öðrum dýrategundum sem og okkar eigin? Hvernig búum við til hluti sem rotna vel? Hvernig varðveitum við hluti þegar þeir hrörna og brotna niður? Er hægt að nota sveppi og eiginleika þeirra til að draga eitur- efni úr jarðvegi og nota sem gler- ung á leirmuni? Breyta sálræn áföll upplifun okkur á öðrum?“ Á sýningunni í Kompunni byggir Will Owen á útskriftarsýningu sinni frá UPenn í Fíladelfíu, hvaðan hann útskrifaðist með meistara- gráðu í myndlist. Á þeirri sýningu velti hann upp svipuðum siðferði- legum spurningum og gerði sér mat úr hefðbundnum handíðum Appa- lachiafjalla, vísunum í íþróttir, líf- fræðitilraunir og matvæli, allt efni sem kallast á við brýnustu mál samtímans. „Það er engar lausnir að finna á þessari sýningu, né heldur siða- vendni, heldur bara tilraunir og sjónrænar tillögur,“ segir í tilkynn- ingu frá Alþýðuhúsinu. Opnunin fer fram í Alþýðuhús- inu á Siglufirði á milli klukkan 16.30 og 18.00 og verður boðið upp á dumplinga. Sýningin stendur út janúar og er opin þegar skilti er úti. n Will Owen sýnir í Kompunni á Siglufirði Á sýningu Will Owen kynnir hann röð af viðgerðum eða við- haldsverkum sem glíma við siðferði og siðfræði samtímans. 14 Menning 6. janúar 2023 FÖSTUDAGURFréttablaðiðmenninG Fréttablaðið 6. janúar 2023 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.