Fréttablaðið - 06.01.2023, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 06.01.2023, Blaðsíða 6
Forstjóri Landsvirkjunar segir niðurstöðu könnunar um orkumál ekki koma sér á óvart. Framkvæmdastjóri Landverndar efast um for- sendur fyrir orkuþörf. kristinnhaukur@frettabladid.is orkumál Hörður Arnarson, for- stjóri Landsvirkjunar, og Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmda- stjóri Landverndar, eru ósammála um túlkun niðurstaðna könnunar um virkjanir sem Fréttablaðið birti í gær. Einnig um þörf á orkuvinnslu og stöðu stóriðjunnar. Samkvæmt könnuninni, sem Pró- sent gerði fyrir Fréttablaðið, vilja 66 prósent fleiri vatnsafls- og jarð- varmavirkjanir á Íslandi, þar af 28 prósent mun fleiri virkjanir. 7 pró- sent vilja færri virkjanir og 26 pró- sent svöruðu hvorki né. „Þetta kemur okkur ekki á óvart og er mjög í anda þess sem við skynjum í okkar vinnu,“ segir Hörður. „Það er þörf fyrir orku í orkuskiptin og áhugaverðan iðnað sem vill vera hér á landi, svo sem matvælaframleiðslu.“ Auður segir hins vegar að könn- unin beri ekki merki um mikinn stuðning við virkjanaframkvæmdir. Stór hluti, 38 prósent, vilji sjá aðeins fleiri virkjanir sem sé engin bylting. „Það eru aðeins um 30 prósent sem vilja mikið fleiri virkjanir.“ Hörður segir að áætlun stjórn- valda um orkuskipti árið 2040 sé óraunhæf verði ekki virkjað meira. Tvöfalda þurfi orkuvinnsluna hér á landi. „Það þarf einhver orka að koma í staðinn fyrir milljón tonn af olíu,“ segir hann. Þá hafi Alþjóða- orkumálastofnunin bent á að heim- urinn þurfi að áttfalda endurnýjan- lega orkuvinnslu. Landsvirkjun er með f jögur verkefni í gangi sem greint hefur verið frá, öll í leyfisveitingarferli. Hvammsvirkjun í neðri Þjórsá, vind- orkuver í Búrfellslundi, stækkun á Þeistareykjum og Sigöldustöð. „Við höfum sagt að það sé ekki loku fyrir það skotið að það verði að virkja meira vegna orkuskipta,“ segir Auður. „Hins vegar höfum við sagt ítrekað að það sé algjörlega út í hött að það þurfi að tvöfalda raf- orkuframleiðslu eins og starfshópur umhverfisráðuneytis og umhverfis- ráðherra hefur haldið fram.“ Auður segir að verið sé að gefa sér alls kyns forsendur, svo sem mikla aukningu iðnaðar og að Ísland muni sjá öllu millilandaflugi sem hér fer um fyrir rafeldsneyti. Lítið sé að gerast í orkuskiptum í flugi. Nýting orkunnar til stóriðju og til gagnavera sem grafa eftir rafmynt- um hefur verið til umræðu. Hörður segir gagnaver í rafmynta greftri afgangsstærð í búskap Landsvirkj- unar og ekki hluta af framtíðarorku- sölunni. Annað gildir um stóriðjuna. „Við viljum styðja við núverandi viðskiptavini í stóriðju sem eru grunnurinn að okkar góða rekstri.“ Auður segir að allir virkjanakostir eigi að fara í faglegt mat og það þurfi að taka mark á því. Einnig að sumir virkjanakostir eigi ekki að vera í nýt- ingarflokki, svo sem Hvalárvirkjun og Eldvörp. Landvernd hafi sent inn endurupptökubeiðni þess efnis. „Samningar við stóriðjuna eru að losna á næstu 20 árum og við þurf- um að skoða vel sem samfélag hvort það sé besta nýtingin á orkunni,“ segir Auður um nýtingu orkunnar. n Samningar við stór­ iðjuna eru að losna á næstu 20 árum og við þurfum að skoða vel sem samfélag hvort það sé besta nýtingin á orkunni. Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmda­ stjóri Land­ verndar Stækkun Sig­ öldustöðvar ná­ lægt Þórisvatni er eitt af fjórum verkefnum Landsvirkjunar. Mynd/ Landsvirkjun Hörður Arnar­ son, forstjóri Landsvirkjunar Ólík sýn á skoðanakönnun og á framtíð orkuvinnslu Frumsýning 13. janúar Tryggðu þér miða borgarleikhus.is benediktarnar@frettabladid.is Heilbrigðismál Undanfarin ár hefur mælst aukning í svifryks- mengun á þrettándanum. Víða um land skjóta Íslendingar þá upp síð- ustu flugeldunum sínum og kveðja jólin með brennum. Svava S. Steinarsdóttir hjá Heil- brigðiseftirliti Reykjavíkur segir engar sérstakar ráðstafanir gerðar fyrir þrettándann, en hún hvetur fólk til að reyna að draga úr mengun. „Á þrettándanum erum við ekki að sjá neitt í líkingu við það sem gerist á gamlárskvöld. Samt sem áður hvetjum við fólk til þess að draga úr notkun f lugelda, því öll svifryksmengun er óæskileg. Þetta er mengun sem við erum að búa til eingöngu okkur til skemmtunar,“ segir Svava. Reykjavíkurborg hefur ekki gert neinar sérstakar ráðstafanir fyrir þrettándann að sögn Svövu. „Brennurnar eru litlar og fáar, við höfum litlar áhyggjur af þeim í stóra samhenginu. Það eru f lug- eldarnir sem eru stóra svifryksupp- sprettan,“ segir Svava. Að sögn Svövu er veðrið mesta áhyggjuefnið fyrir þrettándann. „Ef það er lítill vindur og frost- stillur, þá mælast há gildi af köfn- unarefnisdíoxíði. Loftgæðin verða lakari og meira heilsuspillandi fyrir okkur að anda að okkur úti- loftinu. Ef hægt er að draga úr ein- hverri mengun, þá er það allt af hinu góða,“ segir Svava. n Mengun sem er aðeins til skemmtunar Svava S, Stein­ arsdóttir, hjá Heilbrigðiseftir­ liti Reykjavíkur ragnarjon@frettabladid.is Ve s tm an nae yjar Marg ir er u farnir að hlakka til þrettándagleði ÍBV í Vestmannaeyjum sem verður haldin eftir tveggja ára hlé í kvöld. Margvísleg dagskrá verður í boði, þar á meðal flugeldasýning, blysför, álfabrenna, tröll, jólasveinar, tón- list og margt fleira en gangan hefst klukkan 19.00. Haraldur Pálsson, framkvæmda- stjóri ÍBV, er einn af skipuleggj- endum hátíðarinnar og segir undir- búning ganga vel. „Það er náttúrulega búið að vera tveggja ára hlé á öllu. Þetta hefur gengið ágætlega en það sem hefur verið að stríða okkur er færðin. Hún hefur tafið undirbúninginn. En þetta er allt að smella saman,“ segir Haraldur en hann telur það rétt að fáir taki þrettándanum eins alvar- lega og Vestmannaeyingar og ÍBV. Haraldur segir að dagskráin hefjist á Flötunum þar sem kveikt verður á kertum. „Svo er labbað upp Illugagötuna alla og snúið hjá Hvíld niður á mal- arvöllinn og þar er brennan og tröll- in eru höfð uppi á bíl sem hafður er með í göngunni,“ segir Haraldur en mikill undirbúningur hefur verið í tröllasmiðju Eyjamanna í vikunni sem sér um að gera þau tilbúin fyrir þrettándann. „Jólasveinarnir bætast svo við aftast þegar þeir koma niður af fjöllunum. Svo er bæði flugelda- sýning uppi á Hánni þar sem gang- an fer af stað og svo líka niðri á malarvellinum,“ segir hann. Haraldur segir alla að sjálfsögðu velkomna á hátíðina. „Þetta er hálfgerð bæjarhátíð enda ekkert verið að rukka inn og Vestmannaeyjabær styður okkur í þessari vitleysu ef svo má segja,“ segir Haraldur að lokum. n Spenna fyrir þrettándanum í Eyjum Mikil vinna hefur farið fram í tröllasmiðju þeirra Eyja­ manna í vikunni fyrir þrettánda­ gleðina. Mynd/aðsend. 6 Fréttir 6. janúar 2023 FÖSTUDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.