Fréttablaðið - 22.02.2013, Blaðsíða 50
22. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 30
visir.is
Allt um leiki
gærkvöldsins
ÚRSLIT
DOMINOS-DEILD KARLA
NJARÐVÍK - KR 88-77
Njarðvík: Nigel Moore 22, Ágúst Orrason 18, Elvar
Már Friðriksson 17, Maciej Baginski 12, Ólafur
Helgi Jónsson 12, Marcus Van 5/9 fráköst.
KR: Brandon Richardson 22, Martin Hermannsson
16, Darshawn McClellan 9, Finnur Atli Magnusson
7, Helgi Már Magnússon 7.
ÍR - STJARNAN 88-100
ÍR: Eric James Palm 33, Sveinbjörn Claessen 14,
Hjalti Friðriksson 13, Þorvaldur Hauksson 9
Stjarnan: Brian Mills 18, Jovan Zdravevski 17/15
fráköst, Kjartan Atli Kjartansson 14, Justin Shouse
14/11 stoðsendingar, Marvin Valdimarsson 13.
GRINDAVÍK - SKALLAGR. 107-65
Grindavík: Samuel Zeglinski 20, Sigurður Þor-
steinsson 19, Jóhann Ólafsson 15, Aaron Brouss-
ard 12, Ólafur Ólafsson 8.
Skallagrímur: Carlos Medlock 23, Hörður
Hreiðarsson 15, Trausti Eiríksson 7
SNÆFELL - FJÖLNIR 108-77
Snæfell: Ryan Amaroso 25/17 fráköst, Jay Threatt
21/14 stoðsendingar, Pálmi Sigurgeirsson 17, Jón
Ólafur Jónsson 13, Sveinn Arnar Davíðsson 11.
Fjölnir: Christopher Smith 30, Björgvin Ríkharðs-
son 10, Róbert Sigurðsson 8, Gunnar Ólafsson 6.
N1-DEILD KARLA
HAUKAR - AKUREYRI 24-20
Haukar - Mörk (skot): Gylfi Gylfason 6 (9), Sigur-
bergur Sveinsson 6/3 (11/3), Árni Steinþórsson 4.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 21 (41/1, 51%),
Akureyri - Mörk (skot): Bergvin Þór Gíslason 7/1
(13/1), Geir Guðmundsson 4 (12).
Varin skot: Jovan Kukobat 7 (29/2, 24%),
FH - ÍR 29-24
FH - Mörk (skot): Ragnar Jóhannsson 7 (9), Þor-
kell Magnússon 5 (7), Logi Geirsson 5/2 (11/2),
Varin skot: Daníel Andrésson 20/2 (44/5, 45%),
ÍR - Mörk (skot): Björgvin Hólmgeirsson 11 (21),
Sturla Ásgeirsson 4/2 (8/4),.
Varin skot: Kristófer Fannar Guðmundsson 16/1
FRAM - AFTURELDING 31-12
Fram - Mörk (skot): Róbert Aron Hostert 8 (10),
Jóhann Gunnar Einarsson 6/3 (8/3)
Varin skot: Magnús Erlendsson 15/1 (23/2, 65%),
Afturelding - Mörk (skot): Birkir Benediktsson 4
(11), Árni Bragi Eyjólfsson 2 (3).
Varin skot: Davíð Svansson 7 (24/2, 29%)
VALUR - HK 26-26
Valur - Mörk (skot): Nikola Dokic 6 (9), Sveinn
Aron Sveinsson 6/6 (9/6), Valdimar Þórsson 5 (8),
Varin skot: Lárus Helgi Ólafsson 10 (26/2, 38%),
HK - Mörk (skot): Bjarki Már Elísson 7/3 (11/3),
Tandri Már Konráðsson 6 (12)
Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 18 (42/4,
43%),
ÚRSLIT
EVRÓPUDEILD UEFA
LYON - TOTTENHAM 1-1
1-0 Maxime Gonalons (17.), 1-1 Mousa Dembele
(90.)
Tottenham vann samanlagt, 2-3. Gylfi Þór
Sigurðsson lék síðustu 20 mínútur leiksins fyrir
Tottenham.
METALIST - NEWCASTLE 0-1
0-1 Shola Ameobi, víti (64.)
Newcastle vann samanlagt, 1-0.
LIVERPOOL - ZENIT 3-1
0-1 Hulk (18.), 1-1 Luis Suarez (28.), 2-1 Joe Allen
(43.), 3-1 Luis Suarez (59.)
Zenit vann samanlagt, 3-3. Liðið fer áfram á
marki á útivelli.
CHELSEA - SPARTA PRAG 1-1
0-1 David Lafata (17.), 1-1 Eden Hazard (90.+1)
Chelsea vann samanlagt, 2-1.
STEAUA BÚKAREST - AJAX
Leikurinn fór í framlengingu og var ekki lokið er
Fréttablaðið fór í prentun. Kolbeinn Sigþórsson
var í byrjunarliði Ajax.
KÖRFUBOLTI Þegar menn líta yfir
tölfræðina hjá KFÍ-manninum
Damier Pitts velta örugglega marg-
ir fyrir sér hvernig Ísfirðingum
tókst að krækja í þennan frábæra
körfuboltamann.
Damier Pitts er 23 ára gamall og
á sínu fyrsta ári í atvinnumennsku
eftir að hafa spilað með Marshall-
háskólanum í bandaríska háskóla-
boltanum fjögur ár þar á undan.
Pitts er nú stigahæstur í deildinni
og í 3. sæti í stoðsendingum. Hann
er allt í öllu í leik KFÍ-liðsins og það
er margt í gangi inni á vellinum sem
fer ekki í gegnum hann.
KFÍ tapaði fyrstu fimm leikjun-
um með hann innanborðs en hefur
nú unnið þrjá af síðustu fimm leikj-
um sínum og annað tapanna kom á
dramatískan hátt í framlengingu.
„Hann minnir svolítið á mig
þegar ég var að spila,“ sagði Pétur
Már Sigurðsson í léttum tón þegar
undirritaður spurði hann út í
Damier Pitts, bandarískan leikstjór-
nanda liðsins sem hefur farið á kost-
um með KFÍ síðan að hann kom til
Ísafjarðar í nóvember.
Draumaleikmaður í þessa stöðu
Pétur Már getur samt ekki frek-
ar en aðrir á Ísafirði leynt aðdáun
sinni á þessum frábæra leikmanni
sem hefur skorað yfir 30 stig í níu
leikjum í röð.
„Hann er rosalega góður. Það er
góð ára í kringum hann og hann er
mikill leiðtogi innan sem utan vall-
ar. Þetta er klárlega algjör drauma-
leikmaður í þessa stöðu,“ segir
Pétur Már.
Pitts hefur góða afsökun fyrir því
að skora ekki 30 stig í fyrsta leikn-
um. „Hann skoraði reyndar bara
17 stig í fyrsta leiknum sínum en
þá lenti hann bara um morguninn,“
sagði Pétur en síðan þá hefur kapp-
inn skorað minnst 30 stig í leik og
þá gaf hann líka 11 stoðsendingar
í sigurleik á móti Skallagrími. En
hvernig verða menn svona heppnir
í kanahappadrættinu?
„Ég er með góð sambönd. Hann
spennti bogann mjög hátt og það
gekk ekki upp. Við létum erlenda
leikmanninn okkar fara í byrjun
nóvember og þá var hann á lausu.
Ég var þá að skoða nokkra leik-
menn en leyst mjög vel á hann því
hann var einmitt týpan sem ég var
að leita að,“ sagði Pétur Már sem er
samt alveg tilbúinn að taka ábyrgð
á slæmri byrjun í vetur.
Gerði fyrst mistök
„Ég sem þjálfari gerði mistök í
útlendingavali og þurfti að súpa
seyðið af því. Þá komst þetta seint
og illa af stað en það virðist vera
mikill stígandi í liðinu og menn eru
jákvæðir yfir öllu sem er að ger-
ast núna. Við erum mjög grimmir
að komast í úrslitakeppnina og það
er það eina sem kemst núna að hjá
okkur,“ segir Pétur og Pitts á mik-
inn þátt í því.
„Ég veit ekki hvort það komi
honum á óvart að hann small inn
í leikkerfið hjá mér. Við erum að
hlaupa eitthvað sem hentar honum
vel og ég leyfi honum að hafa ákveð-
ið frjálsræði. Hann finnur líka leik-
mennina í kringum sig og stjórnar
leiknum vel. Við erum í góðu sam-
bandi og þetta er eðal drengur,“
segir Pétur Már sem sparar ekki
hrósið á sinn mann.
„Hann er algjör töffari og það
skín af honum sjálfstraustið. Það
hefur áhrif enda er hann mikill sig-
urvegari. Á æfingum verður mönn-
um oft heitt í hamsi því menn eru
grimmir í að vinna leiki á æfingum.
Það hefur komið með hans tilvist í
liðinu,“ segir Pétur Már.
Eiginlega alltaf brosandi
„Hann er ótrúlega jákvæður og allt-
af tilbúinn að koma að dæma eða
hjálpa til. Hann er orkubolti sem
er eiginlega alltaf brosandi. Þetta
er alveg eðalsending,“ segir Pétur
Már að lokum. ooj@frettabladid.is
Draumaleikmaður og töff ari
Pétur Már Sigurðsson, þjálfari KFÍ í Dominos-deild karla í körfubolta, vann í kanahappadrættinu í nóvember
þegar hann samdi við Damier Pitts. Damier er búinn að brjóta 30 stiga múrinn í níu leikjum KFÍ í röð.
32,9 STIG OG 7,4 STOÐSENDINGAR Í LEIK Damier Pitts hefur spilaði frábærlega
með KFÍ-liðinu í vetur. Hér er hann í leik á móti Snæfelli. MYND/HALLDÓR SVEINBJÖRNSSON
Damier Pitts viðurkennir það að það hafi verið klúður hjá umboðsmanni
sínum sem varð til þess að hann endaði á Ísafirði en hann sé samt stað-
ráðinn í að gera það besta úr þessari stöðu.
„Það er mjög gott og afslappað að vera hér á Ísafirði. Ég er frá stórri borg
í Bandaríkjunum þannig að það er mjög öðruvísi fyrir mig að búa í svona
litlum bæ,“ segir Damier Pitts.
„Mér líður vel á Ísó, það eru allir almennilegir og ég nýt lífsins hérna. Ég
er búinn að vera að spila vel og hugsa bara um að gefa allt mitt í hvern
einasta leik og gera það sem ég þarf að gera fyrir liðið. Markmið okkar er
að komast upp í sjöunda eða áttunda sætið og við ætlum að gera allt sem
við getum til þess að komast í úrslitakeppnina,“ segir Damier.
„Myrkrið er svo sem ekkert að angra mig en ég hef líklega bara séð sólina
tvisvar sinnum síðan ég kom til Ísafjarðar. Það er skrítið en ég fæ að sjá
sólina þegar ég kem til Reykjavíkur. Við keyrum líka í alla leiki og fljúgum
aldrei. Þetta eru hátt í sex tíma ferðir og það er mikil breyting fyrir mig.“
Bara búinn að sjá sólina tvisvar sinnum
FÓTBOLTI Forráðamenn
þýska félagsins Schalke 04
íhuga nú að kæra þátttöku
Fílbeinsstrendingsins Di-
diers Drogba í 1-1 jafntefli
Schalke 04 og Galatasaray í
fyrri leik liðanna í sextán liða
úrslitum Meistaradeildar-
innar á miðvikudag.
Didier Drogba gekk til liðs
við tyrkneska félagið í lok
janúar en hann fékk sig þá
óvænt lausan frá kínverska
félaginu Shanghai Shenhua.
Schalke 04 skrifar um málið
inni á Twitter-reikning
félagsins í dag. „Það er vafi um hvort
Drogba hafi verið kominn með full-
gilt keppnisleyfi í Meistaradeildinni
og Schalke ætlar að skoða málið
betur.“
Didier Drogba átti góðan
leik með Galatasaray en
Þjóðverjarnir náðu að
jafna rétt fyrir hálfleik og
eru í fínum málum fyrir
seinni leikinn í Þýskalandi.
Hinn nýi leikmaðurinn hjá
tyrkneska félaginu, Hollend-
ingurinn Wesley Sneijder, fann
sig ekki eins vel og var skipt af
velli í leikhléi. - óój
Drogba gæti hafa verið ólöglegur
15% afsláttur
Gildir út febrúar
FÓTBOLTI Fyrrum landsliðsmark-
vörður Englands, David James, kemur
til Vestmannaeyja í dag og mun æfa
með Pepsi-deildarliðinu fram til
sunnudags.
Hann er fyrst og fremst að skoða
aðstæður og eftir helgina verður sest
niður og rætt við hann um fram-
haldið. ÍBV vantar markvörð, meðal
annars, eftir að Abel Dhaira fór frá
félaginu.
Hinn 42 ára gamli James hefur spilað
572 leiki í ensku úrvalsdeildinni og
212 í neðri deildunum. Hann lék
meðal annars með Liverpool, Man.
City og svo Portsmouth þar sem
hann lék með þjálfara ÍBV, Hermanni
Hreiðarssyni. Þeir urðu enskir
bikarmeistarar með Portsmouth árið
2008. - hbg
David James skoðar aðstæður hjá ÍBV
FÉLAGAR Hermann faðmar hér James
er þeir urðu bikarmeistarar með
Portsmouth. NORDICPHOTOS/GETTY
FAGNA Gylfi Þór Sigurðsson og félagar
í Tottenham fagna hér marki Dembele
sem kom tottenham áfram í sextán liða
úrslit Evrópudeildarinnar.
NORDICPHOTOS/GETTY
SPORT 2 . febrúar 2013 FÖSTUDA
FÓTBOLTI Arnór Smárason segist
gjarnan vilja komast aftur í hollenska
boltann eftir að samningur hans
við Esbjerg í Danmörku rennur út í
sumar.
Arnór hefur verið hjá Esbjerg í tvö
og hálft ár en þangað kom hann frá
Heerenveen í Hollandi. Arnór, sem er
Skagamaður, fór ungur til Hollands á
sínum tíma.
„Stefnan er að komast aftur til Hol-
lands, í stærri deild og í betra lið.
Mér líkar vel við hollenska boltann
og ég hef metnað til að spila aftur
þar,“ sagði Arnór í viðtali við Boltann
á X-inu í gær.
Horfi r til Hollands