Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.03.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2007 19 LANDIÐ Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Landsveit | Nýir eigendur Leiru- bakka í Landsveit eru að byggja upp fjölþætta ferðaþjónustu sem byggir á gömlum grunni og áhugamálum þeirra sjálfra, menntun og reynslu. Anders Hansen blaðamaður og Val- gerður Kr. Brynjólfsdóttir íslensku- fræðingur hafa stofnað fræða- og menningarsetur sem vinnur að ýms- um menningar- og sögutengdum verkefnum auk uppsetningar Heklu- sýningar sem opnuð verður í vor. Anders og Valgerður höfðu verið með hrossarækt og ferðaþjónustu í tengslum við hestamennsku á Ár- bakka, neðar í sveitinni, í nítján ár. „Við fengum kauptilboð í jörðina án þess að hún væri til sölu og ákváðum að taka því og selja með meginhluta hrossanna,“ segir Anders þegar þau hjónin eru spurð um tildrög þess að þau fluttu að Leirubakka. „Í upphafi var hugmyndin að flytja aftur til Reykjavíkur en eftir að við og börnin höfðum skoðað þann möguleika bet- ur minnkaði áhuginn verulega á því að flytja úr sveitarfélaginu. Þá fórum við að svipast um og sáum að Leiru- bakki var til sölu.“ Þau keyptu jörð- ina af Íslenskum aðalverktökum vor- ið 2005 og fluttu sig um set. Miklir möguleikar Leirubakki er fornt höfuðból í Landsveit, stór og landmikil jörð og þar hefur verið rekin ferðaþjónusta í röskan aldarfjórðung, fyrst af hjón- unum Guðrúnu Jónsdóttur og Bjarna Valdimarssyni. Síðar byggði Sveinn R. Eyjólfsson og fjölskylda hans upp aðstöðuna og ráku um ára- bil. Íslenskir aðalverktakar höfðu átt jörðina í eitt ár þegar Anders og Val- gerður keyptu. „Við sáum strax að hér voru miklir möguleikar og ákváðum að halda áfram að byggja upp fjölþætta starf- semi í ferðaþjónustu,“ segir Anders. Þau ákváðu að stækka hótelið og veitingastaðinn, halda áfram með hrossarækt og hestaferðamennsku og taka hluta landsins undir sumar- húsabyggð. Síðast en ekki síst ákváðu þau að halda áfram við upp- byggingu Hekluseturs og útvíkka þá hugmynd. Þau hafa tekið í notkun fyrsta áfanga nýs gistihúss, fjórtán her- bergi sem öll eru með baðherbergi, og eru að ljúka tengibyggingu við veitingastaðinn. Í nýbyggingunni og eldra húsinu geta þau tekið liðlega fimmtíu manns í gistingu. Fyrirhug- að er að byggja aðra álmu við gisti- húsið á næstu árum. Þá er gistiað- staða fyrir um fimmtíu manns á hesthúsloftinu sem er mikið sótt af ferðahópum hestafólks og á staðnum er vinsælt tjaldsvæði. „Á góðviðris- dögum gista hundruð á Leirubakka,“ segir Anders. Þau hafa látið skipuleggja lóðir fyrir 300 sumarhús á bökkum Rang- ár ytri og nefna Fjallaland. Anders segir að búið sé að selja þrjátíu lóðir og tvö fyrstu húsin risin. „Þetta eyk- ur möguleikana á að reka þjónustu- miðstöð á Leirubakka. Með því að hafa fjölþætta ferðaþjónustu skjót- um við fleiri stoðum undir rekstur- inn,“ segir Valgerður. Mannlíf í skugga eldfjalls Fyrir um það bil tíu árum tóku nokkur ungmenni í Landsveit sig saman og settu upp sýningu um Heklu í félagsheimilinu Brúarlundi. Hún var opin á sumrin í nokkur ár. Þáverandi eigandi Leirubakka, Sveinn R. Eyjólfsson og fjölskylda hans, keyptu sýninguna á árinu 2000 og hófu byggingu myndarlegs húss fyrir Heklusýningu. Þeirri fram- kvæmd var ekki lokið þegar Anders og Valgerður keyptu jörðina. Á þeirra vegum er nú unnið við að ljúka byggingu hússins og innréttingu auk þess sem verið er að gera alveg nýja Heklusýningu sem þar verður opnuð í vor. Í húsinu verður einnig upplýs- ingamiðstöð fyrir ferðafólk, veitinga- staður og ráðstefnuaðstaða. Hugmyndin hefur þróast frekar í þeirra huga. „Þótt Hekla sé áhuga- verð finnst okkur saga mannlífsins í skugga eldfjallsins ekki síður áhuga- verð,“ segir Anders. Valgerður nefn- ir í þessu sambandi uppblásturinn sem ógnaði þessum hluta sveitarinn- ar og telur að litlu hafi munað að þarna færi allt í eyði á nítjándu öld. Hún segir að gaman sé að fá tæki- færi til að miðla sögunni. Hefur þessi hugsun þróast út í fræða- og menn- ingarsetur á Leirubakka sem Heklu- sýningin verður hluti af. Þau hafa gert samstarfssamning við Rangárþing ytra um að vinna að ýmsum verkefnum sem tengjast náttúru, sögu, menningu, þjóðfræði og listum í héraðinu og fyrirhugað er að taka upp samstarf við ýmsar stofnanir. Meðal verkefna sem fræða- og menningarsetrið vinnur að er und- irbúningur samkomu til minningar um Eyjólf Guðmundsson í Hvammi sem nefndur var landshöfðingi. Unn- ið er að söfnun heimilda um Land- réttir og um smalamennskur á Land- mannaafrétti. Hjónin hafa mikinn áhuga á að Landréttir í Réttanesi við Rangá verði lagfærðar og varðveitt- ar minjar um eldri Landréttir sem enn má sjá marka fyrir í hrauninu suðvestur af Leirubakka. „Við horf- um mest á okkar nánasta umhverfi og þar er af nógu að taka,“ segir Val- gerður. Þarf að miðla sögunni Anders og Valgerður segja að ferðafólk, bæði innlent og erlent, þyrsti í sögu staðanna og svæðanna sem það heimsækir og vinna þurfi skipulega að því að miðla henni. Því sé fræða- og menningarsetur eðlileg- ur þáttur í ferðaþjónustunni sem þau eru að byggja upp. Fjölfarnir vegir upp á hálendið og til vinsælla ferðamannastaða liggja um hlaðið á Leirubakka. Ferðafólki sem til landsins kemur fjölgar stöð- ugt. „Ég tel að við þurfum að gera meira af því að búa til ferðamanna- staði, eins og hér er verið að gera, þannig að fólkið getið notið landsins án þess að valda eyðileggingu á nátt- úruperlum. Bláa lónið er gott dæmi um það,“ segir Anders. Búist er við mikilli fjölgun ferða- fólks á Leirubakka eftir að Heklu- setrið verður opnað og önnur starf- semi komin á fullan snúning. Anders segir að reikna megi með allt að þrjá- tíu þúsund gestum á ári. Fræða- og menningarsetur er hluti af ferðaþjónustunni á Leirubakka í Landsveit Af nógu að taka í nánasta umhverfi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Mannlíf í skjóli eldfjalls Anders Hansen og Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir eru að byggja upp fjölþætta ferðaþjónustu á Leirubakka. Í HNOTSKURN »Saga Guðna Jónssonarmagisters hefur verið Val- gerði og Anders mikill inn- blástur og er ákveðinn grund- völlur fræða- og menningar- setursins. »Guðni ólst upp á Leiru-bakka. Þar kynntist hann þjóðfræði og fornri menningu Íslendinga sem mótaði líf hans og lagði grunninn að ævistarf- inu. »Fyrirhuguð er ráðstefnaFélags sagnfræðinga og þjóðfræðinga og þá verður af- hjúpaður minnisvarði um Guðna Jónsson heima á staðn- um. SUÐURNES Eftir Reyni Sveinsson og Helga Bjarnason helgi@mbl.is Sandgerði | Gert er ráð fyrir því að gömul grjótnáma í Miðnesheiði verði notuð sem útivistarsvæði Sandgerðinga. Samkvæmt tillög- um sem liggja fyrir gæti þar verið leiksvæði fyrir börn, hátíðarsvið og skíðabrekka, svo nokkrar hug- myndir séu nefndar. Fjölmenni var á íbúafundi um skipulagsmál sem bæjarstjórn Sandgerðis hélt í Vörðunni í Ráð- húsi Sandgerðis síðastliðinn laug- ardag. Fundurinn var vel sóttur. Farið var yfir þau mál sem eru efst á baugi í skipulagsmálum og þau kynnt fyrir íbúum. Tillögurn- ar eru áfram til sýnis í Vörðunni. Þar eru einnig til sýnis tillögur sem bárust í samkeppni um minn- isvarða sem fyrirhugað er að reisa í tilefni af 100 ára afmæli vélbátaútgerðar í Sandgerði. Markaðsátak í atvinnumálum Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri segir að í framhaldi af vel heppnuðu markaðsátaki, Sandgerðisbær innan seilingar, sé verið að hefja markaðsátak sem beinist að fjölgun atvinnutæki- færa í bænum. Á fundinum kom fram að fjölgað hefur í bænum úr um 1.400 manns, þegar markaðs- átakið hófst, í að verða 1.700 íbúa nú. Á fundinum voru kynntar lag- færingar á Strandgötunni og rammaskipulag sem gerir ráð fyr- ir blandaðri byggð með strönd- inni. Sigurður Valur tekur fram að verið sé að vinna að lagfær- ingum á skolpútrásum og hreins- un fjörunnar þannig að þarna geti í framtíðinni orðið náttúruparadís. Kynnt var deiliskipulag að mið- bæjarsvæðinu sem lagt er komið með að framkvæma og tillögur að gönguleiðum og nýtingu tjarn- anna sem teljast náttúruverndar- svæði. Sagt var frá stækkun íþrótta- húss og sundlaugar sem nú stend- ur yfir og sagt frá hugmyndum um stækkun íþróttasvæðis Reynis og golfvallarins. Sigurður Valur segir að á næstunni verði gerðir samningar við golfklúbbinn og knattspyrnufélagið um næstu skref í uppbyggingu íþróttasvæð- anna og segir hann ljóst að sveit- arfélagið muni koma myndarlega að þeim málum. Golfvöllurinn verður stækkaður í átján holu völl. Þá er fyrirhugað að setja gervigrasvöll við hliðina á knatt- spyrnuvelli Reynis með það í huga að síðar verði hægt að byggja knattspyrnuhús yfir völl- inn. Tekið var grjót úr námu í Mið- nesheiði þegar grjótvarnargarð- arnir voru gerðir í Sandgerðis- höfn. Nú hefur byggðin teygt sig að námunni sem er risastór hola í jörðinni með miklum klettaveggj- um. Kynntar voru hugmyndir um nýtingu hennar sem útivistar- svæðis fyrir bæjarbúa, bæði til daglegra nota og eins á hátíð- arstundum. Svæðið er skjólgott og fyrirhugað er að rækta það upp, koma upp göngustígum og aðstöðu fyrir börn og unglinga. Jafnvel skíðabrekku og sviði fyrir hátíðarhöld. Sigurður Valur segir að búið sé að aka töluverði efni í botn námunnar og móta landið í samræmi við þær tillögur sem fyrir liggja. Grjótnáman verður notuð sem útivistarsvæði bæjarbúa Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Kynning Íbúar voru áhugasamir um þær hugmyndir í skipulagsmálum sem kynntar voru á fundi í Vörðunni síðastliðinn laugardag. Í HNOTSKURN »Margt er á prjónunum ískipulagsmálum Sandgerð- inga. Voru helstu mál kynnt á fjölmennum íbúafundi í Vörð- unni. »Blönduð byggð verður áhafnarsvæðinu og fjaran hreinsuð. »Verið er að stækkaíþróttamannvirki við grunnskólann og fyrirhugað er að leggja gervigrasvöll á svæði Reynis og stækka golf- völlinn. »Göngustígar verða gerðirvið tjarnirnar og útivist- arsvæði í grjótnámunni. Reykjanesbær | Forskóladeild Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar og lúðrasveit næst- elstu nemenda skólans halda alls fimm tónleika fyrir nemendur í grunnskólum Reykjanesbæjar þessa dagana. Tónleik- arnir eru haldnir í öllum grunnskólum bæjarins í gær og í dag. Tónleikaröðinni lýkur síðan með kvöld- tónleikum í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur á morgun, miðvikudag, klukkan 19.30. Á tónleikunum á morgun koma fram nem- endur í 2. bekk forskóladeildar Tónlistar- skólans, alls um 180 manns, auk lúðra- sveitarinnar og rokkhljómsveitar sem skipuð er nemendum skólans. Allir nemendurnir leika á tónleikum Sandgerði | Kvennakór Suðurnesja fer á alþjóðlegt kóramót sem haldið verður á Ítalíu í haust. Kórinn heldur nú tónleika þar sem fluttur er hluti af dagskránni sem farið verður með til Ítalíu. Fjölmenni var á fyrri tónleikum kórsins, í Safnaðarheimilinu í Sandgerði í fyrra- dag. Flutt voru tíu íslensk og tíu erlend lög undir stjórn Dagnýjar Þ. Jónsdóttur. Sigurbjörg Hjálmarsdóttir söng einsöng. Síðari tónleikarnir verða í Keflavíkur- kirkju í kvöld, klukkan 20. Hita sig upp fyrir söngferð til Ítalíu Morgunblaðið/Reynir Sveinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.